Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Skipverjar í uppreisn gegn Sveini skipstjóra – Lýsa yfir vantrausti og krefjast afsagnar

Skipverjar í uppreisn gegn Sveini skipstjóra – Lýsa yfir vantrausti og krefjast afsagnar
Sveinn Geir Arn­ars­son, skip­stjóri Júlíusar Geir­munds­sonar.

Áhöfn tog­ar­ans Júlíusar Geir­munds­sonar, sendi bréf til útgerð­ar­innar þar sem þeir lýsa yfir van­trausti á Svein Geir Arn­ars­son sem skip­stjóra tog­ar­ans. Þar er kraf­ist þess að Sveinn láti af störfum. Þetta kemur fram í kvöld­fréttum RÚV. Þar kemur fram að meiri­hluti skip­verja standi að baki bréfs­ins en ekki er stað­fest hve margir þeir séu.

Nærri helm­ingur áhafnar fyrsti­tog­ar­ans Júlíusar Geir­munds­sonar frá Ísafirði, hefur risið upp gegn skip­stjóra sínum, Sveini Geir Arn­ars­syni, sem stýrði hinum fræga Covid-túr skips­ins sem Mannlíf greindi fyrst frá. Hann hefur sjálfur neitað að mæta í sjó­próf og var það kornið sem fyllti mæl­inn hjá skip­verj­unum sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs.

Van­trausts­bréfi áhafn­ar­innar hefur verið skilað inn til útgerð­ar­innar, Hrað­frystis­húss­ins Gunn­varar, og undir bréfið rita flestir þeir skip­verjar sem alla jafna sigla með Sveini.

Áður hafa útgerðin og skip­stjór­inn þrá­ast við að afhenda sjó­dag­bók tog­ar­ans og var deilt um afhend­ingu hennar fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­ness fyrir helgi. Þar var einnig tek­ist á um fyr­ir­huguð sjó­próf og þar full­yrtu tví­menn­ing­arnir, eða lög­maður þeirra nánar til­tekið, að þeir myndu ekki taka þátt í vitna­leiðslum sjó­próf­anna. Aftur á móti var dag­bókin afhent dóm­ara fyrir rétt­inum sem nú fær það hlut­verk að meta hvort bókin verði afhent stétt­ar­fé­lögum sjó­manna sem kærðu útgerð­ina og skip­stjór­ann fyrir slæma með­ferð skip­verja í marg­frægum túr hans á dög­unum.

Stétt­ar­fé­lög áhafn­ar­innar á frysti­tog­ara­naum Júlíusi Geir­munds­syni tóku höndum saman og kærðu útgerð­ina til lög­reglu. Tilefnið er frægur Covid-túr tog­ar­ans þar sem útlit er fyrir að veikum sjó­mönnum hafi verið haldið á sjó svo vikum skipti og skikk­aðir til að vinna. Þá hefur útgerðin orðið upp­vís að því að hlýða ekki sótt­varn­ar­lækni á Vest­firði sem gaf ítrekuð til­mæli þess efnis að tog­ar­anum yrði stýrt í land svo áhöfnin kæm­ist í sýna­tökur. Það var ekki gert fyrr en þremur vikum eftir brott­för.

Sveinn sagð­ist ekki hafa neitt um málið að segja þegar blaða­maður spurði hann út í van­trausts­yf­ir­lýs­ing­una fyrr í dag en hann hefur ítrekað neitað að tjá sig um málið þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir. Hann hefur sjálfur frá­beðið sér sýnd­ar­rétt­ar­höld vegna túrs­ins sem ætluð séu til þess eins að smána sig. Hann seg­ist þó ekki ætla að skor­ast undan ábyrgð í mál­inu.

Hér kemur yfir­lýs­ing skip­stjór­ans vegna fyr­ir­hug­aðra sjó­prófa sem til stendur að fari fram næsta mánu­dag:

„Yfir­lýs­ing skip­stjóra Júlíusar Geir­munds­sonar
Það var mér þung­bært að kom­ast að því að smit um borð í skip­inu reynd­ist vera kór­ónu­veirusmit og erfitt að sitja undir því að ég hafi vilj­andi stofnað áhöfn­inni í hættu eða neytt veika menn til að vinna. Hvorugt er rétt og í engu sam­ræmi við þau við­horf sem ég hef haft að leið­ar­ljósi ístörfum mínum. Fram hafa komið þungar ásak­anir í minn garð og kærur m.a. frá mínu eigin verka­lýðs­fé­lagi. Er þung­bært að sitja undir slíkum ásök­unum, en ég mun ekki víkja mér undan ábyrgð í mál­inu og ég get gert mis­tök eins og aðrir menn. Lög­reglan rann­sakar nú hvort það hafi átt sér stað brot á lögum af minni hálfu og hef ég veitt lög­regl­unni allar upp­lýs­ingar sem hún hefur óskað eftir. Hefur hún undir höndum afrit af skips­dag­bók og hef ég gefið henni mína skýrslu í mál­inu. Þá hefur lög­reglan einnig tekið skýrslu af öllum áhafn­ar­með­limum og öðrum sem hafa komið að mál­inu m.a. heil­brigð­is­starfs­fólki.

Bíð ég nú sem sak­aður maður eftir nið­ur­stöðu lög­reglu­rann­sóknar, en ég vænti þess að þar muni ég njóta sann­mælis og rétt­látrar máls­með­ferðar eins og lög bjóða. Á sama tíma og verka­lýðs­fé­lag mitt og önnur stétt­ar­fé­lög sjó­manna lögðu fram kæru á hendur mér til
lög­reglu lögðu þau fram beiðni um sjó­próf. Með sjó­prófi segj­ast þau ætla að rann­saka eigin kæru og kom­ast að því hvort ég hafi gerst brot­legur við lög með þeim hætti sem þau halda fram í kærunni. Ætla þau að halda opin­ber rétt­ar­höld yfir mér þar sem leiða á sann­leik­ann í ljós og opin­ber­lega smána mig. Ekki þarf að spyrja að því hvernig sá dómur verður, enda hafa þau þegar fellt hann.

Ég frá­bið mér sýnd­ar­rétt­ar­höld og opin­bera auð­mýk­ingu í boði stétt­ar­fé­lags míns og mun ekki taka þátt í þeim. Vilji stétt­ar­fé­lög eiga við mig sam­tal og leita leiða til að bæta öryggi sjó­manna þá er ég ávallt til­bú­inn til að eiga slík sam­töl við þau, á þeim grund­velli að mark­miðið sé að vinna saman að því að bæta öryggi sjó­manna, en ekki smána og nið­ur­lægja opin­ber­lega.

Ég mun ekki tjá mig frekar um málið opin­ber­lega á meðan rann­sókn lög­reglu stendur yfir og ég hef stöðu sak­born­ings.

Sveinn Geir Arnarson skip­stjóri“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð