Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dætur saka Björn um misnotkun – Hann vill milljónir frá Stundinni

Dætur saka Björn um misnotkun – Hann vill milljónir frá Stundinni

Í morgun fór fram í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur aðal­með­ferð í meið­yrða­máli Björns Matth­í­as­sonar hag­fræð­ings gegn öðrum rit­stjóra Stund­ar­innar og útgáfu­fé­lagi Stund­ar­innar vegna við­tals sem birt­ist í blað­inu við dætur Björns. Hag­fræð­ing­ur­inn fór fram á fimm millj­ónir í bætur.

Í við­tal­inu, sem birt­ist í blaði Stund­ar­innar þann 9. nóv­em­ber 2018, komu syst­urnar fram nafn­laust og sögðu að faðir þeirra hefði mis­notað þær sem börn. Ekki var greint frá nafni föð­urs­ins en fram kom að hann hefði verið sér­fræð­ingur í ráðu­neyti „með fína háskóla­gráðu frá Banda­ríkj­unum.“

Birtust brot úr dag­bók­ar­færslum, þar sem önnur systirin, þá níu ára gömul, hafði skrifað að faðir sinn hefði mis­notað hana þegar hún var yngri. Myndir voru einnig birtar af systr­unum í blað­inu, frá því þær voru börn, en and­lit þeirra afmáð.

Í við­tal­inu sagði að gögn sýndu að frá­sagnir af mis­notkun hefðu borist yfir­völdum margoft, en samt voru þær þving­aðar af sýslu­manni til að umgang­ast föður sinn. Segir yngri systirin meðal ann­ars frá því hvernig faðir hennar mis­not­aði hana í þving­aðri umgengni. Vildu syst­urnar stíga fram og segja frá hvernig kerfið hefði brugð­ist þeim sem börnum.

Björn Matth­í­as­son.

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, annar rit­stjóri Stund­ar­innar og höf­undur grein­ar­innar, mætti Birni fyrir rétti í morgun. Eldri dóttir Björns var einnig mætt í dóms­sal og sú yngri var með í gegnum netið, þar sem hún er búsett erlendis.
Syst­urnar völdu það sjálfar að mæta í dóm­inn, til þess að stað­festa allt það sem haft var eftir þeim í við­tal­inu við Stundina.

Segir Ingi­björg, í sam­tali við Mannlíf, það hafa verið mjög óþægi­legt að mæta í dóms­sal­inn og aug­ljóst að dætr­unum liði illa. Lýsir hún því einnig hvernig Björn hafi dregið fram bréf sem dætur hans skrif­uðu til hans er þær voru litlar þar sem þær segj­ast sakna hans og þykja vænt um hann. Vildi Björn láta bréfið ganga um sal­inn, þar á meðal til dóttur sinnar, en hún afþakk­aði að sjá bréfið. Björn hefur alltaf haldið fram sak­leysi sínu í mál­inu og hélt því áfram í morgun.

Að sögn Ingi­bjargar vildi Björn meina að í kjöl­far birt­ingu við­tals­ins við dætur hans, hafi það farið að spyrj­ast út að hann væri umræddur faðir. Var hann meðal ann­ars rek­inn úr göngu­klúbbi sem hann var þá í. Ekki fékkst það þó stað­fest hvers vegna Björn var rek­inn úr göngu­klúbb­inum.

Ingi­björg bendir á að ekki sé óeðli­legt að slíkt spyrj­ist út, óháð birt­ingu við­tals­ins, enda hafi ásak­anir dætra hans staðið í mörg ár. Samkvæmt Ingi­björgu kom dóm­ari með til­lögu að sátt í mál­inu, að Björn fengi að segja sína hlið í Stund­inni, en Björn hafi hafn­aði þeirri til­lögu.

Ingi­björg tjáði sig einnig um málið á Facebook síðu sinni í gær­kvöldi:

„Í fyrra­málið þarf ég að fara fyrir dóm vegna starfa minna sem blaða­maður og rit­stjóri. Þar mun ég mæta manni sem til­kynnti mér á afmæl­is­dag­inn að hann myndi stefna mér fyrir umfjöllun sem ég vann árið 2018. Tveimur árum síðar barst mér fjár­krafa þar sem mér var gert að greiða 5 millj­ónir króna innan sjö daga, ellegar yrði ég dregin fyrir dóm­stóla. Af því að dætur manns­ins fengu rödd og rými til að tjá sína upp­lifun af því hvernig kerfið brást þeim í barn­æsku, þegar þær báru föður sinn ítrekað þeim sökum að hafa brotið á sér og báð­ust undan því að þurfa að umgang­ast hann, án þess að á þær væri hlustað. Á morgun reynir enn á ný á hvort á þær verði hlustað, því þótt faðir þeirra hafi ekki ákveðið að stefna þeim líka þurfa þær engu að síður að mæta honum fyrir dómi og gefa þar skýrslu. Ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að vera í þeirri stöðu, auk þess sem faðir þeirra hefur með þessu svipt þær vald­inu til að velja sjálfar hvort þær stígi fram undir nafni og mynd til að segja sögu sína. Þær völdu að vera nafn­lausar, meðal ann­ars til að hlífa fjöl­skyld­unni en einnig vegna þess hversu erfitt skref það er stíga að standa ber­skjald­aður frammi fyrir alþjóð með svo við­kvæm per­sónu­leg mál­efni, en með því að draga mig fyrir dóm opin­berar mað­ur­inn bæði hver hann er og þær um leið. Mig langar því að biðja um hlýjan hug og góða strauma.“

Björn lauk meistara­gráðu í hag­fræði frá Yale-háskóla í Banda­ríkj­unum. Hann hefur meðal ann­ars starfað hjá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum, Seðla­banka Íslands, EFTA, fjár­mála­ráðu­neyt­inu og sem kenn­ari við Háskóla Íslands.

Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir náð­ist ekki í Björn við vinnslu grein­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi