Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Danskennarinn Anna Svala vinnur á olíuborpalli: „Hann sagði mér að borða og æla til skiptis“

Danskennarinn Anna Svala vinnur á olíuborpalli: „Hann sagði mér að borða og æla til skiptis“

„Ég var rosa­lega sjó­veik í fyrsta skiptið og hringdi í pabba. Ég varð að djöfl­ast í ein­hverjum og hann þurfti að taka höggið. Hann sagði mér að borða og æla til skiptis þangað til sjó­veikin hyrfi. Þetta var rétt hjá honum enda er hann sjó­maður til margra ára,” segir Anna Svala Árna­dóttir sem starfar á olíu­borpöllum í Norð­ur­sjó.

Anna Svala hefur vakið athygli á Snapchat fyrir skemmti­lega pistla úr Norð­ur­hafi.

„Ég átti engan vegin von á þessu, ég er engin snapp­ari, var bara í vinn­unni með slefrönd út á kinn,“ segir Anna Svala og hlær að nýfeng­inni frægð sinni.

Anna Svala er sjó­manns­dóttir og kann vel við að vera umkringd haf­inu.

Anna Svala er fædd og upp­alin Eyjamær, dóttir Árna Óla og Hönnu Birnu, dans­kenn­ari og núver­andi stars­fmaður á olíu­bor­p­alli. Hún hefur verið búsett í Stavan­ger í Noregi í sex ár ásamt sam­býl­is­manni sínum Anders Leroy, sem starfar sem sér­fræð­ingur á sviði flutn­inga hjá Postnord, og syni sínum Tómasi Árna.

Hvað er skandinavíska?

„Þetta hafði legið lengi í loft­inu, mig lang­aði að gera eitt­hvað nýtt. Stavan­ger varð fyrir val­inu því ég átti vini þar. Jafnvel þótt að hreim­ur­inn sér harður og erf­iður“.

Anna Svala segir þetta hafa verið svaka­legt stökk.

„Eftir á séð var það kannski ekki frá­bærasta hug­mynd í heimi að taka 17 ára ung­ling frá vinum sínum. En þetta gekk allt upp og sonur minn, Tómas Árni, er í flug­námi í dag”.

Anna Svala kunni ekki orð í norsku við kom­una og var alltaf jafn hissa þegar henni var bent á að tala „skand­in­av­ísku”.

„Hvað er skand­in­av­íska eig­in­lega? Og af hverju fylgd­ist ég ekki betur með í dönsku­tímum?”

Anna Svala gerði sér vel grein fyrir að hún hlypi ekki mál­laus í drauma­vinn­una og ákvað hún að taka hverju því sem henni byð­ist. Hún fór að vinna við þrif og lagði áherslu á að læra norsku. Hún fór einnig í jóga­kenn­ara­nám til Tælands og opn­aði lítið jóga­stúdíó sem núna er lokað vegna Covid far­ald­urs­ins. Eftir fjögur ár við þrifin frétti hún frá vinum sínum að það væri verið að ráða „offs­hore”, en það kalla Norðmenn vinn­una á borpöll­unum.

Lítil þolinmæði fyrir fíneríi

„Ég hafði engu að tapa, skellti mér í við­tal og fékk vinn­una. Ég hafði aldrei stigið upp í þyrlu, aldrei komið á olíu­bor­p­all og vissi ekk­ert hvað ég var búin að koma mér út í. Þar með byrj­aði ballið og ég er búin að vera í þessu í tvö ár. Og er alsæl.“

Anna Svala vinnur innan dyra á pall­inum í deild sem kölluð er Catering. Því fylgir meðal ann­ars vinna í eld­húsi við að skræla græn­meti og búa til morg­un­djús­inn, halda sam­eig­in­legum svæðum hreinum svo og þvottur og frá­gangur. „Ég reyni nú yfir­leitt að koma mér í fjörið og lætin í eld­hús­inu, ég hef minni þol­in­mæði fyrir ein­hverju svona fín­eríi eins og að þurrka af og skipta um á rúmum!”

Mikið er lagt upp úr öryggi á borpöllum.

Það gekk á ýmsu í fyrstu ferð­inni.

„Það er tvær gerðir af borpöllum, þeir sem er fastir og þeir sem eru fljót­andi. Fyrsta ferðin er í hálf­gerðri móðu en ég lenti á fljót­andi palli og eins bíl­veik, sjó­veik og flug­veik sem ég er, ældi ég út í eitt. Ég var líka með alltof mikið af far­angri, ég lærði það seinna að á olíu­bor­p­alli er ferns konar klæðn­aður: Vinnuföt, kósíföt, æfinga­föt og nátt­föt”.

Algjört áfengisbann

Und­ir­bún­ingur var stífur enda er mikil áhersla lögð á örygg­is­fræðslu, skyndi­hjálp og alla þá þjálfun til að takast á við hvað sem upp á gæti komið.

Anna Svala segir gríð­ar­lega áherslu á örygg­is­mál á pöll­unum.

„Það er und­an­tekn­inga­laust öryggis­æf­ing einu sinni í viku. Ég er í oft í skyndi­hjálp­ar­lið­inu, þá söfn­ust við saman og könnum hvort ekki sé búið að rýma allar hæðir, þótt bjallan ætti nú ekki að fara fram­hjá nokkrum manni. Við erum með hjálma og í örygg­is­skóm vopnuð skyndi­hjálp­ar­tösku og eigum að leita slas­aðra og koma þeim í skjól. Það eru engir sénsar teknir, við verðum að vera 100 pró­sent með á nót­unum. Til dæmis er algjört áfeng­is­bann á borpöllum og við megum eiga von á að vera tekin í próf hvenær sem er“.

Anna Svala getur ekki notið rauð­víns­glass á palli því þar er algjört áfeng­is­bann.

Pall­arnir eru mis­stórir en þeir stærstu eru sjö hæða fer­líki með 580 manns um borð.

„Þetta eru ekk­ert annað en risa­stór hótel, þau stærstu í Noregi. Og þegar dag­vakt og næt­ur­vakt deila her­bergi geta verið á pall­inum ríf­lega 1000 manns í einu. Þarna eru svefn­her­bergi, lík­ams­rækt­ar­stöð, leikja­her­bergi, ljósa­stofa, lít­ill bíó­salur, jafn­vel hljóð­færa­her­bergi til að taka lagið. Þetta er lit­ríkt og lif­andi sam­fé­lag þar sem alltaf er eitt­hvað að ger­ast. Þyrlur lenda dag­lega, stundum tvisvar á dag og það eru sífelld vakta­skipti,“ segir Anna Svala og það er aug­ljóst að hún kann vel að meta lífið og fjörið sem fylgir vinnu hennar.

„Svo var ég með jóga­kennslu á pall­inum en því miður varð ég að hætta henni á meðan að Covid stendur yfir“.

Ekki bara olíublettaðir kallar

Anna Svala vinnur í tvær vikur og er síðan með frí í fjórar vikur.

„Fyrir suma hljómar þetta kannski eins og lúxus en ég vinn 168 tíma á mán­uði, 12 tíma á dag. Maður er þreyttur þegar í land er komið og þá er gott að geta hvílt sig. Það er ynd­is­legt að vera úti í sól­inni með vin­konum sínum. Ég sakna þess að hafa ekki jóga­stúd­íóið mitt til að tappa af“.

Það er mikil sam­heldni í palla­sam­fé­lag­inu.

Við komu og brott­för þarf Anna Svala að fara í Covid próf.

„Ég er fyrir löngu búin að missa töl­una á hversu mörg test ég hef farið,“ segir Anna Svala.

Anna Svala seg­ist ekki hafa farið með neinar fyr­ir­fram­gefnar hug­myndir í starfið á pall­inum en hún finnur fyrir því að fólk sé með ákveðna mynd í hug­anum um líf á olíu­bor­p­alli. „Þetta er ekki ein­tómir olíu­blettóttir karlar eins og í bíó­mynd þótt karl­menn­irnir séu fleiri. Olíu­iðn­að­ur­inn í Noregi er svo risa­stór og það er alls konar fólk sem starfar við hann í alls konar störfum. Líka konur. Og það er örugg­lega þrifa­legra hjá mér en á nokkru hót­eli!”

Er lífið sem við kusum

Að sögn Önnu Svölu mynd­ast sterk bönd á pöll­unum.

„Þetta er lítið sam­fé­lag. Það eru allir í þessu á sömu for­sendum og maður eign­ast marga vini. Við eigum það öll sam­eig­in­legt að missa af afmælum og öðrum fjöl­skyldu­við­burðum en það er okkar líf. Við kusum þetta eins og aðrir sem eru í vakta­vinnu og kyngjum því að sjálf­sögðu og göngum áfram veg­inn“. Anna Svala segir mikið hlegið og spjallað á pöll­unum. Við höfum bíó­kvöld, poppum og hlæjum. Við erum í raun eins og fjöl­skylda.“

Anna Svala nýtur þess að vera úti í sól­inni á milli vakta.

Mörgum finnst skrítið að Anna Svala sé í vakta­vinnu úti á sjó en henni og Anders, sam­býl­is­manni hennar, finnst það hið eðli­leg­asta mál.

„Ég er sjó­manns­dóttir. Ég ólst upp við að pabbi væri lang­dvölum úti á sjó, miklu lengur en ég. Við Eyjaskvís­urnar erum alveg með þetta.”

Önnur íslensk kona er að vinna á pöll­unum, einnig frá Vest­manna­eyjum.

„Ég fór úr í þetta með þá hugsun að gefa þessu tvö ár. Þau eru komin og ég verð áfram.

Víkingur umkringd hafinu

Aðspurð um hvort hún fái aldrei inni­lok­un­ar­kennd þar sem það heyrir til und­an­tekn­inga að hún fari út af hót­el­inu og þá ekki nema í fylgd örygg­is­að­ila vopnuð stað­setn­ing­ar­tæki. „Nei, en ég veit að sumir eiga erfitt með að vera bara umkringdir haf­inu bláa. Það angrar mig ekki, þetta er þægi­legur vinnu­staður, en ég er auð­vitað vík­ingur frá Íslandi. Ég hef net­sam­band, get heyrt í for­eldrum, ætt­ingjum og vinum á Íslandi og víðar. Ég á til dæmis bróðir í Banda­ríkj­unum. Hér er allt til alls.

Anna Svala seg­ist ekki vera á leið til Íslands næstu árin.

„Margar segja Norðmenn leið­in­lega og fer­kant­aða. En líkur sækir líkan heim og við grenjum úr hlátri saman. Um leið og þú áttar þig á reglu­festu þeirra og að hlut­irnar taka ákveðin tíma er þetta ekk­ert mál. Ísland er ynd­is­legt og ég elska að koma heim, það er akkúrat ekk­ert glatað við Ísland. En Noregur er ynd­is­legur líka. Öll lönd hafa sinn sjarma,” segir Anna Svala Árna­dóttir, starfs­maður á olí­bor­p­alli, nýkomin í land eftir langa og stranga úti­veru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð