Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hilda Jana galopnar sig um neysluna, þunglyndið og kvíðann: „Á tímapunkti sagði ég bara „fuck it““

Hilda Jana galopnar sig um neysluna, þunglyndið og kvíðann: „Á tímapunkti sagði ég bara „fuck it““

Ákveðið var á fundi kjör­dæm­is­ráðs Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi 7. apríl sl. að Hilda Jana Gísla­dóttir, bæj­ar­full­trúi á Akureyri, yrði í 2. sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í kjör­dæm­inu. Hún talar hér meðal ann­ars um æsk­una og ung­lings­árin, þung­lyndið og kvíð­ann, neysl­una, ást­ina, fjöl­miðla­fer­il­inn, stjórn­málin og Duracell-kan­ínu.

Hilda Jana Gísla­dóttir fædd­ist í Reykja­vík.

„Ætli ég muni ekki fyrst eftir mér þegar ég bjó við Leifs­götu í Reykja­vík þar sem ég bjó frá tveggja til 10 ára ald­urs. Þar átti ég ævin­týra­heim sem mér fannst vera risa­stór en svo þegar maður heim­sækir Leifs­göt­una núna þá er hún nú ekki mjög stór. Ég var rosa­lega mik­ill klif­ur­köttur. Mér fannst það vera ægi­lega skemmti­legt að klifra. Svo á ég margar æskuminn­ingar frá Ólafs­firði en ég var þar mikið á sumrin hjá ömmu og afa. Það má segja að ég hafi verið gaur. Ég var ekki prinsessa. Ég var mikið í stíg­vélum, skítug og mikið úti að brasa svo sem að veiða síli í tjörn­inni í bænum. Ég var rosa­lega orku­mik­ill krakki. Mamma sagði mér að stundum þegar þau pabbi voru á ferða­lagi með mér þá áttu þau til að láta mig úr bílnum til að ég fengi að hlaupa og tappa af mér orku.“

Mér fannst ég til­heyra ein­hverjum og vera hluti af ein­hverju þegar ég drakk.

Árin liðu. Hilda Jana hætti að klifra upp í tré og veiða síli í tjörn­inni fyrir norðan.

Hún varð ung­lingur. Laug­ar­nes­skóli. Mela­skóli. Haga­skóli. Hún var stundum með kjaft.

Hún var í fim­leikum og fót­bolta en hand­bolt­inn var stóra áhuga­málið og æfði hún með KR.

„Ung­lings­árin voru erfið. Þetta var flók­inn tími. Ég glímdi við þung­lyndi og kvíða. Mér fór að líða illa and­lega þegar ég var í 8. bekk. Mér leið eins og geim­veru. Þetta hafði áhrif á skapið, ég var erfið í umgengni og stundum pirruð og leið­in­leg heima við. Mér fannst ég vera öðru­vísi en allir aðrir, sér­stök, mér fannst eng­inn skilja mig og mér fannst ég hvergi passa inn. Mér fannst ég hvorki til­heyra fjöl­skyld­unni né bekknum; mér fannst ég þó til­heyra hand­boltalið­inu sem ég var í. Ég komst síðar að því að ég er ekk­ert sér­stök, ég var í raun eins og flestir aðrir. Það gerð­ist á ein­hverjum tíma­punkti að ég sagði svo­lítið bara „fuck it“. Mér var bara alveg sama. Ég ætl­aði bara að gefa skít í allt. Ég átti góða for­eldra sem sýndu mér alla þá umhyggju sem hægt er að óska sér og það var ekk­ert í umhverf­inu sem útskýrði líðan mína. Það er hins vegar ofboðs­lega sár til­finn­ing að upp­lifa að maður til­heyri ekki hvort sem sú til­finn­ing er síðan byggð á réttu eða röngu. Sjálfs­myndin var ofboðs­lega slæm. Mér fannst ég ekki vera klár og mér fannst ég ekki líta vel út; mér fannst ég ein­hvern veg­inn alveg ómögu­leg. Ég sá mig alla­vega þannig. Svo horfi ég í dag á myndir af þess­ari fal­legu, skemmti­legu og blíðu stelpu sem ég var og hugsa með mér hvernig ég gat hugsað svona um mig. Það er svo ósann­gjarnt.“

Tímarnir voru aðrir og síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar.

Ég var í dag­neyslu í þrjá mán­uði og var alveg búin á því og end­aði í með­ferð um haustið. Ég var þá orðin and­lega gjald­þrota.

„Það var ekk­ert verið að tala um þung­lyndi eða kvíða á þessum tíma. Á hvaða grunni átti maður að byrja? Maður þekkti varla orðin. Og ég sá enga ástæðu til að tala um þetta. Ég sé í dag að það er svo mik­il­vægt að gera það.“

Í neyslu

Hilda Jana var 13 ára þegar hún fékk sér fyrsta sopann. Henni leist ekki á og smakk­aði ekki áfengi í heilt ár á eftir.

„Mér fannst þetta vera alveg skelfi­legt.“

Svo seg­ist hún hafa byrjað að drekka eins og margir ung­lingar. Fór í partí og drakk.

„Mér fannst ég til­heyra ein­hverjum og vera hluti af ein­hverju þegar ég drakk.“

Hún vildi drekka eins og hinir sem voru byrj­aðir að drekka.

Hún hékk eftir 9. bekk oft í leik­tækja­sal í mið­bænum ásamt vin­konum sínum og fleirum og stundum var drukkið, sumir reyktu hass og ávís­anir voru fals­aðar.

Hann er ótrú­lega skemmti­legur, blíður, hug­ul­samur, klár og heill­andi. Hann heill­aði mig hrein­lega upp úr skónum.

Svo lauk grunn­skól­anum og sum­arið á eftir var mikið djammað. Síðan hóf hún nám við Kvenna­skól­ann. Hún og vin­konur hennar fóru út að skemmta sér um hverja helgi og stundum oftar. Stundum kom hún ekki heim í nokkra sól­ar­hringa og allt þetta hafði áhrif á námið.

Hilda Jana seg­ist svo hafa farið í mikla neyslu þegar hún var 16 ára.

„Við bjuggum á þessum tíma í einni af jóla­trés­blokk­unum úti á Granda og ég man að pabbi skrif­aði einu sinni ljóð um það þegar hann horfði á bíl­ljósin út um glugg­ann og kvíða­hnút­ur­inn í mag­anum stækk­aði af því að ég var ekki komin heim. Svo end­aði ljóðið á því að hann sagði að undir morgun hafi ég komið heim og hann hafi litið í augu mín brúnu og séð að þetta væri ekki ég.“

Ekki þú

Út um glugg­ann

horfi ég á gul augu

nálg­ast húsið

það er nótt

og ég er hræddur

því þú ert

ekki komin heim

í hvert sinn

þegar gulu augun

aka fram hjá

og það ert ekki þú

vex ótti minn

undir morgun

dotta ég

en vakna þegar úti­dyrnar opn­ast

og þú kemur inn

ég horfi í

brúnu augun þín

dimmu

og sé

að þetta ert ekki þú

(-Gísli Gíslason

í ljóða­bók­inni „Ham­ingju­smið­ur­inn“ árið 1994.)

Ég gjör­sam­lega bug­að­ist bæði and­lega og lík­am­lega.

Drykkjan jókst og jókst og jókst. Og hún fór að dópa.

„Ég sleppti ein­hvern veg­inn brems­unni. Mér var alveg sama um sjálfa mig og allt. Svo umgekkst ég mikið af fólki sem var að nota efni og mér fannst þetta ekk­ert vera mál þegar ég horfði á það. Þetta var spenn­andi. Skemmti­legt ævin­týri. Það var mikið hlegið og engin ábyrgð. Þetta hjálp­aði svo sem ekki þung­lynd­inu; það sem gerð­ist var að mér leið sífellt verr og það fór að byggj­ast upp víta­hringur og það var erfitt að vera edrú.“

Ég heill­að­ist mjög fljótt af fjöl­miðl­unum

Hilda Jana flutti að heiman þegar hún var 17 ára. Hún leigði litla íbúð ásamt tveimur vin­konum sínum og fljót­lega var orðið ansi mann­margt þar inni. Stundum þegar vin­kon­urnar vökn­uðu vissu þær ekki hvaða fólk var þar inni. Þær voru í stans­lausri neyslu allt sum­arið. Hilda Jana drakk á hverjum degi og tók eit­ur­lyf.

„Ég var í dag­neyslu í þrjá mán­uði og var alveg búin á því og end­aði í með­ferð um haustið. Ég var þá orðin and­lega gjald­þrota. Vinur minn, sem hafði farið í með­ferð, hafði sagt að ég þyrfti að fara að gera eitt­hvað í mínum málum og að ég gæti fengið hjálp á Vogi. Ég vissi að ég gæti ekki haldið svona áfram.“

Hún hafði sagt að sér hafi liðið eins og geim­veru.

„Þegar ég fór í með­ferð þegar ég var 18 ára þá leið mér pínu­lítið eins og ég væri komin á plánet­una mína þar sem allir væru geim­verur eins og ég, ekki með neitt á hreinu.“

Fyrst eftir með­ferð­ina dvaldi hún á áfanga­heim­ili fyrir konur, Dyngj­unni. Hún féll nokkrum sinnum næsta ár og fór nokkrum sinnum í með­ferð en komst að lokum á beinu braut­ina

Hilda Jana hóf nám við Fjöl­brauta­skól­ann við Ármúla eftir með­ferð­ina, varð ófrísk og flutti haustið 1996 til Akur­eyrar ásamt þáver­andi sam­býl­is­manni sínum en for­eldrar hennar höfðu þá flutt norður. Hún hóf þá nám við Verk­mennta­skól­ann á Akureyri og varð stúd­ent þaðan árið 1997, 21 árs, og útskrif­að­ist síðan með B.ed gráðu frá Háskól­anum á Akureyri árið 2003.

Ég vil geta horft í spegil og verið stolt af mér.

Hilda Jana lærði margt af þess­ari lífs­reynslu – að vera í neyslu.

„Þótt ég hefði viljað sleppa því að upp­lifa þetta þá bý ég alltaf að þess­ari reynslu. Ég held að ég hafi í fyrsta lagi lært ofboðs­lega mikið um þakk­læti, lært að bera virð­ingu fyrir sjálfri mér og öðrum og að hafa meiri skiln­ing á því hvað við erum öll ólík en á sama tíma svo breysk og brot­hætt. Ég bý alveg rosa­lega mikið að bæði þessum með­ferðum og allri þess­ari vinnu. Ég fór til sál­fræð­inga og fór að hug­leiða og hreyfa mig. Mér finnst ég ennþá byggja á þeim grunni sem ég fékk í gegnum þetta ferli. Ég er þakk­lát fyrir það en ég hefði alveg viljað læra þetta án þess. Mér finnst þetta hafa mótað lífs­við­horf mitt og þetta hefur kennt mér að meta þetta smáa, meta mig og fjöl­skyldu mína. Það var ynd­is­legt að sjá eftir þetta tíma­bil hvað fjöl­skylda mín er ynd­is­leg og það var erfitt að horfast í augu við hvað ég hafði verið erfið.“

Brjálæðislega hrædd

Hún var komin norður með þáver­andi kærasta sínum og þar fædd­ist dóttir þeirra í jan­úar árið 1997.

„Ég var svo mik­ill krakki. Ég vissi ekk­ert hvað ég væri að fara út í. Auðvitað breytti fæð­ing dóttur minnar öllu líf­inu. Á auga­bragði var ég allt í einu ekki númer eitt heldur eitt­hvað líf sem ég bar ábyrgð á sem var mik­il­væg­ara en allt annað. Tilkoma hennar breytti öllu. Hún var auga­steinn minn sem allt sner­ist um.“

Sambandi Hildu Jönu og barns­föður hennar lauk fjórum árum síðar.

Ég þarf að hugsa rosa­lega vel um mig. Ég hef bara þessa and­legu veik­leika.

„Við vorum óskap­lega miklir vinir en það er rosa­legt skip­brot þegar maður er búinn að vera með ein­hverjum í sex ár. Við vorum trú­lofuð.“

Hún kynnt­ist núver­andi eig­in­manni sínum, Ingvari Má Gísla­syni, um fjórum mán­uðum síðar. Hann var þjálf­ari Mor­físliðs Verk­mennta­skól­ans á Akureyri og vildi sam­eig­in­legur vinur þeirra að þau hitt­ust og myndu ræða saman um femín­isma.

„Það var það málið sem liðið átti að ræða um í keppn­inni og vinur minn vissi að ég hefði sterkar skoð­anir á jafn­rétt­is­málum.“

Þau hitt­ust, ræddu um fem­inísma og urðu bál­skotin í hvort öðru.

Hún hlær.

Hvað heill­aði hana við Ingvar?

„Hann er ótrú­lega skemmti­legur, blíður, hug­ul­samur, klár og heill­andi. Hann heill­aði mig hrein­lega upp úr skónum. Við kynnt­umst í októ­ber og urðum form­lega kærustupar í des­em­ber og þá fór ég ásamt dóttur minni í jóla­boð til fjöl­skyldu hans. Hann fór eig­in­lega ekk­ert heim eftir okkar fyrstu kynni. Við vorum sann­færð um það frá alveg frá byrjun að þetta væri bara málið.“

Það var þessi ofboðs­lega hræðsla; stöðuga, við­var­andi hræðsla sem lam­aði mig á sínum tíma. Kannski finnst ein­hverjum þetta hljóma dramat­ískt en lík­am­inn gaf undan.

Hilda Jana og Ingvar eign­uð­ust saman tvær dætur sem í dag eru 15 og 16 ára.

Elsta dóttir Hildu Jönu hefur glímt við þung­lyndi og kvíða eins og móðir sín og fór eins og hún í neyslu á ung­lings­ár­unum.

„Það var auð­vitað ofboðs­lega sárs­auka­full upp­lifun og gerði mann svo­lítið hjálp­ar­vana að geta ekki aðstoðað betur en á sama tíma er það stór­kost­legt að fylgj­ast með henni blómstra í dag; hún blómstrar eins og feg­ursta blóm,“ segir Hilda Jana en dóttir hennar fór í með­ferð fyrir nokkrum árum og klárar háskóla­nám næsta vetur.

„Ég held að ekk­ert hafi haft eins mikil áhrif á mig eins og þegar hún var í neyslu. Ég gjör­sam­lega bug­að­ist bæði and­lega og lík­am­lega. Mér fannst vera erf­ið­ara að upp­lifa hana í neyslu heldur en sjálfa mig. Það var þessi ofboðs­lega hræðsla; stöðuga, við­var­andi hræðsla sem lam­aði mig á sínum tíma. Kannski finnst ein­hverjum þetta hljóma dramat­ískt en lík­am­inn gaf undan. Ég fékk illt í bakið, mag­ann og höf­uðið og var alveg ónýt. Þegar hún fór síðan í með­ferð þá dvaldi ég í fjórar vikur á heilsu­stofn­un­inni í Hvera­gerði til að byggja mig upp. Þetta var búið að vera hræði­legt. Ég held að það sé ekk­ert annað orð yfir það að ótt­ast að missa barnið sitt. Ég var sjúk­lega hrædd um dóttur mína. Ég var brjál­æð­is­lega hrædd um að missa hana.“

Þegar hún fór síðan í með­ferð þá dvaldi ég í fjórar vikur á heilsu­stofn­un­inni í Hvera­gerði til að byggja mig upp. Þetta var búið að vera hræði­legt.

Mér leið hryllilega

Eftir að Hilda Jana flutti norður vann hún um tíma í for­varn­ar­fræðslu og vann á með­ferð­ar­heim­ili. Hún fór síðan í kenn­ara­nám við Háskól­ann á Akureyri og varð for­maður félags stúd­enta við Háskól­ann á Akureyri og sem slíkur vann hún þátt um skól­ann sem var birtur á sjón­varps­stöð­inni Aksjón.

„Sem for­maður félags­ins var ég að reyna að vekja athygli á skól­anum og óskaði eftir því að þessi litla sjón­varps­stöð gerði þætti um Háskól­ann á Akureyri. Þeir sögðu að það væri alveg ger­legt ef ég tæki að mér að sjá um þætt­ina. Það var ekki það sem ég ætl­aði mér en það end­aði þannig að fyrsta starfið mitt í fjöl­miðlum var að gera hinn epíska þátt Háskóla­hornið með Baldvin Z á hinni feikifínu sjón­varps­stöð Aksjón.“

Jú, bolt­inn fór að rúlla og vann hún hjá Aksjón 70% vinnu síð­asta árið sitt við skól­ann. Eftir það var ekki aftur snúið í mörg ár. Hún varð síðar frétta­maður á Aksjón, Stöð 2 og RÚV og síðar fram­kvæmda- og sjón­varps­stjóri á N4.

„Ég heill­að­ist mjög fljótt af fjöl­miðl­unum. Mér fannst þetta alveg brjál­æð­is­lega skemmti­legt og áhuga­vert og var ráðin í sum­ar­starf hjá stöð­inni. Í kjöl­farið var gerður samn­ingur við Stöð 2 um að Aksjón gerði fréttir fyrir þá á Norð­ur­landi. Ég átti eitt ár eftir í kenn­ara­nám­inu og ég heill­að­ist bara alger­lega þannig að ég var eig­in­lega komin í 70% vinnu með síð­asta árinu í nám­inu. Ég fór síðan að kenna aðeins en ég var alltaf við­loð­andi Aksjón þangað til ég fór að vinna hjá RÚV árið 2006. Ég missti síðan vinn­una þar árið 2009 í sam­drætti eftir hrunið; mér leið satt best að segja hrylli­lega þegar ég missti vinn­una hjá RÚV. Mér fannst ég rosa­lega mik­ill kúkur í laug­inni.“

Hún íhug­aði í kjöl­farið og í hrun­inu að sækja jafn­vel um vinnu í Noregi en það var ekki um auð­ugan garð að gresja á vinnu­mark­aðnum. Hún fékk svo vinnu hjá sjón­varps­stöð­inni N4.

„Það hafði verið slökkt á stöð­inni og var það Þor­valdur heit­inn Jónsson sem réð mig en hann var ynd­is­legur maður og fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Það voru auk mín, sem var eini dag­skrár­gerð­ar­mað­ur­inn, tveir tækni­menn í vinnu og eini tekju­grunn­ur­inn voru bæj­ar­stjórn­ar­fundir sem voru teknir upp. Við fórum síðan að leika okkur; við ákváðum til dæmis að fjalla um vélsleða og fórum þá upp á Súlur á vélsleða og fjöll­uðum um vélsleða með löngum við­tölum. Það var síðan sami þáttur sýndur á hálf­tíma fresti allan sól­ar­hring­inn. Svo leið tím­inn og kom í ljós í Gallup-mæl­ingu að áhorf var mikið og við sáum að við þyrftum að gera eitt­hvað meira.“

Það hefur auð­vitað verið sér­stak­lega spenn­andi verk­efni að prófa að afnema minni- og meiri­hluta í bæj­ar­stjórn.

Og þau gerðu eitt­hvað meira og nokkrum árum síðar voru starfs­menn orðnir 18 og Hilda Jana orðin fram­kvæmda- og sjón­varps­stjóri á N4.

„Ég elskaði að taka við­töl. Við höfum öll sögu að segja og við erum öll merki­leg og mik­il­væg. Svo finnst mér vera mik­il­vægt að íbúar um allt land taki þátt í sam­fé­lags­um­ræð­unni og það er mikið ríki­dæmi að hafa ferð­ast um allt svæðið og kynnst fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum og fá inn­sýn inn í umhverfið mitt.“

Hilda Jana vann hjá N4 þar til hún ákvað að fara í fram­boð í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum árið 2018.

Byggðajöfnuður

Hvers vegna að fara út í stjórn­mál?

„Það hafði blundað lengi í mér. Ég held að það sé engin til­viljun að margir fjöl­miðla­menn hafa áhuga á stjórn­málum og öfugt. Fjöl­miðla­menn hafa áhuga á sam­fé­lag­inu. Kona sem hafði verið með mér í kenn­ara­nám­inu á sínum tíma minnti mig á það á Facebook nýlega að ég hefði þá sagt við hana að ég ætl­aði mér að fara á þing en að ég ætl­aði bara að mennta mig fyrst. Þannig að þetta er ekk­ert nýtil­komið. Ég hafði ekki tekið þátt í flokkspóli­tísku starfi áður en ég bauð mig fram 2018 en hafði haft gríð­ar­lega mik­inn áhuga á sam­fé­lag­inu mínu og reynt að hafa jákvæð áhrif á það. Ég var bún að vera meira og minna í fjöl­miðlum í 18 ár þegar mér bauðst að fara í sveit­ar­stjórn­ar­málin. Það var mikið heilla­skref og kom held ég engum á óvart sem þekkir mig.“

Hvers vegna Sam­fylk­ingin?

„Sam­fylk­ingin hefur alltaf verið sá flokkur sem ég hef sam­samað mig best við hug­mynda­fræði­lega. Ég hef alltaf horft til jafn­að­ar­manna á hinum Norð­ur­lönd­unum og þessi skand­in­av­íska hug­mynda­fræði­lega nálgun hefur alltaf heillað mig mest.“

Hilda Jana segir að í hlut­verki bæj­ar­full­trúa hafi hún lagt mikið af mörkum í verk­efnum lands­hluta­sam­tak­anna en hún er einnig for­maður Samtaka sveit­ar­fé­laga og atvinnu­þró­unar á Norð­ur­landi eystra.

„Við sam­ein­uðum þrjú félög, AFE, AÞ og Eyþing, í ein sam­tök sveit­ar­fé­laga og atvinnu­þró­unar á Norð­ur­landi eystra eða SSNE. Það fór mikil vinna og kraftur í að móta þau sam­tök sem ég er ofboðs­lega stolt af að hafa verið þátt­tak­andi í því. Ég finn strax að sam­tökin eru mik­il­vægur og öfl­ugur sam­starfs­vett­vangur sveit­ar­stjórna á svæð­inu auk þess að vera mik­il­vægur sam­starfs­vett­vangur ríkis og sveit­ar­fé­laga. Ég gæti listað upp heil­mikið af verk­efnum sem ég er stolt af í starfi mínu í bæj­ar­stjórn en mín upp­lifun er að mik­il­væg­ast af öllu sé að það gerir í raun eng­inn einn neitt í stjórn­mála­starfi, enda þarf á end­anum alltaf að ná að minnsta kosti helm­ings stuðn­ingi við öll fram­fara­mál. Þess vegna skiptir sköpum að vera kraft­mik­ill hluti af öfl­ugu teymi og það er ég sann­færð um að ég hafi verið. Það hefur auð­vitað verið sér­stak­lega spenn­andi verk­efni að prófa að afnema minni- og meiri­hluta í bæj­ar­stjórn. Mik­il­væg­ast er síðan auð­vitað að vera trúr sinni hug­mynda­fræði, missa ekki sjónar af heild­ar­mark­miðum og gleyma því aldrei að kjörnir full­trúar eru þar í umboði almenn­ings. Þá finnst mér ákaf­lega mik­il­vægt að taka þátt í þroskaðri sam­fé­lags­um­ræðu og bera virð­ingu fyrir því að það eru ekki og verða aldrei allir sam­mála um allt. Maður má hins vegar ekki láta það stöðva sig í að berj­ast fyrir fram­fara­mál sem maður hefur ein­læga trú á, á sama tíma og sú umræða getur og á að mínu mati að grund­vall­ast á mann­virð­ingu.“

Svo hef ég mik­inn áhuga á mál­efnum tengdum and­legu heil­brigði, sem gefur kannski auga leið.

Hilda Jana er spurð hvað hún hafi fram að færa ef hún kemst á þing.

„Ég brenn fyrir jöfn­uði. Sér­stak­lega byggða­jöfn­uði. Og mér finnst ég hafa mikið fram að færa í því með hvaða hætti við þurfum að byggja á heild­stæðri nálgun á því hvernig við ætlum að byggja upp þetta land með sterka höf­uð­borg og öfl­uga lands­byggð. Það er verk­efni sem ég tel að ég geti lagt lóð á vog­ar­skál­arnar við að gera betur. Upplifun mín er að við séum að van­nýta hluta lands­manna sem telja um 36% en það eru þeir sem búa utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Við höfum ótrú­leg tæki­færi til að gera betur þar. Ég bind vonir við að geta verið öfl­ugur þátt­tak­andi í því að geta gert gott sam­fé­lag betra og geta haft áhrif sér­stak­lega á byggða­þróun í land­inu. Svo hef ég mik­inn áhuga á mál­efnum tengdum and­legu heil­brigði, sem gefur kannski auga leið.“

Ekki Duracell-kanína

Hún tal­aði um þung­lyndi og kvíða. Það er eitt­hvað sem hefur fylgt henni í gegnum lífið og í dag er hún með verk­færi til að berj­ast.

„Það hafa í gegnum árin komið sveiflur í því öllu saman. Þetta er eitt­hvað sem maður lærir að lifa með og vinna úr. Það er hins vegar ekki hægt að kveikja og slökkva í þeim efnum. Ég fékk á sínum tíma fullt af tólum og tækjum til þess að vinna með sjálf og það eru þrjú atriði sem ég þarf alltaf að hafa í huga: Er ég að heyfa mig, borða og sofa hæfi­lega? Og ég þarf að opna mig og tala um hlut­ina ef eitt­hvað gengur á og taka líf­inu ekki of alvar­lega.

Ég þarf að hugsa rosa­lega vel um mig. Ég hef bara þessa and­legu veik­leika. Það er eitt­hvað að fara að ger­ast þegar ég verð þreytt og mig langar til að vera í friði og þá hef ég þessa fyrr­nefndu þrjá þætti í huga. Þeir þrír þættir er eins og grunn­ur­inn að hús­inu mínu; ef þeir eru ekki í lagi þá er eig­in­lega ekki hægt að fara að vinna í neinu öðru. Það er mín reynsla. Síðan get ég byggt ofan á þetta hús með hug­leiðslu, jóga, önd­unaræf­ingum og sam­veru við fjöl­skyldu og vini. Svo á ekki að hika við að leita sér sér­fræði­að­stoðar til dæmis sál­fræð­ings þegar maður er kom­inn upp við vegg. Ég hef gert það til dæmis eftir að dóttir mín fór í neyslu. Ef ég fæ mik­inn kvíða þá er ákaf­lega verð­mætt að muna að hann líður hjá.“

Upplifun mín er að við séum að van­nýta hluta lands­manna sem telja um 36% en það eru þeir sem búa utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Hilda Jana hefur af og til í gegnum árin tekið þung­lyndis- og kvíða­lyf.

„Þau geta hjálpað en eru ekki töfra­lausn. Þetta er bara vinna eins og hvað annað og tekur oft svo­lít­inn tíma.“

Eig­in­maður og þrjár dætur.

Hilda Jana seg­ist vera mikil fjöl­skyldu­mann­eskja. Og fjöl­skyldan á hund. Það er Cavalier King Spaniel-tíkin Gola. Hún er þriggja ára, algert æði og finnst gott að láta knúsa sig.

Hilda Jana hjólar, gengur, skokkar og fer á göngu­skíði þegar er nægur snjór; hún datt einmitt í vetur þegar hún var á göngu­skíðum og sleit lið­band í öðrum þum­al­fingrinum og er að jafna sig eftir aðgerð. Hún lyftir upp hend­inni og blasir við mynd­ar­legt ör.

„Ég hef stundum sagt að ég sé með „kveikt og slökkt takka“; stundum er ég til í að vera á milljón en næstu stund til í að gera nákvæm­lega ekki neitt. Mér finnst stundum alveg geggjað að vera ein heima eða með fjöl­skyld­unni og kúra uppi í sófa. Ég er ekki Duracell-kan­ína sem er alltaf að. Ég er búin að læra að vera dug­leg að hvíla mig og hlusta til dæmis á hljóð­bók og hafa það nota­legt.“

Hilda Jana Gísla­dóttir er orku­bolti sem áður var gaur sem klifraði upp í tré og veiddi síli. Hún er hætt að rífa kjaft en hver veit hvað mun ger­ast ef hún fer á þing þar sem oft er verið að munn­höggvast. Tíminn mun leiða það í ljós.

Hvað með draumana almennt?

Hún seg­ist vera búin að vera að lifa drauma sína í mörg ár.

Ég brenn fyrir jöfn­uði. Sér­stak­lega byggða­jöfn­uði.

„Draum­arnir mínir snú­ast um að eiga þessa ynd­is­legu fjöl­skyldu, reyna að láta gott af mér leiða og leggja mitt af mörkum til að gera gagn. Lífið leiðir mig alltaf eitt­hvert áfram. Kannski mun ég setj­ast á þing og það gæti orðið brjál­æð­is­lega skemmti­legt. Ef ekki þá held ég kannski áfram í sveit­ar­stjórn­ar­málum. Ef ekki þá er ég búin að vera að leika mér í masters­námi í fjöl­miðla- og boð­skipta­fræði.

Ég er búin að vanda mig eins og ég get í líf­inu, hef reynt að vera lær­dóms­fús og reynt að gera allt sem í mínu valdi stendur til að láta gott af mér leiða. Og ég vil halda áfram að gera það. Ég vil geta horft í spegil og verið stolt af mér. Það er minn æðsti mæli­kvarði. Hann teng­ist minni eigin sam­visku. Það er eini raun­veru­legi dóm­ur­inn að geta sagt við sjálfa mig að ég sé búin að gera allt sem ég get og að ég vinni af heil­indum og kær­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við