Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landsþekktur leikari nafngreindur á Facebook og sakaður um kynferðisbrot gegn barni sínu

Landsþekktur leikari nafngreindur á Facebook og sakaður um kynferðisbrot gegn barni sínu
Myndin teng­ist frétt­inni ekki með beinum hætti.

„Fjöl­skyldan getur ekki lengur horft upp á ger­enda­með­virkni sam­fé­lags­ins og skrímsla­væð­ingu ger­enda né heldur skömm­ina sem sonur okkar upp­lifir,“ segir meðal ann­ars í færslu á Facebook síðu sam­tak­anna Líf án ofbeldis. Þar stíga aðstand­endur barns lands­þekkts leik­ara og saka hann um kyn­ferð­is­brot gegn því. Þar er leik­ar­inn jafn­framt nafn­greindur.

Mikið hefur verið rætt um leik­ar­ann á síðu Lífs án ofbeldis en hingað til hefur það verið nafn­laust.

Leik­ar­ar­inn hefur margoft ásakað barns­móður sína í fjöl­miðlum um tálmun og lýst sig sak­lausan af kyn­ferð­is­of­beldi. Hefur hann komið fram opin­ber­lega og lýst sig órétti beittan jafnt af barna­vernd­ar­yf­ir­völdum og barns­móður. Hér sé um heift­úð­uga umgengnis- og for­ræð­is­deilu að ræða.

Barnið er í dag 11 ára gam­alt en leik­ar­inn hefur ekki séð það frá því það var 6 ára gam­alt.

Á síð­unni Líf án ofbeldis á Facebook, þar sem finna má þús­undir með­lima, var leik­ar­inn nafn­greindur um helg­ina og eft­ir­far­andi kom þar fram:

„Þjóð­þekktur ein­stak­lingur ásak­aði barns­móður sína í fjöl­miðlum um tálmum og lýsti sig sak­lausan af kyn­ferð­is­of­beldi. Barna­vernd tók málið fyrir og tók rök föður til greina. Vegna mis­vísandi gagna frá barna­vernd og vegna þess að málið var fellt niður hjá lög­reglu var ákveðið að bjóða þeim feðgum að hitt­ast í við­tölum við með­ferð­ar­að­ila á vegum barna­verndar. Var það gert með sam­þykki og móð­ur­fjöl­skyld­unnar. Til­gangur við­tal­anna var að gefa þeim feðgum tæki­færi til að umgang­ast og byggja upp sam­band að nýju. Viðtölin stóðu yfir í fjóra mán­uði þar sem bæði faðir og barnið mættu saman.

Barnið tjáði sig um kynferðisofbeldið í viðtölunum við föður og var hissa á að faðir sagðist ekki muna eftir ofbeldinu

Barnið rifj­aði því upp með nákvæmum hætti fyrir föður í við­ur­vist með­ferð­ar­að­ila í þeirri von að fá beiðni um fyr­ir­gefn­ingu. Faðir óskaði í kjöl­farið eftir nýjum með­ferð­ar­að­ila fyrir sig og barnið. Barnið hélt áfram við­tölum við sama með­ferð­ar­að­ila.“

Einnig er birt brot úr skýrslu með­ferð­ar­að­ila frá árinu 2019, sem er eitt af loka­gögn­unum í máli barns­ins. Segir þar meðal ann­ars:

„Und­ir­rituð hefur leitað álits Barna­húss og barna­geð­læknis vegna umræddrar vinnu með fjöl­skyld­unni. Það er mat und­ir­rit­aðrar að [nafn barns] sé að segja satt varð­andi upp­lifun sína af kyn­ferð­is­legur áreiti/ofbeldi af hálfu föður og þörf sé að taka málið alvar­lega.

Und­ir­rituð leggur til að ef [nafn barns] vill hitta föður áfram fari sá hitt­ingur áfram­hald­andi á stofu und­ir­rit­aðrar ásamt und­ir­rit­aðri. Einnig að ann­að­hvort móðir eða fóst­ur­faðir sé íná­an­legur á bið­stofu.“

Í kjöl­far nafn­birt­ingar birti fjöl­skylda barns­ins yfir­lýs­ingu þar sem hún gagn­rýnir harð­lega það sem þau kalla ger­enda­með­virkni sam­fé­lags­ins. Þar segir meðal ann­ars.

„Í fyrra­dag birt­ist grein á net­inu þar sem lýs­ingar meints ger­anda sonar okkar á því hvernig hann sleikir píkur er tekið fyrir sem aðal­efni. Fyr­ir­sögnin er „ógeðs­lega góður í að sleikja píkur“ og fyrir neðan er mynd af meintum ger­anda að sýna hvernig hann fer að með því að sleikja ís. Mynd­skeið af þessu fylgir svo með neðst í frétt­inni.“

Fjöl­skyldan segir að ein­hverra hluta vegna hafi þetta verið drop­inn sem fyllt mæl­inn hjá þeirra fólki sem kall­aði eftir að þau myndu eina ferð­ina enn stíga fram og verja son sinn og önnur börn fyrir ger­anda­með­virkni sam­fé­lags­ins.

„Við vorum þó ekki sannfærð því barátta okkar hefur hingað til alfarið snúist um það að hlúa að og styðja son okkar en ekki að tjá okkur um meintan geranda.

Umrædd grein fangar skilj­an­lega athygli ung­linga og var m.a. til umræðu í skóla sonar okkar. Félagar hans hlæja að grein­inni og þætt­inum sem um ræðir og ræða það hvað meintur ger­andi er góður í því að sleikja píkur. Sonur okkar mætir umfjöll­unum um mein­tan ger­anda í umhverfi sínu á ólík­leg­ustu stöðum,” segir í færsl­unni.

Þau segja son sinn vera orð­inn eldri og gas­lýs­ing meints ger­anda, sem þau hafi falið honum, sé farin að verða honum erfið og sárs­auka­full. „Við höfum lagt okkur fram við að fela fyrir syni okkar ástandið sem meintur ger­andi veldur en í dag er það tölu­vert erf­ið­ara. Í langan tíma hefur sonur okkar sig hvergi getað hreyft nema að sjá mein­tan ger­anda í umhverfi sínu. Gegn okkar vit­und googlaði hann mein­tan ger­anda og komst þar í fjöl­miðlaum­fjall­anir um sitt eigið mál og sá þar að meintur ger­andi hefði opin­ber­lega logið gegn sér með stuðn­ingi hund­raða manna, með til­heyr­andi áfalli.“

Í færsl­unni segir fjöl­skyldan að fjöl­skyld­unni hafi verið haldið í helj­ar­g­reipum af meintum ger­anda í til­raun hans til að kæfa orð barns­ins. „Á síð­ustu 4 árum hefur fjöl­skyldan ein­beitt sér að bata, með­ferðum og gert allt sem í sínu valdi stendur til að verja strák­inn og byggja hann upp í sam­starfi við fag­að­ila og skóla. Það er það sem skiptir máli.

Þau segja sitt hlut­verk vera að vernda son sinn, trúa honum og styðja.

„Áfall barn­ungra þolenda í málum eins og sonar okkar er ekki ein­göngu ofbeld­is­brotin sem slík heldur einnig það að mann­eskja sem það elskar og treystir hafi brotið á því. Að mann­eskjan hafi mis­notað sak­leysi þess sem barn. Og í til­felli sonar okkar að sú mann­eskja ljúgi upp á það með stuðn­ingi hund­raða manna. Að vinir hans tali um mein­tan ger­anda og að hann sé svo góður í því að sleikja píkur. Áfallið er einnig það að meintur ger­andi hangi uppi á öllum aug­lýs­inga­skiltum borg­ar­innar, strætó­skýlum, í sjón­varp­inu, á net­inu, bros­andi á meðan þol­and­inn les lygar um sig í fjöl­miðlum og sinnir með­ferðum og reynir að skilja ofbeldið sem hann varð fyrir.

Áfallið fyrir son okkar er það að skömminni sé haldið að honum, að sonur okkar líði fyrir kynferðisofbeldið á sama tíma og meintur gerandi skemmtir þjóðinni.“

Fjöl­skyldan kveðst ætla að skila skömminni og ofbeldi eigi aldrei að vera einka­mál þess sem því fyrir verður.  „Sonur okkar hefur fengið þá fræðslu frá fag­að­ilum og reynir að lifa sam­kvæmt því. Þegar fólki er nauðgað upp­lifir það skömm, þegar það er mis­notað upp­lifir það skömm, þegar fólk upp­lifir ofbeldi yfir­höfuð, börn og full­orðnir, upp­lifir það skömm og orðin kæfast í skömm sem verður tól ger­enda til að halda uppi lygum og efla sjálfs­mynd sína útá­við sem spil­ast gegn þolendum og kæfir þá enn frekar í þögn­inni.

Þögnin er rofin. Við bjóðum hvorki þér né sam­fé­lag­inu upp á gas­lýs­ingu meints ger­anda lengur. Við bjóðum ekki syni okkar skömm­ina lengur. Við höfum hátt og gefum valdið aftur til sonar okkar og kjósum líf án ofbeldis”.

Þrátt fyrir til­raunir feng­ust ekki við­brögð frá leik­ar­anum við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við