Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

AFHJÚPUN – Okrað á eldri borgurum á dvalarheimilum

AFHJÚPUN – Okrað á eldri borgurum á dvalarheimilum

Okrað er á eldri borg­urum sem dvelja á dval­ar­heim­ilum eða þjón­ustu­í­búðum þegar kemur að snyrti­þjón­ustu, þar á meðal fót­snyrt­ingu. Þeir eru látnir borga svipað eða meira en á fóta­að­gerða­stofum í höf­uð­borg­inni en fá fyrir það helm­ingi minni þjón­ustu. Mannlíf ræddi við 93 eldri borg­ara sem greitt hafa fyrir fót­snyrt­ingu á dval­ar­heim­il­inum.

Eldri borg­arar sem búa á dval­ar­heim­ilum eða þjón­ustu­í­búðum um allt land, sækja flestir þar inn­an­húss ýmsa þjón­ustu, þar á meðal fót­snyrt­ingu. Mannlíf hefur síð­ustu mán­uði, eftir ábend­ingar aðstand­enda, skoðað þá þjón­ustu sér­stak­lega. Ljóst þykir að það er allt annað en vel að þessum málum staðið. Verk­takar sjá um þjón­ust­una í flestum til­fellum og ráða þar með verði sem og tíma­lengd með­ferða.

Mjög erfitt að fá uppgefin verð

Mannlíf reyndi að fá upp­gefin verð hjá mörgum stofn­unum víðs­vegar um landið. Það reynd­ist allt annað en auð­velt og í flestum til­fellum von­laust. Ekki í einu ein­asta til­felli þegar hringt var í rekstr­ar­að­ila dval­ar­heim­il­is­ins gat við­kom­andi svarað því hvað kost­aði að fara í fót­snyrt­ingu né hvar verð­lista væri að finna. Bent var á verk­tak­ana sjálfa og það var allt annað en auð­velt að fá upp­gefin verð og tíma­lengd með­ferða. Farið var í vörn og loðin svör feng­ust, það er að segja ef þau feng­ust.

Annarri aðferð beitt

Sökum þess hve erfitt var að fá þessar upp­lýs­ingar var ákveðið að taka aðra nálgun á málið. Það var gert með því að hafa sam­band við fólkið sem er að nýta sér þessa þjón­ustu, eldri borg­ar­ana sjálfa. Svör feng­ust frá 93 ein­stak­lingum sem nýta sér þjón­ustu fóta­að­gerða­fræð­inga sem starfa innan veggja dval­ar­heim­ila sem verk­takar.

Eldri borgarar hlunnfarnir

Þegar verð­listar fóta­að­gerða­fræð­inga eru skoð­aðir, þeirra sem vinna á stofum víðs­vegar um landið, kemur í ljós að með­ferð fyrir eldri borg­ara er ein klukku­stund sem felur í sér, fyrir utan allt hefð­bundið, nudd í lok með­ferðar. Það væri mjög skrítið ef eldri borg­arar fengju ekki nudd, þeir þurfa svo sann­ar­lega á því að halda. Annað gildir þó um fólkið sem þarf að nýta sér þjón­ust­una á dval­ar­heim­ilum. Þar er þeim sagt að þau séu að fá afslátt en eru að borga svipað verð og er upp­gefið fyrir eldri borg­ara á stofum úti í bæ sem felur í sér einnar klukku­stundar með­ferð. Nið­ur­staða könn­unar Mannlífs sýnir að hver og einn ein­asti aðili af þeim 93 sem talað var við er ekki lengur en 20 – 30 mín­útur í með­ferð­inni á dval­ar­heim­ilum. Einungis 10 aðilar sögð­ust hafa fengið smá­vegis nudd í lok með­ferð­ar­innar, hinir 83 höfðu aldrei fengið nudd ein­ungis borin olía á tær og krem á fæt­urna.

Verðin

Samkvæmt verð­skrám fóta­að­gerða­stofa sem Mannlíf skoð­aði liggur verð sem eldri borg­arar  greiða fyrir fóta­að­gerð á bil­inu 7.900 – 10.000 krónur. Það er fyrir klukku­tíma þjón­ustu. Það sem eldri borg­arar eru að greiða fyrir 20 til 30 mín­útna þjón­ustu inni á dval­ar­heim­ilum liggur verðið á bil­inu 8000 til 10.900 krónur. Flestum af þeim 93 sem svör­uðu eða 72 ein­stak­lingar sögðu að þeim væri tjáð það að verðið sem þau greiddu væri með sér­stökum afslætti fyrir eldri borg­ara.

Siðferðislega rangt

Þetta er síður en svo í lagi. Í fyrsta lagi eiga að vera aðgengi­legar verð­skrár fyrir fólkið sjálft sem og ætt­ingja þess, fyrir allar með­ferðir sem boðið er upp á á dval­ar­heim­il­unum. Í öðru lagi á ekki að láta eldri borg­ara né nokkurn annan borga helm­ingi hærra verð og rúm­lega það, sem rukkað er á stofum úti í bæ fyrir 20 til 30 mín­útna með­ferð. Í þriðja lagi á ekki að hlunn­fara þennan hóp sem þarf lík­lega meira en nokkur annar á nuddi að halda  vegna þreytu, verkja og skerts blóð­flæðis. Ljóst er að hér þarf að athuga málin og annað hvort lækka verð­skrár í sam­ræmi við þá þjón­ustu sem er veitt eða það sem best væri, að veita einnar klukku­stundar með­ferð með öllu sem inni­falið er í verð­inu ann­ars staðar.

Myndir þú sætta þig við þetta ?

Eldri borg­arar sem nota þjón­ust­una koma á fjög­urra til sex vikna fresti, það er upp sett af með­ferð­ar­að­il­unum sjálfum. Það sem einnig var mjög áber­andi var það að 70 pró­sent þeirra sem svör­uðu höfðu lent í því að vera höfð óeðli­lega lengi í fóta­baði eða ein­fald­lega látin bíða því með­ferð­ar­að­il­inn var í sím­anum eða að sinna öðrum erindum á meðan á með­ferð átti að standa yfir. Svona þjón­ustu myndu fæstir sætta sig við á þeirra með­ferð­ar­tíma sem greitt er fyrir.

Útsöluvörur á uppsprengdu verði

Til við­bótar við allt annað kom í ljós hjá nokkuð mörgum þátt­tak­endum að það tíðkast að ónefndar fata­búðir komi á dval­ar­heim­ilin með fatnað til sölu, sem er auð­vitað frá­bær þjón­usta. Vanda­málið er að þangað er oft mætt með restar eftir útsölur á upp­sprengdu verði. Þetta er alls ekki í lagi, svona á hrein­lega alls ekki að koma fram við nokkurn mann hvað þá eldri borg­ara.

Stjórnendur verða að bregðast við

Mannlíf skorar á stjórn­endur dval­ar­heim­ila að gera eitt­hvað í þessum málum sem og að hafa verð á allri þjón­ustu sem íbúum stendur til boða aðgengi­lega hvort sem það er fót­snyrt­ing eða hár­snyrt­ing, ástandið hvað þessa þjón­ustu­þætti varðar er ekki nógu gott, ekki síst með til­liti til verð­lagn­ingar sem er í of mörgum til­fellum allt of há miðað við veitta þjón­ustu. Að auki eru eldri borg­arar í mörgum til­fellum sá hópur sem ekki vill eða þorir að kvarta og lætur því ýmis­legt yfir sig ganga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi