Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Krambúðin nýtir sér að fólk hefur ekki val – VERÐKÖNNUN – Sláandi verðmunur allt að 54 prósent

Krambúðin nýtir sér að fólk hefur ekki val – VERÐKÖNNUN – Sláandi verðmunur allt að 54 prósent

Þegar verð­lag í Kram­búð­inni. sem rekin er af Samkaup, er athugað, sést að álagn­ingin er gríð­ar­leg eða allt að 54 pró­sent. Skoðaðar voru 29 vöru­teg­undir og reynd­ust 14 þeirra með 15 til 25 pró­sent hærra verð en Nettó, 14 vöru­teg­undir með 25 til 54 pró­sent hærra verð og ein vara með undir 10 pró­sent hærra verð.

Samkaup rekur Kram­búð­ina ásamt Nettó, Kjör­búð­inni, Samkaup Strax og Iceland. Reknar eru 22 versl­anir undir því nafni víðs­vegar um landið. Versl­an­irnar eru skil­greindar af Samkaup sem „þæg­inda­versl­anir“ sem bjóða upp á „fljót­lega og góða nær­ingu“ í amstri dags­ins. Þetta eru svo­kall­aðar ferða­manna­versl­anir en ekki eig­in­legar mat­vöru­versl­anir. Vöru­úr­valið er mjög tak­markað en flest mat­ar­kyns sem þar fæst er frosið og flest skyndi­biti, þurr­vörur, sæl­gæti, gos og orku­drykkir ásamt nið­ur­suðu­vörum og alls ekki verslun sem heilt byggð­ar­lag ætti að þurfa að treysta á sem einu búð­ina sem í boði er. Nánast engar ferskar mat­vörur eru í boði hjá Kram­búð­inni nema kjúklingur og eini fisk­ur­inn sem er í boði er lax.

Mega ekki panta hvað sem er

Mannlíf skoð­aði Kram­búð­ina á Hólmavík sér­stak­lega, verð­lag og annað sem skiptir máli. Í Stranda­byggð búa alls 457 manns sem þyrftu að keyra annað hvort í Borg­ar­nes (161 km) eða á Ísafjörð (222 km) til þess að kom­ast í versl­anir með bæði við­un­andi verð og vöru­úr­val. Yfir vetr­ar­tím­ann getur það verið mjög erfitt og stundum jafn­vel ekki mögu­leiki sökum veð­urs og færðar á vegum. Íbúar á þessu svæði þurfa auk þess að greiða hærra verð fyrir elds­neyti svo þetta er allt annað en auð­velt. Íbúum stendur til boða að panta frá Nettó en ein­ungis þurr­vöru, ekk­ert annað.

 Nið­ur­stöður

Skoðaðar voru 29 vörur sem eru til sölu í Kram­búð­inni á Hólmavík. Til sam­an­burðar voru skoðuð verð hjá Nettó. Ein vara reynd­ist vera með undir 10 pró­sent hærra verð en í Nettó. 14 vöru­teg­undir reynd­ust vera með 15 til 25 pró­sent hærra verð og 14 vöru­teg­undir með 25 til 54 pró­sent hærra verð. Nið­ur­stöð­urnar verða að telj­ast mjög slá­andi og ljóst að álagn­ingin sem Hólm­vík­ingar og nær­sveit­ungar mega búa við er óvið­un­andi og auð­vitað allir aðrir í sam­bæri­legri stöðu.

Stefna Samkaupa stenst ekki

Þegar Kaup­fé­lag Stein­gríms­fjarðar seldi Samkaup rekst­ur­inn í febr­úar 2020 var mark­miðið með þessum breyt­ingum að verslun og þjón­usta við íbú­ana og veg­far­endur myndi hald­ast óskert. Það er rétt rúmt ár síðan yfir­takan átti sér stað og morg­un­ljóst að það er langt því frá verið að halda sig við áður nefnd mark­mið. Það er líka svo­lítið kald­hæðn­is­legt að skoða stefnu Samkaupa sem virð­ist ekki eiga við þá sem þurfa að versla við Kram­búð­ina, þegar horft er til staða á land­inu sem sitja við það borð að hafa ekk­ert val þegar kemur að verslun.

„Stefna Samkaupa er:

Að sinna þörfum viðskiptavina okkar að bestu getu

Að þjóna kröfum viðskiptavina okkar með framúrskarandi hætti

Að gera starfs­fólki okkar kleift að vaxa og dafna í störfum sínum og gæta fyllsta jafn­réttis milli kynj­anna

Markmið Samkaupa er að vera þekkt sem fram­sækið versl­un­ar­fyr­ir­tæki sem er leið­andi í við­skipta­háttum, vöru­gæðum og þjón­ustu. Slík fram­tíð­ar­sýn birt­ist í ásýnd og þjón­ustu­við­móti félags­ins, fjöl­breytni og sveigj­an­leika í rekstri, þjón­ustu og vöru­úr­vali, metn­að­ar­fullu starfs­fólki í öllum versl­unum félags­ins og ekki síst hag­kvæmum rekstri.“

Þegar mán­að­ar­leg til­boð Kram­búð­ar­innar eru skoðuð sérst glögg­lega hvers konar verslun þetta er.
Upp­fyllir alls ekki mann­eld­is­mark­mið

Margir sitja við sama borð

Hólm­vík­ingar og nær­sveit­ungar eru alls ekki þeir einu á land­inu sem þurfa að una því að hafa ein­ungis Kram­búð­ina í byggð­ar­lag­inu. Mikil mót­mæli hafa verið uppi og und­ir­skrift­ar­listar settir í gang til þess að mót­mæla því að ekki sé boðið upp á Kjör­búð­ina í stað Kram­búð­ar­innar sem er með lægra verð og meira vöru­úr­val. Fólk verslar þar í neyð og ekur síðan í mat­vöru­versl­anir, hafi það kost á því. Það er stór hópur fólks sem getur ekki farið annað til þess að versla og treystir því 100 pró­sent á verslun í sínu byggð­ar­lagi. Eldri borg­arar, öryrkjar, fjár­hags­lega illa statt fólk og bíl­laust fólk svo nokkur dæmi séu tekin. Fólkið sem er að mót­mæla er ekki að biðja um að fá risamat­vöru­markað heldur aðeins skárri kost, Kjör­búð­ina sem rekin er af sama fyr­ir­tæki.

Þegar rætt hefur verið við fólk sem þarf að búa við þetta ástand nefna margir að mik­ill hroki komi frá höf­uð­stöðvum Samkaupa.

Ætla mætti að það væri hagur flestra að hafa Kjör­búð­ina í stað Kram­búð­ar­innar. Fólk myndi versla meira í heima­byggð á aðeins sann­gjarn­ara verði og með vöru­úr­val sem væri hægt að sætta sig betur við auk þess sem velta Samkaupa yrði vænt­an­lega meiri. Nettó mætti líka veita fólk­inu betri þjón­ustu hvað varðar vöru­úr­val sem hægt er að panta í vef­verslun Nettó, ekki ein­ungis þurr­vörur.

Hér að neðan er tafla sem sýnir allar vöru­teg­undir og verð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ