Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Móður einhverfs drengs nóg boðið: „Er ekki skólaskylda fyrir öll börn á Íslandi?“

Móður einhverfs drengs nóg boðið: „Er ekki skólaskylda fyrir öll börn á Íslandi?“
Myndin teng­ist ekki grein­inni beint

Ansy Björg var síður en svo ánægð með sum­ar­gjöf Reykja­vík­ur­borgar, eins og hún kallar það, en sonur hennar fékk synjun frá Reykja­vík­ur­borg um inn­göngu í sér­deild fyrir börn með ein­hverfu. Dreng­ur­inn á að hefja skóla­göngu í haust og spyr Ansy: „Er ekki skóla­skylda fyrir öll börn á Íslandi?“

Hún skrifar á blogg­síðu sinni að sonur sinn sem sé með miklar sér­þarfir og þarfn­ist mik­illar aðstoðar við dag­legt líf hafi verið einn af 38 umsækj­endum um inn­göngu í fyrr­nefnda sér­deild, en aðeins átta börn voru tekin inn.

Að mati Reykja­vík­ur­borgar var sonur hennar ekki í mestri þörf fyrir inn­göngu þrátt fyrir „tölu­verða þörf.“

Ansy skrifar: „Er ekki ein­hver skekkja hér? Nú spyr ég mig hvað verður um þessi 30 börn sem þurfa á þess­ari aðstoð að halda?“

Segir Ansy henni hafa orðið ljóst á þeim árum sem hún hefur barist fyrir rétt­indum sonar síns að Reykja­vík­ur­borg hefur mála­flokk ein­hverfra síður en svo í for­gangi og spyr hvort ekki sé aug­ljóst að úrræði fyrir þennan hóp sé ábóta­vant þegar 38 umsóknir ber­ast um skóla­pláss og 30 er hafnað.

Hún skrifar: „Nú erum við að tala um börn sem mörg geta lítið tjáð sig, eru mörg hver með þroska rask­anir, sum með skyn­trufl­anir, svo sem þola illa hávaða, ljós, snert­ingu og allt þar á milli. Einnig eiga þessi börn það til að líða mjög illa í stórum hópum og því fara þau í „meltdown“ og það getur þýtt klukku­tíma af öskri og grát­köstum og þá er dag­ur­inn ónýtur.“

Og heldur áfram: „Nú spyr ég mig ekki bara sem for­eldri barns með sér­þarfir heldur hvað með öll hin börnin? Hvernig gengur kennsla fyrir sig þegar það er barn sem er inn í bekk sem þarf 150% athygli og umönnun, hefur þrá­hyggju til dæmis að kveikja og slökkva ljósin og við erum ekki að tala um einu sinni eða tvisvar, heldur 100 sinnum. Strák­ur­inn minn þarf fullan stuðn­ing og þó því væri mætt, þá er hann ekki að fara að sitja rólegur í 45 mín­útur með fullum bekk að læra dönsku, þar sem hann er ekki einu sinni far­inn að svara nafni.“

Segist Ansy hætt að botna í kerf­inu. Hún segir sig og aðra for­eldra í sömu stöðu þurfa að berj­ast fyrir rétt­indum barna sinna á meðan þau lenda á enda­lausum biðlistum eftir þjálfun og stuðn­ingi og nú sé skóla­kerfið einnig að bregð­ast þeim, áður en skóla­ganga barn­anna sé einu sinni hafin.

„Reiðin er svo mikil, þetta er bara sorg­legt hvernig borgin sinnir OKKAR börnum sem búa hér og vera svo óheppin að fá ekki þá þjón­ustu sem þau þurfa á að halda til að lifa og læra eins og öllum „eðli­legum“ börnum er boðið upp á,“ skrifar Ansy.

Hún spyr sig hvað sé næst.

Ansy seg­ist vera miður sín yfir þeirri stað­reynd að barnið hennar sem á að vera fara byrja í skóla sé búið að fá neitun bæði í sér­skóla og sér­deild. „Ég sé ekki að minn litli ein­hverfi strákur sé að fara í almennan bekk. Hvorki ætla ég að leggja það á hann, mig, kennar­ann né öll hin börnin sem eru í bekknum, enda eiga þau sinn rétt á að læra í friði og ró.“

Og skrifar Ansy að lokum: „Er skóla­skylda bara fyrir þá sem geta verið í skóla?  Eigum við sem for­eldrar barna með sér­þarfir alltaf að brosa og kyngja órétt­læt­inu haf­andi þurft að berj­ast fyrir hverri ein­ustu aðstoð sem börnin okkar hafa þurft á að halda!!!!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við