Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lög leyfa blekkingar og kúgun á neytendum – KÖNNUN

Lög leyfa blekkingar og kúgun á neytendum – KÖNNUN

Mannlíf skoð­aði upp­runa­merk­ingar kjöt­af­urða, lög og reglu­gerðir þar að lút­andi og gerði svo 150 þátt­tak­enda könnun sem sneri að neyt­endum og vit­neskju þeirra um mál­efnið. Í ljós kom að neyt­endur eru ekki upp­lýstir, blekk­ingar, kúg­anir og fleira eru í gangi á mark­aðnum.

Greini­legt er að neyt­endur eru almennt ekki með­vit­aðir um það hvort þeir séu að kaupa íslenskar eða erlendar/inn­fluttar kjöt­vörur. Það er ekki skrítið þegar reglur um inn­flutt kjöt og kjöt­af­urðir eru skoð­aðar. Mannlíf skoð­aði ítar­lega hvað veldur því að 150 manna úrtak fólks taldi sig vera að kaupa íslenskar afurðir sem reynd­ust svo alls ekki vera íslenskar.  Margt annað flétt­að­ist inn í málin sem telja verður mjög und­ar­legt og bein­línis ósann­gjarnt. Ljóst er einnig að íslenskum neyt­endum varðar ekk­ert um það hvað þeir eru að láta ofan í sig né hvaðan það er upp­runnið.

 Innflutt

Lang algeng­ast er að sjá inn­flutt kjöt frá Aust­ur­ríki, Póllandi, Þýska­landi og Spáni þó það sé auð­vitað alls ekki tæm­andi listi. Ljóst er að lög og reglur sem snúa að bændum í áður­nefndum löndum eru allt aðrar en þær sem íslenskir bændur þurfa að fara eftir. Svo eitt dæmi sé tekið, þá mega íslenskir bændur ekki fylla dýrin sín af sýkla­lyfjum í vaxt­ar­hrað­andi til­gangi, sem betur fer. Þú ert það sem þú borðar er alls ekki ein­ungis mál­tæki svo neyt­endur ættu að geta haft allt á hreinu varð­andi þessi mál, en svo er raunin alls ekki. Auðvitað ræður fólk hvað það borðar inn­flutt eða ekki, málið snýst um að fólk fái réttar og góðar upp­lýs­ingar. Margir kæra sig alls ekki um að láta ofan í sig kjöt sem er upp­runnið utan Íslands því hér á landi eru lög og reglur um hvað má og hvað má ekki gefa dýr­unum af lyfjum og öðru, með þeim ströng­ustu, ef ekki þær ströng­ustu. Fyrir marga snýst þetta líka um það hvernig farið er með dýrin.

Hér er Kjöt­bank­inn hrein­lega ekki viss hvaðan nauta­lundin er, Nýja sjá­land EÐA Danmörk !

Ekki í lagi

Fyr­ir­tækjum sem flytja inn kjöt er ekki skylt lögum sam­kvæmt að geta um upp­runa­land sé varan hrá og ein­ungis búið að krydda hana og ekki ef varan er elduð. Lögin gilda ein­ungis um hrátt óunnið kjöt, þá er þeim skylt að geta upp­runa þess. Þetta getur ekki í neinni útfærslu verið í  neyt­endum í hag en með þessu ákvæði er mjög auð­velt að blekkja þá. Smá pipar á nauta­kjöt og þú veist ekki hvaðan það kemur og það getur alls ekki talist við­un­andi fyrir neyt­endur.

Svar Mast

 Loðið

Gömul íslensk rót­gróin fyr­ir­tæki eru mörg ekki svo íslensk lengur en fólk treystir merk­inu og telur sig vera að kaupa íslenskt kjöt. Ali er dæmi um fyr­ir­tæki sem virð­ist vera með meiri hluta kjöt­af­urða sem þeir selja úr inn­fluttu hrá­efni. Þegar merk­ingar á vörum þeirra eru skoð­aðar sést að það er ýmis­legt í gangi. Upp­runa­land Ali beikons er Þýska­land, fyr­ir­tækið verður að merkja það því það er hrátt. Annað er ekki merkt nema ef um íslenskt sé að ræða en jafn­vel þá eru merk­ing­arnar ekki eins.

Nýjasta nýtt er að líma íslenska fánan á það sem á að vera íslenskt kjöt. Við skoðun á mál­inu fannst ein­ungis ein vara frá Ali sem var bæði merkt upp­runa­landi, Íslandi og íslenska fán­ann var einnig að finna á umbúð­unum. Það átti því klár­lega alls ekki að fara fram­hjá neyt­and­anum að þetta væri íslenskt kjöt. Annað kjöt var ekki merkt með upp­runa bara búið að líma á umbúð­irnar íslenska fán­ann. Þetta vekur upp spurn­ingar og grun­semdir, það er mjög auð­velt að segja að lím­miði hafi lent á kjöt­inu fyrir mis­tök en annað gildir ef upp­runa­land er skráð Ísland og það er lím­miði einnig til staðar.

Upp­runa­land ekki merkt og mynd sem er mjög blekkj­andi.
Upp­runa­lands ekki getið en Íslenski fán­inn límdur á umbúð­irnar
Engar upp­lýs­ingar um upp­runa­land
Engar upp­lýs­ingar um upp­runa­land að finna hér
Upp­runa­land ekki til­greint
Upp­runa­land ekki til­greint
Upp­runa­land ekki til­greint
Upp­runa­land ekki til­greint
Upp­runa­land ekki til­greint en kjötið skreytt með lím­mið­anum góða
Upp­runa­land ekki til­greint
Íslensk bjúgu ? Senni­lega ekki því upp­runa­land er ekki merkt …..
Upp­runa­land Ísland og fáni

Eftirlit

Er ein­hver að fylgj­ast með þessum málum svo vel sé ? Svarið er því miður nei. Vilji neyt­andi vera þess full­viss að vera um að varan sé íslensk verður að sneiða hjá öllu nema því sem er merkt Íslandi sem upp­runa­lands.Vörur sem eru ómerktar eru ekki íslenskar þó umbúð­irnar gefi það í skyn, það er ein­fald­lega verið að nýta ákvæði lag­anna sem segja að ekki þurfi að geta upp­runa ef varan er elduð eða krydduð.

Örugg með hvað ?

 Blekk­ingar

Íslands­naut. 100 % íslenskt blasir við neyt­endum þegar þeir leggja leið sína inn í kæli, svaka­legar merk­ingar sem segja að allt undir þessu vöru­merki sé 100 pró­sent íslenskt, ekki satt? Nei, það er því miður ekki satt því ef betur er að gáð má finna Aust­ur­ríska fán­ann límdan á sumar vör­urnar, ekk­ert útskýrt hann bara límdur á til þess að fría sig ábyrgð senni­lega. Er í lagi að aug­lýsa svona? Þegar betur er að gáð er þetta ekki rétt! Vefsíða Íslands­nauts er einnig blekkj­andi fyrir neyt­endur. Versl­anir sem setja upp þessar merk­ingar eru engu betri því auð­vitað er vitað að þetta er ekki rétt. Hvers vegna stendur ekki Aust­urískt og íslenskt 100 % ?  Þetta er alls ekki í lagi og ætti ekki að við­gang­ast.

100% íslenskt ? Alls ekki
Hér má sjá 100% íslenskt nauta­kjöt frá Aust­ur­ríki

 Veit­inga­hús

Þegar fólk fer á veit­inga­hús má það vera visst um að það hefur ekki hug­mynd um hvaðan kjötið er sem það er að borða er upp­runnið. Vitað er um marga staði í veit­inga­geir­anum sem ekki verða nafn­greindir hér að þessu sinni, er státa sig af því að bjóða upp á betra verð en aðrir, sem er gott og blessað. Ástæðan fyrir því að við­kom­andi veit­ing­ar­staðir geta boðið lægra verð er ein­föld, það er notað inn­flutt hrá­efni sem kallað er íslenskt, sé um það spurt. Neyt­endur hljóta að hafa rétt á því að vita fyrir víst hvað þeir eru að láta ofan í sig og hvaðan það er, eins og staðan er núna er það ekki réttur okkar neyt­enda. Það ætti að vera skil­yrð­is­laus réttur neyt­enda að geta gengið að öllum upp­lýs­ingum vísum og geta treyst þeim, en staðan er allt önnur.

Harkalegar aðgerðir

Versl­anir krefj­ast þess að íslenskar kjöt­vörur séu teknar til baka renni þær út en þá kröfu geta þeir ekki gert þegar um inn­fluttar kjöt­vörur ræðir. Versl­an­irnar stilla því inn­fluttum kjöt­vörum fremur á bestu stað­ina og mest áber­andi því þær sitja uppi með tapið á þessum vörum. Á meðan þurfa þær íslensku að taka baksætið sem er mjög slæm þróun. Nokkrir aðilar sem verða ónefndir hér sögðu Mannlíf að það væri svo svæsið ástand að þeim væri jafn­vel hótað með því að vörur þeirra yrðu ekki seldar hjá keðj­unni ef að þessum skil­málum væri ekki gengið.

Niðurstaða könnunar

Mannlíf gerði óform­lega könnun sem fól í sér að 150 manns voru spurð nokk­urra spurn­inga og nið­ur­stöð­urnar eru slá­andi.

149 töldu Ali ein­ungis bjóða upp á íslenskar kjöt­vörur.

128 töldu að Stjörnu­grís væri að mestu með erlent kjöt.

134 sögð­ust alls ekki kaupa erlent kjöt, vildu bara íslenskt.

150 þekktu ekki reglur um upp­runa­merk­ingu á kjöti sem er kryddað eða eldað.

150 manns sögðu það að 100 % íslenskt væri nokkuð sem þeir veldu fram yfir erlendar vörur gæð­anna vegna.

150 sögð­ust ekki hafa leitt hug­ann að öðru en þeir væru að borða annað en íslenskt kjöt á veit­inga­stöðum.

Nið­ur­stöð­urnar sýna glögg­lega að fólk treystir því að þeirra hags­muna sé gætt og að fólk treystir fyr­ir­tækjum sem eiga að heita gömul rót­gróin íslensk fyr­ir­tæki með íslenskar afurðir, það les síður á umbúðir þess­arra aðila. Það er því mjög auð­velt að blekkja neyt­endur, ekki vegna þess að neyt­end­urnir séu vit­lausir heldur vegna þess að fólk trúir því alls ekki að þeirra hags­muna sé ekki gætt í sam­ræmi við lög og reglur. Neyt­endur þekkja flestir þau mjög ströngu skil­yrði sem íslenskum bændum eru sett og hvernig í ósköp­unum á nokkrum að detta það í hug að svona lagað líð­ist undir vernd laga og reglna.

Taka má fram að Stjörnu­grís er eitt fárra fyr­ir­tækja sem standa sig vel í að upp­runa­merkja vör­urnar sínar sem eru að mestu leyti íslenskar, þvert á það sem fólk taldi í könn­un­inni.

Hér fer ekki á milli mála að um Íslenska vöru er að ræða
Stjörnu Grís er að standa sig vel í merk­ingum, hér er engin vafi um upp­runa­land
Hér var upp­runa­land ekki til­greint, ekki aftan á pakkn­ingu heldur

Íslenskir bændur

Íslenskir bændur sitja svo sann­ar­lega ekki við sama borð með sínar afurðir. Þeim er gert að fara eftir ströngum lögum og reglum, sumum hverjum ósann­gjörnum. Margt vakti athygli Mannlífs við gerð grein­ar­innar, sumt af því getur vart talist annað en til­raun til þess að útrýma íslenskum bændum. Séu tveir ein­stak­lingar látnir berj­ast og annar þeirra með bundnar hendur fyrir aftan bak og bundið fyrir augun þarf ekki að spyrja hver fer með sigur af hólmi. Haldið verður áfram að fjalla um ýmis­legt sem teng­ist þessum málum því það er svo sann­ar­lega af nægu að taka.

Upp­runa­land ?
Upp­runa­land ekki til­greint en Íslenski fán­inn er á umbúð­unum
Upp­runa­land ?
Upp­runa­land er merkt, Ísland
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð