Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fokdýrt í hið nýja Sky Lagoon – VERÐKÖNNUN – Allt að 132 prósent dýrara en Bláa Lónið

Fokdýrt í hið nýja Sky Lagoon – VERÐKÖNNUN – Allt að 132 prósent dýrara en Bláa Lónið

Mannlíf skoð­aði verð­mun milli nýja lóns­ins, Sky Lagoon og Bláa Lónsins. Í ljós kom að Sky Lagoon er með 82 pró­sent hærra verð hvað venju­legan aðgang varðar og 132 pró­sent hærra verð  í næst dýrasta aðgang­inum. Börn fá frítt í Bláa Lónið en ekki hjá Sky Lagoon.

Þann 30. apríl mun nýja fjög­urra millj­arða króna lónið, Sky Lagoon opna. Lónið er stað­sett skammt frá mið­bænum á ysta odda Kárs­ness­ins. Nature Resort ehf. stendur að baki verk­efn­inu en lónið verður rekið af kanadíska fyr­ir­tæk­inu Pursuit. Hægt er að velja um að velja tvo mis­mun­andi aðgangs­kosti í lónið. Pure leiðin felur í sér aðgang að bað­lón­inu  ásamt sjö þrepa Sky Ritual með­ferð sem byggð er á íslenskri bað­menn­ingu. Hin leiðin, sú dýr­ari er Sky leiðin sem veitir aðgang í bað­lónið ásamt full­búnum einka­klefa, sjö þrepa Sky Ritual með­ferð­inni og Sky Lagoon húð­vörum.

Verðskrá Sky Lagoon

Verð fyrir tvo full­orðna og tvö börn á aldr­inum 3 til 14 ára sem velja Pure leið­ina er 17.970 krónur. Það verð gildir ein­ungis í ótil­greindan tak­mark­aðan tíma. Fullt verð verður síðan 25.500 krónur. Sé Sky leiðin valin borgar áður fyrr­nefnd fjöl­skylda 29.700 krónur í þennan ótil­greinda tak­mark­aða tíma en að honum loknum greiðir hún 41.700 krónur.

Ekki fyrir alla

Auðvitað þurfa fyr­ir­tæki að rukka fyrir sína þjón­ustu og í góðu lagi að bjóða upp á dýr­ari leið sem felur í sér aukin fríð­indi og lúxus, en að fjöl­skylda þurfi að greiða á fullu verði 25.500 krónur fyrir það að fara í bað­lón er full­mikið. Þetta kall­ast græðgi, mætti ekki stilla verð­inu aðeins í hóf og fá fleiri heim­sóknir og fleiri við­skipta­vini ? Það hafa alls ekki allir mögu­leika á því að heim­sækja Sky Lagoon á meðan verð­lagið er svona hátt, svo mikið er víst.

Bláa Lónið

Það er stór hópur fólks sem aldrei hefur farið í Bláa Lónið vegna þess að það hefur ein­fald­lega ekki efni á því að leyfa sér þann munað. Það er sorg­leg stað­reynd og þannig verður þetta líka með nýja lónið, ein­ungis efna­fólk getur veitt sér og sínum þennan munað. Aðgangur í Bláa Lónið, sá ódýr­asti (Comfort aðgangur), kostar til sam­an­burðar fyrir sömu fjöl­skyldu­stærð 13.980 krónur. 6.990 krónur fyrir full­orðna en frítt fyrir börn. Premium aðgangur kostar 17.980 krónur, 8990 krónur fyrir full­orðna og frítt fyrir börn.

Verðmunur

Ódýrasti aðgang­ur­inn að Sky Lagoon er því 82 pró­sent dýr­ari en sá ódýr­asti hjá Bláa Lóninu. Næsti aðgangur fyrir ofan er 132 pró­sent dýr­ari hjá Sky Lagoon en hjá Bláa Lóninu.

Þegar farið er að tala um að Bláa Lónið sé ódýr­ara en eitt­hvað annað er ljóst að eitt­hvað mikið er að þeirri mynd því það hefur alla tíð þótt ofboðs­lega dýrt. Með til­komu og verð­lagi Sky Lagoon er Bláa Lónið tals­vert hag­stæð­ari kostur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi