Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Ég er ekki með byssu eða neitt til að verja mig hérna“

„Ég er ekki með byssu eða neitt til að verja mig hérna“
Smáhýsi í Gufunesi, sem Reykja­vík­ur­borg úthlutar fólki sem býr á göt­unni. Myndir / Róbert Reyn­is­son.

Úr fjarska virð­ast þetta vera snyrti­leg hús og lóðin í kringum þau sömu­leiðis. Því er þó ekki að neita að svæðið er ansi ein­angrað og engan annan manna­bú­stað að sjá í grennd.

Smáhýsi í Gufunesi, sem Reykja­vík­ur­borg úthlutar fólki sem býr á göt­unni.

Und­an­farið hafa smá­hýsi á vegum Reykja­vík­ur­borgar, sem stað­sett eru í Gufunesi og ætluð eru ein­stak­lingum með vímu­efna- og geð­vanda, orðið fyrir tölu­verðri gagn­rýni.

Þykir mörgum það ótækt að stað­setja slík hús svo langt frá allri nauð­syn­legri þjón­ustu. Baldur Borg­þórs­son, vara­borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins er einn af þeim sem hefur tjáð sig um málið, en hann sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið fyrir skemmstu: „Það er hreint út sagt skelfi­legt að planta fárveiku fólki eft­ir­lits­lausu úti í móa. Með þessu er Reykjavíkur­borg ein­fald­lega að kuska af sér vand­ann og henda honum til hliðar svo hann sjáist ekki lengur.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef borg­ar­innar eiga smá­húsin að vera öruggt hús­næði, allan sól­ar­hring­inn, fyrir ein­stak­linga með vímu­efna- og geð­vanda.

Þar segir: „Því fylg­ir að þeir hafa greið­ari aðgang að þjón­ustu og stuðn­ingi. Skil­yrði fyr­ir því að ein­stak­ling­ur fái smá­húsi út­hlutað er að hann sé í virkri þjón­ustu vett­vangs- og ráð­gja­fat­eym­is Reykja­vík­ur­borg­ar (VoR). Teymið starfar eft­ir Hús­næði fyrst-hug­mynda­fræð­inni sem geng­ur út á að allt fólk eigi rétt á hús­næði og geti haldið því með ein­stak­lings­bund­inni þjón­ustu þvert á kerfi.“

Mannlíf ákvað að fara á stað­inn og kanna hver skoðun íbúa smá­hús­anna væri á hús­næð­inu, stað­setn­ingu þess og aðstæðum.

Einungis búið í einu húsi

Við eitt hús­anna hékk þvottur fyrir utan og bönk­uðum við þar upp á.

Emelie og Snorri

Til dyr­anna kom Snorri Alberts­son og bauð hann okkur inn. Við beygðum okkur undir teppi sem hengt hafði verið í dyra­opið og gengum inn í reyk­mett­aða íbúð­ina. Þegar inn var komið blasti við lítil, dimm íbúð. Fljót­lega kom í ljós að Snorri átti hins vegar ekki heima þarna.

Beint á móti inn­gang­inum var hurð­ar­laust bað­her­bergi. Sturtu­slanga lá á gólf­inu, gólfið á floti, engan kló­sett­pappír að sjá, en fullur poki af lyfjum og sprautum lá í vask­inum.
Einu sjá­an­legu hús­gögnin í íbúð­inni voru slit­inn sófi og svo virt­ist rúm leyn­ast undir gríð­ar­stórri hrúgu af fötum og dóti. Í miðri hrúg­unni sat kona og reyndi að kveikja sér í sígar­ettu. Fljót­lega kom í ljós að hún var íbúi húss­ins og jafn framt eini íbúi svæð­is­ins, Emelie Jacob, 32 ára gömul kona sem hefur verið í neyslu frá 14 ára aldri.

Aðspurð, sagði hún að eins og staðan væri núna, stæðu fjögur hús af fimm tóm. En sam­kvæmt Emilie hefur aldrei verið flutt inn í eitt hús­anna.

„Í einu hús­inu er bara gæji sem leigir fíklum íbúð­ina sína, sem er ekki alveg skemmti­legt sko. Annað hvort býr mann­eskjan þarna eða ekki.“ Emelie segir mann­inn búa með kær­ustu sinni í JL hús­inu, en þar sé athvarf fyrir fólk í neyslu sem sé vaktað allan sól­ar­hring­inn. „Það er miklu örugg­ara sko,“ segir Emelie.

Í hinum tveimur hús­unum bjó fólk sem nú hefur flúið vegna þess óör­yggis sem Emelie segir íbú­ana finna fyrir, en margoft hefur verið brot­ist inn í húsin og skemmd­ar­verk unnin á þeim. „Fólk kemur hingað og brýtur glugga, það er búið að brjóta hjá mér glugga svona tutt­ugu sinnum. Þetta er perfect staður að nóttu til þess að gera eitt­hvað svona, það heyrir eng­inn neitt. Það er mikið óör­yggi, það er líka búið að hand­rukka marga hérna,“ segir Emilie og auð­séð að henni stendur ekki á sama.

Séð inn í yfir­gefið smá­hýsi.

Hún segir að slík ólæti fylgi oft fólki í neyslu, en hægt væri þó að gera svæðið ákjós­an­legra búsetu, sem jafn framt myndi minka atgang óeirða­seggja. „Mér finnst þetta skrítin stað­setn­ing. Og það eru ekki einu sinni ljósastaurar hérna, svæðið verður bara svart þegar það er orðið dimmt.“

Skortir eftirlit með svæðinu

Vett­vangs- og ráð­gjafateymi Reykja­vík­ur­borgar kemur tvisvar á dag til Emelie, sem hún segir mjög gott. Segist hún til að mynda nýverið hafa lent í miklum vand­ræðum. Búið var að eyði­leggja sím­ann hennar svo hún gat ekki kallað eftir hjálp: „Þá kom VoRdinn minn og bjargað lífi mínu,“ og á þá við aðila úr teymi Reykja­vík­ur­borgar.

Emelie segir marga fíkla vera skít­hrædda við VoR-teymið, „margir halda að það sé löggan og þora ekki að koma hingað, sem er jákvætt líka,“ segir hún og brosir.

En hún vill meina að lög­reglan sé hætt að nenna koma á svæðið. „Ég hringdi í lög­regl­una um dag­inn því það var gaur að kveikja í sófa alveg upp við húsið mitt og löggan fór bara að spjalla og spurði: „Þarftu eitt­hvað að fá lög­regl­una til þín eða?“ segir Emelie og hlær kald­hæðn­is­lega. „Þetta er svo mikið rugl sko.“

Emilie segir það strax myndi veita meira öryggi ef settar yrðu upp örygg­is­mynda­vélar.
„Ég er ekki með byssu eða neitt til að verja mig hérna, fólk hikar ekki við að nóttu til að slamma glugg­ann minn, því þúst það heyrir það eng­inn.“

Áður hefur Emelie búið í gámum sem er sam­bæri­legt úrræði og smá­hýsin. Hún seg­ist afar ánægð með húsið en hún hafi þó upp­lifað sig örugg­ari í gámunum en í Gufunesi: „Þetta er alveg geð­veikt, þetta er nátt­úru­lega ekki alveg eins og gámur­inn, ég hef búið í gámnum, en ég er samt örugg­ari þar en hér, mér fannst það.“

Emelie Jacob

Emelie hefur fengið vini í heim­sókn á nýja heim­ilið sitt, sem hafa verið hrifnir: „Margir vinir mínir hafa komið og bara eitt­hvað elska pleisið, en þeir hafa ekki pru­fað að vera hérna í 24 tíma,“ segir hún og vitnar í óör­yggið og eft­ir­lits­leysið á svæð­inu.

Helluborðið og sjónvarpið selt

Þegar Emelie flutti inn var íbúðin búin inn­byggðum ísskáp, hellu­borði, örbylgju­ofni, sjón­varpi og þvotta­vél. Hús­gögnum og leir­taui seg­ist hún hafa þurft að skaffa sjálf. Inni í íbúð­inni er þó ekk­ert sjón­varp, hellu­borð né örbylgju­ofn að sjá, en seg­ist Emelie vera búin að selja það. Hún bætir því við að hún hafi í raun einnig selt þvotta­vél­ina, en hana sé hún búin að fá til baka.

Smáhýsi í Gufunesi, sem Reykja­vík­ur­borg úthlutar fólki sem býr á göt­unni.

„Við fíklar gerum þetta bara. Við hugsum bara að fá ódýr­ara, eitt­hvað ódýr­ara, við sjáum ein­hvern ofn sem getur eldað ham­borg­ara­hrygg þá seljum við hann fatt­aru?“

Hún segir engan pott eða pönnu hafa verið í hús­inu og seg­ist sjálf ekki hafa efni á því að kaupa slíkt: „Þetta var eitt­hvað ker­am­ik­hellu­borð, ég á ekki ein­hvern 12.000 kall til að kaupa pönnu sem passar á það, frekar heimsku­legt. Þannig ég bara seldi það.“

Emelie er að sögn afar ánægð með húsið sjálft, en segir stað­setn­ing­una ekki ákjós­an­lega. Þá segir hún aukið eft­ir­lit nauð­syn­legt á stað sem þessum.

„Það væri gott ef eft­ir­litið væri meira svo maður finni fyrir meira öryggi að búa hér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina