Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brynjar hefur gaman að kjaftforum körlum: „Samfélagsmiðlar eru að drepa kímnigáfu þjóðarinnar“

Brynjar hefur gaman að kjaftforum körlum: „Samfélagsmiðlar eru að drepa kímnigáfu þjóðarinnar“
Brynjar Níelsson Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

„Það er nauð­syn­legt að slá á létta strengi reglu­lega til að brjóta hlut­ina upp. Við lifum aftur á móti í sam­fé­lagi þar sem fólk er sífellt að móðg­ast fyrir hönd sjálfs síns eða ein­hverra hópa, það virð­ast allir skil­greina sig sem hluta af ein­hverjum hóp,“ segir Brynjar Níelsson alþing­is­maður. Hann hefur staðið í eld­lín­unni á Facebook þar sem rit­deilur hans og Bubba Morthens tón­list­ar­manns í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins hafa hlotið mikla athygli.

„Ég hef miklar áhyggjur af því að sam­fé­lags­miðlar sé að drepa kím­in­gáfu þjóð­ar­innar. Það má lítið segja án þess að ein­hverjum mis­bjóði. Í dag er örugg­ast að gera ekki grín að neinum nema sjálfum sér. Og jafn­vel það getur móðgað ein­hvern. Þetta er ekki góð þróun, við eigum öll eftir að enda inni á deild. Og ég í ein­hverju gúlagi.”

Menningarelítan rýkur í vörn

Bubbi skýtur föstum skotum og Brynjar skýtur á móti. Lesendur geta ekki varist því að fá á til­finn­ing­una að honum finn­ist það ekki leið­in­legt. „Jú, ég hef nú gaman af þessu. Það má oft draga það klaufa­leg­asta fram í fari fólks. Menn­ing­ar­el­ítan rýkur alltaf í vörn fyrir sinn mann í stað þess að kynna sér málin og áður en maður veit af er farið að ríf­ast um hver sé góður eða vondur í stað þess að líta á stað­reyndir mála. Þar talar minn innri fer­kant­aði lög­ræð­ingur. En ég mátti svo sem eiga von á þessu, þetta er vand­með­farin mið­ill, umræðan fer út um allt og kannski eru ekki allir að skilja kald­hæðni. Ég er fyrir löngu búinn að missa alla stjórn á þessu.“

Brynjar segir sig hafa lít­inn húmor fræga fólk­inu þegar það fari að tjá sig um hluti sem það hafi ekki þekk­ingu á né hafi sett sig inn í. „Sann­leik­anum verður hver sár­reið­astur. Ég hef reyndar alltaf haft gaman að kjaft­forum mönnum eins og Bubba og stundum hittir hann naglann á höf­uðið. Við höfum hist og það fór vel á með okkur þótt leitun sé að ólík­ari mönnum.“

Hann segir það hvim­leitt þegar þekkt fólk hrauni yfir aðra um mál sem það hafi ekki vit á. „Bubbi kallar fólk glæpa­menn, ásakar það um pen­inga­þvætti og hneyksl­ast yfir þögn þing­manna. Rétt og rangt er hætt að skipta máli. Bubbi veit álíka mikið um pen­inga­þvætti og ég veit um tón­list. Og ekki er ég að tjá mig um tón­list.”

Engin tengsl við Samherja

Brynjar seg­ist engin tengsl hafa við Samherja og þekki þar ekki nokkurn mann. „Sem stjórn­mála­maður ber ég hag fyr­ir­tækj­anna í land­inu fyrir brjósti. Það eru þau sem skapa hér verð­mæti og atvinnu. Sú nið­ur­staða liggur fyrir í þessum málum öllum, hvort sem um er að ræða DNB banka­málið, verð­lags­málið eða skattsvika­málið, að ásak­anir eigi ekki við. Svo ber­ast fréttir frá Namibíu um að engir Íslend­ingar verði ákærðir þar en þetta fjallar eng­inn um. Það stóð aldrei steinn yfir steini í þessum ásök­unum.

Aftur á móti fer Samherji í mynd­bands­gerð til varnar ásök­unum og það verður óskap­legt hneyksli. Ég er ekki að leggja dóm á hvort það hafi verið rétt eða röng ákvörðun en öll umræðan fer út og suður, hver sé góður eða vondur, ríkur eða fátækur.“

Sumir háðir sóttvörnum

Samtalið snýst að sótt­vörnum og aflétt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda. „Þetta er raun­hæf áætlun. Við erum komin það langt að við getum ekki leyft okkur tak­mark­anir. Ég vildi alltaf slaka á í sam­ræmi við hraða bólu­setn­inga og fannst full­mikið að banna til að mynda alla íþrótta­leiki og tón­leika. Það er alveg eins hægt að smit­ast úti í búð eða við gos­s­töðvar, það þarf bara einn, algjör­lega burt­séð frá hvað eru margir sam­an­komnir.

Svo getur vel verið að sumir séu orðnir háðir þessu, hvað veit maður? Inga Sæland vill hafa alla þjóð­ina lok­aði inn í Egils­höll, sitt sýn­ist hverjum. En mér hefur alltaf fund­ist nauð­syn­legt að ganga ekki lengra en nauð­syn­legt er og fara að lögum.“

Fólk fer að slá um sig

Brynjar neitar því ekki að það sé kom­inn í hann kosn­inga­fiðr­ingur. „Nú fer fólk að slá um sig, vera með stæla og tala um hvað við Sigga Andersen höfum verið vond við fólk í Covid. En það verður að hafa gaman af því ekki situr maður undir ein­hverju skemmti­efni alla daga hér í þing­inu. Hér eru ekki margar tíma­móta­ræður haldnar get ég sagt þér.

Hann telur Sjálf­stæð­is­flokkin eiga mikið inni. „Við erum með trú­verð­uga stefnu í atvinnu­líf­inu. Nú verða allir að standa saman, jafn­vel enn þéttar en í sótt­varn­ar­að­gerðum. Hér er komið lang­tíma­at­vinnu­leysi sem við erum ekki vön og það hefur kennt okkur að það má lítið út af bregða. Stærsta vel­ferð­ar­málið er að allir sem geta og vilja vinna geti fengið atvinnu.

Brynjar fór til Spánar um pásk­ana eins og frægt var orðið þar sem hann kveðst hafa kynnt nýj­ustu tísku í sokkum. „Þar hitti ég mikið af fólki sem ann­að­hvort var atvinnu­laust eða í íhlaupa­vinnum, sér­stak­lega ungt fólk en atvinnu­leysi þar hefur verið um 25% meðal þess hóps frá því fyrir hrun. Það er ekk­ert skað­legra fyrir sam­fé­lag en þegar að stór hluti er án atvinnu, berst sífellt í bökkum og er ekki almenni­legur þáttak­andi í sam­fé­lag­inu.“

Grínið heldur lífi í hjónabandinu

Aðspurður um hvað hann geri í frí­stundum annað en að skrifa færslur sem hrista upp í fólki seg­ist Brynjar vera þekktur let­ingi. „Ég er reyndar hel­tek­inn af golfi eins og margir mið­aldra karla og konur. Þetta er ekki bara heil­brigð hreyf­ing og keppni heldur fær maður allt slúðrið beint í æð. Það er er nauð­syn­legt í sam­fé­lag­inu, ekki síst fyrir stjórn­mála­mann.

Brynjar kveðst einnig vera afar góður í vera heima sjá sér og vera konu sinni til ama og leið­inda. „Við gerum grín hvort að öðru, það heldur lífi í hjóna­band­inu. Svo sef ég reglu­lega yfir sjón­varp­inu og vakna með slefið út á kinn. Mér finnst reyndar afar gott að vera einn eða með kon­unni heima eða í bústað en ég hef líka mjög gaman af vera í kringum fólk og tala við það. Maður getur ekki verið í póli­tík­inni án þess að njóta þess.

Sumarið leggst vel í Brynjar. „Þessi þjóð á svo ótrú­lega mikla mögu­leika og getur rifið sig upp úr erfði­leikum. Við getum líka klúðrað því því við erum hvat­vís og skortir stundum stöð­ug­leika. Við verðum að læra af reynsl­unni, hafa þol­in­mæði og haga okkur ekki eins og flón,“ segir Brynjar að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una