Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Guðný og Lilja segja frá lífi og dauða Daníels – Þær syrgja. Hann hvílir í eilífum svefni

Guðný og Lilja segja frá lífi og dauða Daníels – Þær syrgja. Hann hvílir í eilífum svefni
Lilja og Guðný. Mynd / Róbert Reyn­is­son.

Daníel Eiríks­son lést í byrjun mán­að­ar­ins í kjöl­far þess að ekið var á hann fyrir utan heim­ili kær­ustu hans. Öku­mað­ur­inn ók í burtu frá slys­stað og lá Daníel hel­særður og rænu­laus í göt­unni í þó nokkurn tíma. Lög­reglan hand­tók í kjöl­farið þrjá Rúmena og sat einn í gæslu­varð­haldi vegna rann­sóknar á and­lát­inu. Sá sem sat í gæslu­varð­haldi við­ur­kenndi svo að hafa ekið á Daníel en sagði að um slys hefði verið að ræða. Rúm­en­arnir voru allir látnir lausir og enn vinnur lög­reglan að rann­sókn máls­ins. Systir Daníels heit­ins, Guðný Sigríður Eiríks­dóttir, og kærasta hans, Lilja Björg Rand­vers­dóttir, segja hér frá sjálfum sér, lífi og dauða Daníels og sorg­inni. Þetta er örstutt saga þriggja ein­stak­linga í blóma lífs­ins. Þær syrgja. Hann hvílir í eilífum svefni.

Daníel Eiríks­son og Guðný Sigríður Eiríks­dóttir voru alsystk­ini, börn hjón­anna Eiríks Sig­ur­björns­sonar, stofn­anda kristi­legu sjón­varps­stöðv­ar­innar Omega, og eig­in­konu hans, Krist­ínar Kui Rim, sem er frá Suður-Kóreu. Fyrir átti Eiríkur tvo syni.

Guðný og Daníel með föður sínum, Eiríki Sig­ur­björns­syni.

„Æskan var fín,“ segir Guðný. „Mig skorti aldrei neitt. Ég fékk gott upp­eldi en strangt. Ég á ynd­is­lega for­eldra. Pabbi og manna eru mjög trúuð og við Daníel fengum trú­ar­legt upp­eldi. Ég er ekki öfga­kennd eins og þau. Þótt við Daníel höfum ekki alltaf verið á sam­komum þá var trúin stór hluti af lífi okkar. Ég fékk svo eig­in­lega leið á þessu,“ segir hún og á við trúna. „Maður nennti þessu ekk­ert. Ég vildi vera með vin­konum mínum en ekki alltaf með mömmu og pabba í kirkju. Ég er komin af góðu fólki og er þakklat fyrir allt sem for­eldrar mínir hafa gert fyrir mig og mína fjöl­skyldu.

Mamma fórn­aði öllu fyrir okkur systk­inin. Við vorum alltaf litlu börnin hennar mömmu þrátt fyrir að við værum orðin full­orðin. Hún gerði allt fyrir okkur sama hvað. Hun sá ekki sól­ina fyrir Daníel. Pabbi átti svo erfitt að skilja það hvað hún dekraði hann mikið þótt hann væri orð­inn full­orð­inn. Pabbi er mjög góður maður, hann talar alltaf vel um alla, gerir allt fyrir alla og nær til allra og er gjaf­mildur og ljós í myrkri. Daníel hefur fengið alla góðu kost­ina hans.“

Guðný talar um mikla for­dóma á æsku­ár­unum sem tengd­ust bæði því að hún kom af mjög trú­uðu heim­ili sem og að móðir hennar er asísk.

Daníel sem lést í byrjun apríl í kjöl­far þess að ekið var á hann. Blessuð sé minn­ing hans.

„Við Daníel vorum einu börnin sem voru „útlensk“ í útliti og var okkur strítt í skóla; við vorum til dæmis upp­nefnd. Við áttum samt alltaf okkar vini. Það voru alltaf ein­hverjir leið­in­legir krakkar sem voru að stríða okkur bæði út af trúnni og útlit­inu. Ég held að Daníel hafi fengið að finna fyrir því meira af því að hann var strákur.“

Guðný seg­ist ekki hafa sagt for­eldrum sínum frá stríðn­inni sem í dag væri senni­lega kölluð ein­elti.

„Þetta voru ekk­ert alltaf sömu krakk­arnir og þetta hafði ekk­ert það mikil áhrif á mig þá en þegar ég lít til baka þá finnst mér þetta hafa haft áhrif á mig.“

Guðný: „Hann breytt­ist rosa­lega á ung­lings­ár­unum. Það var mikil reiði og upp­reisn. Hann kom sér stundum í vand­ræði í skól­anum fyrir að svara fyrir sig; hann þoldi ekki órétt­læti.“

Guðnýju fannst stundum vera óþægi­legt að fara í skól­ann út af stríðn­inni. Hún fór að sjá verr um 12 ára aldur og hefði þurft að fá gler­augu. Hún sagði for­eldrum sínum ekki frá því og sagð­ist hafa séð illa í tvö ár og hafði það áhrif á náms­ár­ang­ur­inn.

„Ég þorði ekki að ganga með gler­augu. Ég var svo óör­ugg á þessum tíma. Það var ekki kúl að vera með gler­augu. Ég vildi vera eins og hinir. Ég hélt að mér yrði strítt meira ef ég væri með gler­augu.“

Hún fór líka að finna fyrir kvíða sem hún finnur stundum enn fyrir; kvíð­inn teng­ist óör­ygg­inu sem svo aftur teng­ist stríðn­inni. Ein­elt­inu. Þetta er eins og dómínókubbar.

„Ég leit aldrei á þetta sem ein­elti af því að þótt ég liti öðru­vísi út þá féll ég inn í hóp­inn. Ég man að aðrir krakkar voru líka lagðir í ein­elti í skól­anum en þeir áttu kannski bágt fjöl­skyldu­lega.“

Guðnýju dreymdi um að verða snyrti­fræð­ingur. Hún byrj­aði í snyrti­fræði­námi en hætti fljót­lega í nám­inu.

„Ég hætti í skól­anum út af kvíða. Svo eign­að­ist ég tvö börn og er núna úti­vinn­andi.“

Unglingsárin

Jú, árin liðu. Systk­inin urðu ung­lingar.

„Daníel byrj­aði með félögum sínum í sak­lausu fikti á ung­lings­ár­unum. Hann breytt­ist rosa­lega á ung­lings­ár­unum. Það var mikil reiði og upp­reisn. Hann kom sér stundum í vand­ræði í skól­anum fyrir að svara fyrir sig; hann þoldi ekki órétt­læti. Hann var vinur vina sinna og gerði allt fyrir vini sina og kom sér líka í vand­ræði fyrir að hjálpa þeim. Ég varð ekki vör við allt sem gekk á í skól­anum því þetta var ekki rætt heima við mig. Hann tal­aði alls ekki um vanda­málin sín eða vand­ræði sem hann kom sér í. Hann vildi alltaf bara harka allt af sér. Hann var svo mik­ill nagli. Og við til dæmis ræddum ekki stríðn­ina sem við fengum að þola í skól­anum við mömmu og pabba. Daníel leit­aði í hug­breyt­andi efni seinna meir til að deyfa til­finn­ingar sem hann gat ekki tjáð.“

Systk­inin Guðný og Daníel.

Daníel fór að æfa lík­ams­rækt þegar hann var 16 ára.

„Hann varð fljótt hel­tek­inn af að vera í góðu formi og vera sterkur og próf­aði stera og þá var ekki aftur snúið. Hann leidd­ist seinna meir í önnur hug­breyt­andi efni.“

Daníel dreymdi síðar um að verða einka­þjálf­ari en þess má geta að hann vann mikið hjá föður þeirra systk­ina á sjón­varps­stöð­inni Omega á Íslandi og í Noregi.

Kynntust í meðferð

Lilja Björg Rand­vers­dóttir, kærasta Daníels, fædd­ist og ólst upp fyrir norðan og var hún átta árum eldri en Daníel.

„Ég á mjög langa og erf­iða for­tíð. Það er spurn­ing hvernig ég eigi að segja frá henni í stuttu máli.

Ég var mjög feimin og hlé­dræg sem barn. Það vant­aði allt sjálfs­traust. Ég tók engar sjálf­stæðar ákvarð­anir. Það var mikið áfall fyrir mig þegar for­eldrar mínir skildu og í kjöl­farið þró­aði ég með mér „borderline-per­sónu­leika­röskun“. Þetta var ljótur skiln­aður og hefur mamma verið klett­ur­inn minn. Mér leið illa og fór að drekka. Ég fór í kjöl­farið á skiln­að­inum að vera með sjálf­skað­andi hegðun; ég var með sjálfseyð­ing­ar­hvöt. Ég fór að skera mig. Ég hugsað oft um dauð­ann; mig lang­aði ekki til að lifa. Mér fannst ég ekki eiga skilið að lifa. Vegna þess að ég elskaði ekki sjálfa mig þá fannst mér ég ekki eiga að vera á jörð­inni og það myndi eng­inn elska mig. Ég reyndi oft að fremja sjálfs­morð en þegar maður var 14-15 ára þá var það mis­heppnað. Ég vissi ekk­ert hvað var að mér.

Ég flutti að heiman þegar ég var 16 ára til að fara að búa með stráki. Ég var svo­lítið þung­lynd og var auk þess með átröskun – var með anor­exíu sem varð að búlemíu – og fékk enga almenni­lega hjálp.“

Hún talar um önnur sam­bönd í gegnum árin og í ein­hverjum þeirra varð hún fyrir ofbeldi – bæði and­legu og lík­am­legu.

Lilja: „Það er búið að taka fram­tíð­ina af mér; allt sem ég ætl­aði að eiga. Það er búið að taka mann­inn sem ég elskaði út af líf­inu.“

Drykkjan jókst og hún seg­ist hafa misst tökin.

Hún fór í sál­fræði­nám og lauk BA-prófi. Vildi standa sig. Dreymir um að geta unnið við að aðstoða ung­menni sem hafa farið í neyslu.

Van­líð­anin var mikil og hún reyndi svo að fyr­ir­fara sér 29 ára gömul og var lögð inn á sjúkra­hús í kjöl­farið.

„Þar spurði læknir mig hvort ég væri kannski alkó­hólisti. Vanda­málið tengd­ist ekki bara drykkju. Ég fór í með­ferð og þar kynnt­ist ég fólki sem var í harð­ari efnum og ég leidd­ist út í harð­ari efni.

Ég var brotin á þessum tíma og náði mér ekki almenni­lega upp úr neysl­unni. Ég gerði nokkrar til­raunir í við­bót til að drepa mig, ég fór nokkuð oft í inn­lagnir á geð­deild og fór í tíma hjá sál­fræð­ingum og geð­læknum, ég fór í með­ferðir og komst svo á göngu­deild. Ég var inn og út. Þetta var mjög erf­iður tími. Ég reyndi nokkrum sinnum að drepa mig á þessum tíma.

Ég átti erfið ár þangað til ég fór á Krísuvík árið 2015 þar sem ég var í hálfs árs með­ferð. Það eina sem ég vildi þegar ég fór í með­ferð­ina var að vera á lífi. Eftir það náði ég löngum tíma edrú nema einn dag eftir að besti vinur minn fyr­ir­fór sér en ég datt í það sex mán­uðum eftir að ég kom úr með­ferð­inni; ég datt í það í einn dag sem tengd­ist sorg vegna vina­miss­is­ins. Ég varð svo edrú, fór á fund og við­ur­kenndi að ég hafði fallið.“

Hún talar um ofbeld­is­sam­band þar sem við­kom­andi varð elti­hrellir um tíma í kjöl­far sam­bands­slit­anna.

„Hann hringdi úr ýmsum núm­erum, elti mig í rækt­ina og sendi mér ógeðs­leg skila­boð. Hann þótt­ist vera aðrir menn. Ég fór aldrei til lög­regl­unnar þótt þetta hafi verið ógeðs­legt sem hann gerði. Þetta stóð yfir í tæpt ár. Ég var mjög brotin og hrædd eftir að hafa verið með þessum manni.

Guðný: „Ég get ekki séð eins og staðan er núna hvernig ég á að geta haldið lífi mínu áfram fyrr en ég veit að mað­ur­inn sem gerði þetta fái dóm.“

Ég datt svo í það í fyrra í tvo mán­uði; það var ekki langur tími. Ég fór inn á Vog í sept­em­ber og þar kynnt­ist ég Daníel og við byrj­uðum að vera saman. Mér fannst ég hafa kynnst sálu­fé­laga mínum. Ég hef aldrei kynnst eins fal­legri og góðri sál. Við vorum eins og sam­lokur. Hann hjálp­aði mér í gegnum mjög erf­iðan tíma. Ég hef átt erf­iða ævi og mér fannst guð hafa sent mann­inn til mín sem mér fannst ég eiga skilið að eiga.

Þetta gekk ótrú­lega vel hjá okkur. Loksins var ég ánægð. Ég hafði barist lengi við þung­lyndi og átt erfitt líf en með Daníel var ég ánægð alla daga. Ég gat verið erfið úr af „borderline-per­sónu­leika­rösk­un­inni“ en hann var aldrei reiður við mig og dæmdi mig aldrei. Hann studdi mig ótrú­lega vel og hann var að koma mér inn í trúna.“

Hún grætur.

Heldur svo áfram.

„Við vorum búin að plana fram­tíð­ina og okkur hlakk­aði mikið til. Hann var svo góður maður. Ég hef lent í mörgum vondum mönnum. Ég sagði oft að það væri ótrú­legt hvað hann kæmi vel fram við mig. Ég hafði ekki kynnst þessu.“

Lá helsærður í blóði sínu

Daníel féll. Hann féll í byrjun apríl. Var undir áhrifum. Hafði verið edrú í sjö mán­uði.

Hann var á áfanga­heim­il­inu Vin og átti svo að mæta í við­tal hjá ráð­gjafa hjá Vogi 2. apríl vegna vænt­an­legrar inn­lagnar þar.

„Ég vildi að hann væri heima hjá mér til að ég gæti passað hann,“ segir Lilja. „Hann sofn­aði á sóf­anum hjá mér og ég sofn­aði inni í rúmi. Ég vakn­aði aðfara­nótt 2. apríl og sá að hann var í sím­anum. Hann hefur örugg­lega ætlað að redda sér ein­hverju. Ég sagði að hann ætti ekki að vera að gera þetta en hann átti að fara inn á Vog dag­inn eftir.

Ég sofn­aði aftur og vakn­aði aftur kannski einum til einum og hálfum klukkku­tíma síðar og kall­aði í Daníel en hann svar­aði ekki. Ég fékk strax ónota­til­finn­ingu.“

Lilja: „Við vorum búin að plana fram­tíð­ina og okkur hlakk­aði mikið til. Hann var svo góður maður. Ég hef lent í mörgum vondum mönnum. Ég sagði oft að það væri ótrú­legt hvað hann kæmi vel fram við mig. Ég hafði ekki kynnst þessu.“

Lilja fór fram en Daníel var ekki inni í íbúð­inni. Hún leit út um glugga og sá Daníel liggja fyrir framan fjöl­býl­is­húsið þar sem hún býr. Hún fór út og þar lá hann rænu­laus í blóði sínu. Hún segir að stelpa nokkur hafi verið komin að honum á undan sér og sú hafði hringt á sjúkra­bíl.

„Það voru miklir áverkar á höfð­inu á honum. Blóðið lak. Þetta var hræði­legt. Hann var bara alveg „out“. Ég fékk ekki að fara með bílnum niður á sjúkra­hús þar sem ég fór inn í yfir­heyrslu og tók lög­reglan skýrslu af mér.“

Sími Daníels hafði legið brot­inn á göt­unni. Möl­brot­inn.

Lilja fékk svo skila­boð um að það væru litlar líkur á að Daníel myndi lifa af. Hún fór á sjúkra­húsið og sat þar ásamt fjöl­skyldu Daníels og vin­konum. Hann hafði fengið mikla blæð­ingu á heila og auk þess við­beins­brotnað og um sól­ar­hring síðar var slökkt á önd­un­ar­vél. Hann lést um klukku­tíma síðar.

Daníel og Lilja.

„Ég hef kvatt fleiri,“ segir Lilja, „en þetta er það erf­ið­asta sem ég hef gert – að kveðja Daníel. Þetta er hálf­gert í „blörri“. Ég hélt ég gæti ekki sleppt hend­inni á honum. Ég vildi ekki trúa þessu. Hann var svo fal­legur og frið­sæll; hann var nátt­úr­lega mjög mynd­ar­legur strákur. Þetta var mjög erfitt.“

Gull­fal­legur silf­ur­hringur með sir­kon­steini er á baug­fingri hennar. Daníel gaf henni hring­inn.

„Ég átti eftir að sækja hring­inn úr minnkun og það var svo­lítið erfitt að gera það stuttu eftir að hann dó.“

Enn í rannsókn

Jú, Daníel hafði legið rænu­laus og hel­særður í blóði sínu.

Lög­reglan hand­tók þrjá Rúmea í kjöl­farið og sat einn í gæslu­varð­haldi vegna rann­sóknar á and­lát­inu. Sá sem sat í gæslu­varð­haldi við­ur­kenndi svo að hafa ekið á Daníel en sagði að um slys hefði verið að ræða. Þeir voru síðan allir látnir lausir og enn vinnur lög­reglan að rann­sókn máls­ins.

Blaða­maður hafði sam­band við Margeir Sveins­son, yfir­lög­reglu­þjón hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Málið er enn í rann­sókn og ég get ekki farið í ein­staka þætti,“ sagði hann. „Beðið er gagna svo sem frá rétt­ar­meina­fræð­ingi og tækni­deild. Við­kom­andi er enn með rétt­ar­stöðu sak­born­ings en ástæða fyrir því að ekki var farið fram á áfram­hald­andi gæslu­varð­hald er að ekki þótti lík­legt að dómur myndi fall­ast á þá kröfu lög­reglu. Því var gerð krafa um far­bann,“ sagði Margeir en far­bannið gildir til 9. maí. Í kjöl­farið verður skoðað hvort gerð verði krafa um áfram­hald­andi far­bann.

Guðný og Lilja eru sann­færðar um að ekki hafi verið um slys að ræða og gagn­rýna að mað­ur­inn sem var í gæslu­varð­haldi sé laus úr haldi og virð­ist njóta lífs­ins.

Lilja: „Ég fór að leiði Daníels síð­ast­lið­inn laug­ar­dag. Ég gat eig­in­lega ekki grátið; ég var svo reið.“

„Ég get ekki séð eins og staðan er núna hvernig ég á að geta haldið lífi mínu áfram fyrr en ég veit að mað­ur­inn sem gerði þetta fái dóm,“ segir Guðný. „Það eru allir sam­mála okkur um hvað þetta er skrýtið. Það ekur eng­inn í burtu frá svona slys­stað; mað­ur­inn hefði getað hringt á sjúkra­bíl. Síðustu vikur hafa verið mjög slæmar. Ég hafði byrjað í nýrri vinnu nokkrum dögum áður en Daníel dó og ég hef ekk­ert getað mætt síðan hann dó. Maður er bara upp og niður allan dag­inn. Sorgin kemur í bylgjum. Maður tekur einn dag í einu og það er eng­inn dagur eins. Ég var orðin góð á föstu­dag­inn en ég fór þá til sál­fræð­ings og ætl­aði að fara að mæta í vinn­una en svo var ég ekki til­búin.“

„Maðurinn hafði kannski getað bjargað Daníel,“ segir Lilja. „Ég mun aldrei geta sætt mig við að þetta hafi verið slys. Ég mun ekki geta haldið lífi mínu áfram eftir að ástin í lífi mínu var tekin á þennan hrotta­lega hátt. Ég get ekki byrjað að syrgja almenni­lega fyrr en mað­ur­inn fær dóm. Þessi maður virð­ist ekki sýna neina iðrun en hann sást á djamm­inu eftir að honum var sleppt og í rækt­inni; ætt­ingjar Daníels sáu hann í rækt­inni. Hann hefur verið heldur betur að lifa „the good life“.

Ég fór að leiði Daníels síð­ast­lið­inn laug­ar­dag. Ég gat eig­in­lega ekki grátið; ég var svo reið. Ég hugs­aði með mér að ég væri að eyða laug­ar­dags­kvöld­inu þarna með kærasta mínum – og hvað ætli hinn mað­ur­inn hafi verið að gera á sama tíma? Var hann með kær­ustu sinni á djamm­inu? Ég get engan veg­inn haldið áfram fyrr en þessi maður er kom­inn með dóm. Ég er alltaf að spyrja sjálfa mig ef ég hefði gert þetta eða hitt og ef ég hefði verið vak­andi hvort hann væri þá á lífi. Ég hef ekk­ert getað lifað. Ég er bara í fang­elsi. Og í hvert skipti sem ég kem heim til mín þá sé ég fyrir mér nákvæm­lega hvar Daníel lá og hvernig ég hélt í hend­ina á honum þegar hann lá í göt­unni. Þetta er að „hönta“ mig rosa­lega. Ég á erfitt með að sofa. Ég á efitt með að lifa. Ég á erfitt með að hugsa. Ég á bara erfitt með að halda áfram. Það er búið að taka fram­tíð­ina af mér; allt sem ég ætl­aði að eiga. Það er búið að taka mann­inn sem ég elskaði út af líf­inu.“

Guðný: „Hann varð fljótt hel­tek­inn af að vera í góðu formi og vera sterkur og próf­aði stera og þá var ekki aftur snúið. Hann leidd­ist seinna meir í önnur hug­breyt­andi efni.“

Lilja seg­ist fá mik­inn styrk hjá Guðnýju og einni vin­konu sinni. Þá er hún komin í sorg­arteymi og mun fara til sál­fræð­ings eftir nokkrar vikur.

„Ég er að vinna í þessu.“

Hún seg­ist hafa íhugað sjálfs­morð eftir að Daníel lést en að hún vilji ekki að sonur sinn, sem er 13 ára, upp­lifi sorg­ina. Hún segir að hann hafi hjálpað sér mikið við að vilja halda áfram að lifa og gef­ast ekki upp.

Guðný og Lilja þekkt­ust lítið áður en Daníel dó; höfðu örfáum sinnum hist og þá aðal­lega á fyrr­ver­andi vinnu­stað þeirrar fyrr­nefndu. Verslun.

„Þau voru alltaf með grímu þannig að ég sá aldrei hvernig Lilja leit út,“ segir Guðný. „Við höfum hins vegar verið í miklu sam­bandi eftir að hann dó.“

Síðan Daníel dó hafa þær meðal ann­ars talað við prest og tvisvar farið saman í kirkju.

„Það hjálp­aði eitt­hvað,“ segir Guðný sem talar um að trúin hjálpi sér í dag.

Jarð­ar­förin.

Hvít kista.

Blómakransar.

Forspil: Dag í senn.

Drottinn er minn hirðir, mig mun ekk­ert bresta.

Ég leit eina lilju í holti,

hún lifði hjá steinum í mel.

Ó Danni minn (O Danny boy).

 Guðs son, mín sanna von.

Faðir vor. Þú sem ert á himnum.

Moldun.

Líkmenn lyftu kist­unni og báru út.

Hall­eluja.

Leiði Daníels.

Hvítur kross stendur við leiði Daníels. Þrítugur kvaddi hann þetta líf.

Ein­faldur kross eins og oft­ast er áður en leg­steinn er settur við leiði. Nafnið hans. Fæð­ing­ar­dagur og -ár og dán­ar­dagur og -ár. Og ein setn­ing.

Ein setn­ing sem segir svo margt.

„Minning þín lifir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina