Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigríði ekki boðin aðstoð eftir fósturlát: Send heim með barnið dáið í maganum

Sigríði ekki boðin aðstoð eftir fósturlát: Send heim með barnið dáið í maganum

Sigríður Jóns­dóttir og Magnús Kjartan Eyj­ólfs­son, fengu þær hræði­legu fregnir föstu­dag­inn 23. apríl síð­ast­lið­inn að engan hjart­slátt væri að finna hjá dóttur þeirra, sem Sigríður gekk með. Stúlkan væri látin.
Sigríður segir frá þessu í færslu á Facebook síðu sinni nú í dag.

Tveim dögum áður voru for­eldr­arnir í sónar og lítil spræk og heil­brigð stelpa sýndi allar sínar bestu hliðar, skrifar Sigríður. „Hún blés sápu­kúlur og minnti okkar á hvað væri framundan, jók á til­hlökkun, eft­ir­vænt­ingu og gleði yfir því sem við áttum framundan.“

Sigríður ók á föstu­deg­inum frá Selfossi, þar sem fjöl­skyldan býr, og á Land­spít­al­ann við Hring­braut, þar sem hún átti tíma í mæðra­skoðun.

,,Já ég get staðfest það, það er engin hjartsláttur

Sigríður lýsir ferl­inu sem fór af stað eftir að ljós­móðir hennar kallar eftir fæð­ing­ar­lækni til að skoða barnið í móð­ur­kviði betur, þar sem ljós­móð­ur­inni hafi reynst erfitt að finna hjart­slátt barns­ins.

„Hún reynir að hug­hreysta mig og segir að það sé bara betra að vera viss og skoða allt betur.“

Sigríður lagð­ist á bekk, lækn­ir­inn kynnti sig og sagð­ist ætla skoða þetta betur. Skjánum var snúið frá henni, ljósin slökkt og segir hún til­finn­ing­una í her­berg­inu hafa verið slæma.

Eftir að lækn­ir­inn skoð­aði hana, sagð­ist hann ætla kalla eftir öðrum fæð­ing­ar­lækni, tvo þurfi til að skoða svona og stað­festa.

Stað­festa hvað? Sigríði hafði ekk­ert verið sagt.

Skömmu síðar kom annar fæð­ing­ar­læknir, sem kynnti sig og sagði hálf kulda­lega að sögn Sigríðar, að honum hafi verið gert kunn­ugt um að erf­ið­lega gengi að finna hjart­slátt, þau skuli kíkja á þetta.

Eftir innan við mín­útu segir Sigríður lækn­inn hafa sagt: ,,Já ég get stað­fest það, það er engin hjart­sláttur, mér þykir það leið­in­legt.”

Sigríður lýsir því hvernig allt hafi stoppað í kringum sig, tárin hafi byrjað að leka og hún hafi rétt geta stunið upp „ertu viss?“

Fæð­ing­ar­lækn­ir­inn hafi þá snúið skjánum, stækkað upp són­ar­mynd­ina af barn­inu og sýnt henni líf­laust hjarta þess og sagt: „Já ég er viss“.
Hún hafi því næst litið á sam­starfs­menn sína og sagt: ,,Þetta er nýskeð, hefur gerst í nótt eða morgun,” síðan hafi hún farið jafn hratt og hún hafi komið.

„HÚN ER DÁIN“

Eftir sat Sigríður ein með ljós­móður og fæð­ing­ar­lækni og henni til­kynnt að það þurfi að taka blóðprufu, þvag­sýni og veiru­próf og best sé að gera það sem fyrst. Hún er spurð hvort hún þurfi ekki að hringja í ein­hvern, sem hún jánkar, en seg­ist ekki hafa verið í neinu ástandi til að eiga það sím­tal.
Sigríður hafði sam­band við Magnús, mann­inn sinn og seg­ist að lokum hafa geta öskrað upp í sím­ann „HÚN ER DÁIN.“
Magnús sem var á Selfossi dreif sig af stað til Reykja­víkur.

Á meðan sýnin eru tekin og um fimm mín­útum eftir að Sigríði hefur verið til­kynnt að dóttir hennar sé dáin, spyr fæð­ing­ar­lækn­ir­inn hvort hún hafi hugsað út í krufn­ingu.
Sigríður var vita­skuld ekki búin að hugsa um það, enda var hún að skipu­leggja skírn dóttur sinnar, ekki krufn­ingu hennar.
Því næst var Sigríði afhentur bæk­lingur um missi á með­göngu og blað sem sýndi ferlið sem framundan var, með vænt­an­legri gang­setn­ingu.

Útskýrt var fyrir Sigríði hvernig þetta færi fram og henni síðan sagt að mæta klukkan sjö á mánu­dags­morgni í gang­setn­ingu.

Farin ein út af sjúkrahúsinu innan við hálftíma eftir að henni var tilkynnt að barnið hennar væri látið

Sigríður átti ekki til orð, það átti að senda hana til Selfoss yfir helg­ina með barn sitt dáið í mag­anum.
Í bæk­lingnum sem Sigríði var afhent, sem gef­inn er út af Gleym mér ey styrkt­ar­fé­lagi, í sam­vinnu við kvenna­deild Land­spít­al­ans, segir: ,,Við mælum þó með að þið komið aftur innan 24 klst. Þar sem ekki er talið æski­legt að bíða með fram­köllun fæð­ingar lengur en þann tíma.”

Sigríður labbar út innan við hálf­tíma eftir að hún veit að engan hjart­slátt sé að finna hjá barni sínu.
Ein er hún send í burtu án þess að vera boðið aðstoð af nokkru tagi; áfalla­hjálp, boð­ist til að hringa fyrir hana í mann­inn hennar, henni boðið að bíða eftir honum inni á sjúkra­stofu, boðið að ræða við prest, ekk­ert.
Hún er send út og úti á plani í bílnum sínum situr hún ein, hágrát­andi, nið­ur­brotin af sorg þegar mað­ur­inn hennar kemur.

Þau Sigríður og Magnús spyrja: Hvernig þetta sé rétt­læt­an­legt? Hvernig hægt sé að rétt­læta þá með­ferð að senda þau heim til þess eins að bíða eftir því að það komi mánu­dagur til þess að fæða dóttur þeirra? Hvernig getur heil­brigð­is­kerfið farið í helg­ar­frí? Af hverju er þeim ekki veitt nein ráð­gjöf, verk­færi né aðstoð af ein­hverju tagi til þess að takast á við miss­inn og sorg­ina?

„Af hverju brást kerfið okkur svona harka­lega?“ skrifar Sigríður.

Magnús segir í sam­tali við Mannlíf að þau vilji þó leggja áherslu á að umræðan snú­ist ekki um ein­stakar per­sónur, heldur heil­brigð­is­kerfið og verk­farl­ana þar.

„Per­són­u­árásir eða mann­orðs­morð eru ekki að fara laga þá brota­löm sem er í kerf­inu,“ segir Magnús.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi