Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Lalli Johns verið edrú í 15 ár og sér eftir áratuga glæpaferlinum: „Mér leið illa á Litla-Hrauni“

Lalli Johns verið edrú í 15 ár og sér eftir áratuga glæpaferlinum: „Mér leið illa á Litla-Hrauni“
Myndir / Róbert Reyn­is­son.

Lárus Björn Svav­ars­son. Lalli Johns. Einn þekkt­asti afbrota­maður á Íslandi á síð­ustu öld. Hann ólst upp að miklu leyti á stofn­unum, fór ungur að drekka og dópa og hann sat reglu­lega inni á Litla-Hrauni fyrir afbrot sín. Rúmlega 40 refsi­dómar nær ein­göngu fyrir þjófnað. Síafbrota­maður í um 40 ár. Fang­els­is­vistin sam­svarar um 20 árum í allt. Hvar er hann í dag? Hver er hann í dag? Hann er búinn að vera edrú í um 15 ár. Er rólegur og ljúfur eldri maður.

Lalli Johns. Blaða­manni verður á björtum vor­degi allt í einu hugsað til Lalla Johns. Upp úr þurru. Hvar er hann nú? Hver er hann nú? Ætli hann sé til í við­tal?

Jú, hann er til í við­tal.

Lárus Björn Svav­ars­son, Lalli Johns, er sonur Ólafíu Sig­ur­björns­dóttur og Svavars Björns­sonar sem bæði eru látin. Hann fædd­ist í Reykja­vík árið 1951 og er einn af fimm systk­inum. Faðirinn var á sjónum. Drakk. Leiðir hjón­anna skildu. Ólafía vann við ræst­ingar. Fjöl­skyldan bjó við þröngan kost á nokkrum stöðum í Reykja­vík meðal ann­ars Kamp Knox og Pólunum.

Systk­inin fóru á flakk. Send á barna­heim­ili og stofn­anir.

Það hefur verið gerð mynd, heim­ild­ar­mynd, um Lalla. Hana gerði Þor­finnur Guðnason. Blaðmaður horfir á mynd­ina til að kynn­ast við­mæl­and­anum. Lalli var aug­ljós­lega undir áhrifum á meðan á tökum hennar stóð. Það kjaft­aði á honum hver tuska. Hress. Almenni­legur við mann og annan. Skemmti­legur.

Vildi bæta ráð sitt.

Hann er í mynd­inni oft í svörtum leð­ur­jakka sem skreyttur er litlum hjörtum og ýmsum orðum svo sem LOVE og FASHION. WILD FREE stendur stórum stöfum á bak­inu. Þar er líka mynd af haus­kúpu. Rauður litur í tómum augna­tóft­unum.

Þar sagði Lalli meðal ann­ars eft­ir­far­andi og er þetta tekið hér og þar í mynd­inni. Hist og her:

„Númer eitt, tvö og þrjú að hata engan nema þá sjálfan sig. En það er fyr­ir­gefið.“

„Hann er ágætis maður. Fínn kall. Hann er léttur á því,“ sagði maður einn í mynd­inni um Lalla Johns.

Kona heilsar Lalla með kossi á bar. „Ekki setja tung­una upp í mig,“ segir Lalli.

Í eitt skiptið þegar hann kemur af Litla-Hrauni:

„Heyrðu Siggi, viltu gá hvort ég hafi gleymt Bibl­í­unni inni?“

„Ég ætla að geyma hana þar til þú kemur aftur,“ segir fanga­vörður.

Lalli er ekki sáttur við þetta svar; að gert sé ráð fyrir að menn komi aftur og aftur á Hraunið. Spyr hvort mað­ur­inn geti sent Biblíuna niður í Fang­els­is­mála­stofnun.

„Ég er búinn að vera í edrú í rúma viku og er að reyna að gera eitt­hvað í mínum málum.“

Mig dreymdi nú bara að ég væri staddur ein­hvers staðar í ein­hverju húsi og það var mik­ill gleð­skapur. Það var verið að bjóða mér í glas og ég sagði „nei, takk“.

Hann gengur að keri fullu af sígar­ettu­stubbum. „Það er ekk­ert varið í þessa stubba. Það er ekki einu sinni hægt að reykja þá.“

Í einu skot­inu er hann leiddur í hand­járnum út úr fang­els­inu við Skóla­vörðu­stíg. Jólalag spilað undir. „I wish you a Merry Christmas.“ Hljóð­færi ein­göngu. Enginn söngur.

Lalli afhendir dóm­ara jóla­kort. Ekki í fyrsta skipti virð­ist vera sem hann fær jóla­kort frá Lalla.

Lalli les æðru­leys­is­bæn­ina að hluta:

Guð gefi mér æðru­leysi
til þess að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því sem ég get breytt

og vit til að greina þar á milli

„Jú, ég kann þetta alveg,“ segir hann í lok lest­urs­ins.

„Ég er ekki hræddur við neinn ein­asta mann nema sjálfan mig. Ég veit ekk­ert hver ég er,“ segir Lalli þar sem hann gengur á gang­stétt í huggu­legu íbúða­hverfi. Býður eldri manni góða kvöldið sem stendur fyrir framan hús sitt.

Hann talar um að hafa verið sendur hingað og þangað á sínum tíma og aldrei spurður. Og þegar móðir hans dó þá missti hann besta vin sinn. Talar um að eng­inn muni syrgja sig þegar hann deyr.

Kirkju­klukkur klingja.

Lalli fer í kirkju­garð. Stendur við ómerktan við­ar­kross við leiði móður sinnar. Kyssir á kross­inn.

Eftir að hafa horft á mynd­ina er aug­ljóst að Lalli er ljúfur og glað­lyndur. Hann sýndi að sögn kunn­ugra ekki ofbeld­is­hegðun í gegnum ára­tug­ina, og er þá átt við lík­am­legt ofbeldi, og þegar neysla og afbrot ein­kenndu líf hans þá var hann gjaf­mildur og þá sér­stak­lega þegar kom að börnum og þeim sem áttu erfitt.

Umfjöll­unin um Breiða­vík­ur­málið fyrir um tveimur ára­tugum hafði svo mikil áhrif á Lalla að hann fór í með­ferð og hætti allri neyslu; hefur einu sinni fallið síðan þá. Og síðan ekki sög­una meir.

Býr á Draumasetrinu

Sólríkur vor­dagur í maí 2021. Systir Lalla kemur til dyra á heim­ili sínu en Lalli tók leigu­bíl þangað til að hitta blaða­mann. Hvítur, lít­ill hundur heilsar blaða­manni með því að standa á tveimur fótum og leggja fram­fæt­urna á fætur blaða­manns. Tík. Hún heitir Birta.

Herða­breiður maður situr í stól í stof­unni. Snýr baki í þá sem koma inn í stof­una.

Lalli Johns.

Hann lítur upp. Heilsar. Ljósblá augu. Góðlegur. Ljúfur. Rólyndur. Hann er allt öðru­vísi en mað­ur­inn sem heim­ild­ar­myndin er um en áður var það spít­tið og önnur eit­ur­lyf sem breyttu per­sónu­leika hans. Lalli Johns er allt annar maður í dag. Allt annar per­sónu­leiki.

Hann er snyrti­lega klæddur.

Í dökkri skyrtu. Grár hattur liggur á borð­inu.

Winston-sígar­ettu­pakki fyrir framan hann.

Lalli hefur und­an­farin ár búið á áfanga­heim­il­inu Drauma­setr­inu sem ætlað er fyrr­ver­andi fíklum. Þess má geta að hið opin­bera styrkir ekki Drauma­setrið.

„Það er mjög gott að vera þar. Þar er öll þjón­usta. Ég er með ræst­inga­konu og svo er ég með hjúkr­un­ar­konu,“ segir Lalli en fyrir utan að fá þjón­ustu hjúkr­un­ar­fræð­ings reglu­lega fer hann auk þess reglu­lega í sjúkra­þjálfun. Og svo er hann með lið­veislu. „Svo eru fundir á mánu­dögum, þriðju­dögum, svo mið­viku­dögum, fimmtu­dögum, föstu­dögum,“ segir Lalli. „Svona klukku­tíma fundir og þá er lagt fyrir hvað maður þarf að gera. Og málin tekin fyrir. Það hefur gengið mjög vel fram að þessu. Og allir voða ánægðir með það og allir mæta á þennan fund. Það er eig­in­lega hús­fundur á mið­viku­dögum. Einn og hálfur eða tveir tímar. Það koma allir saman í eitt her­bergi í stof­unni niðri. Og þá eru málin rædd, sko. Það hefur gef­ist vel fram að þessu. Það er alltaf fólk að koma og fara þarna hjá Drauma­setr­inu. Það stoppa sumir lengi og aðrir lengur.“

Lalli er spurður hvernig hann verji almennt deg­inum burt­séð frá fund­unum.

„Ég labba í kringum stað­inn og hef gripið í bækur og eytt deg­inum innan um liðið niðri.“

Hvað með ráð til ungs fólks sem er að feta sömu braut? „Ég myndi segja við það að það ætti nú bara að fara sér hægt. Líta til hægri og vinstri. Þetta er hættu­legur heimur.“

Hann er spurður hvernig bækur hann lesi aðal­lega. Það eru spennu- og glæpa­sögur.

Lalli býr við mikið öryggi á Drauma­setr­inu; það má jafn­vel segja að það sé fyrsta heim­ilið sem hann eign­ast.

Hjá Ólafi Hauki og Elínu Örnu sem reka Drauma­setrið fékk blaða­maður þær upp­lýs­ingar að Lalli sé hvatn­ing fyrir stóran hóp af ungu fólki sem er að taka sín fyrstu skref í nýju lífi án áfengis og fíkni­efna.

„Það hefur komið fyrir að þeir hafa spurt mig til vegar. Hafa spurt að því hvernig ég hafi farið að því að hætta að drekka og dópa.“

„Lalli á það til að slökkva á ljósum ef kveikt er á þeim um miðjan dag og gengur hann oft um húsið og slekkur þau. Svo fer hann með bolla og glös inn í eld­hús sem aðrir hafa skilið eftir,“ segir Ólafur Haukur. „Við hér á Drauma­setr­inu erum afar þakk­lát að Lalli ákvað að vera hér þrátt fyrir önnur boð um búsetu og þjón­ustu og teljum við að þessi vilji hans sé vegna þess kær­leika og vin­áttu sem ríkir hér, enda er Lalli kær­leiks­bolti sem allir elska.“

Lalli er spurður hvort hann sjái eftir inn­brot­unum. „Já,“ segir hann. Sam­visku­bit? „Já.“

Breiðavík

Jú, Lalli fædd­ist í Reykja­vík árið 1951. Fjöl­skyldan bjó á nokkrum stöðum og þar á meðal í bragga í Kamp Knox.

Heim­il­is­að­stæður voru erf­iðar og var Lalli óró­legur og ódæll. ADHD? Þess má geta að meiri­hluti fanga er með ADHD. Hann fékk ekki neina aðstoð í æsku svo sem grein­ingu eins og gert er í dag. Hann var ein­fald­lega vistaður tveggja til þriggja ára gam­all á barna­heim­il­inu Sil­unga­polli, síðan sendur sjö ára gam­all á barna­heim­ilið Reykja­hlíð í Mos­fells­dal og svo á heima­vist­ar­skól­ann að Jaðri.

Hann man lítið eftir dvöl­inni á þeim stöðum þar sem hann var vistaður.

„Ég man eftir að það var sund­höll í Reykja­hlíð en heil hlaða hafði verið gerð að sund­höll. Og við lékum okkur mest­megnis þar.“

Hann átti þar tvo vini. Rúnar og Valda.

„Við vorum þrír saman þar.“

Lalli var svo 10 ára gam­all þegar hið opin­bera sendi hann á Breiða­vík þar sem hann var í nokkur ár og fékk hann ekki að hitta fjöl­skyldu sína allan þann tíma. Lög­reglan sótti hann heim til hans og fór með hann. Það fór lítið fyrir námi og seg­ist hann hafa unnið myrkr­anna á milli. Hann var beittur ofbeldi og voru það eldri drengir sem það gerðu.

Hann seg­ist ekki muna mikið frá þessum tíma.

„Þegar maður hugsar um það þá man maður kafla og kafla. Ég fór þangað af því að ég átti að hafa verið bald­inn ung­lingur. Ég var sendur út af því að ég hlust­aði ekki á fólk og fór mínar eigin leiðir. Og það mátti ekki. Ég átti bara að fara eftir því sem þau sögðu. Þá var ég bara sendur á Breiða­vík. Ég fékk aldrei neina almenni­lega skýr­ingu á því hvers vegna ég var sendur þangað.“

Ég var svona 17-18 ára þegar ég braust inn í fyrsta skipti. Svona þró­að­ist þetta bara og ég reyndi að fylgja þessu ein­hvern veg­inn. Þetta var ein­hver ævin­týra­þrá. Eitthvað til að gera öðru­vísi en aðrir.

Ofbeldi. Ofbeldi á Breiða­vík.

Lalli ræskir sig.

„Það voru eldri og yngri strákar. Ég var í yngri hópnum. Svo voru þeir yngri svo hræddir þegar eitt­hvað kom fyrir; þá voru þeir læstir inni í her­bergi. Þá pössuðu þeir eldri að það kæm­ist ekki upp.“

Svo var farið að fjalla um Breiða­vík­ur­málið ára­tugum síðar.

„Það var svo mikil leynd yfir staðnum. Það kom ekki allt fram sem átti að koma fram. Uppeldið á krökk­unum þarna var ekki alveg í lagi.“

Jú, Breiða­vík komst í frétt­irnar á sínum tíma vegna harð­neskju þeirrar sem íbúar voru beittir og bað Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, vist­heim­ila­börn afsök­unar fyrir rúmum tveimur ára­tugum þegar farið var að fjalla um málið. Hún gerði það í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi 12. mars 2009:

„Ég vil fyrir hönd íslenskra stjórn­valda og íslensku þjóð­ar­innar biðja fyrr­ver­andi vist­menn á Breiða­vík­ur­heim­il­inu og fjöl­skyldur þeirra afsök­unar á þeirri ómann­úð­legu með­ferð sem þeir voru látnir sæta. Ég vil sömu­leiðis biðja alla þá afsök­unar sem hafa sem börn verið vistaðir á stofn­unum eða heim­ilum fyrir til­stuðlan opin­berra aðila hér á landi og sætt þar illri með­ferð eða ofbeldi.“

Jóhanna sagði þá frá við­ræðum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og for­svars­manna Breiða­vík­ur­sam­tak­anna um hug­myndir að bóta­greiðslum til handa þeim sem voru á vist­heim­ilum og einu ári síðar voru sett lög um greiðslu sann­girn­is­bóta. Þeir áttu rétt á bótum sem höfðu orðið fyrir var­an­legum skaða af illri með­ferð eða ofbeldi á stofn­unum eða vist­heim­ilum á vegum hins opin­bera.

Lalli Johns var einn af þeim. Hann fékk eina og hálfa milljón en átti víst að fá meira. Þá pen­inga hefur hann aldrei séð.

Umfjöll­unin um Breiða­vík­ur­málið fyrir um tveimur ára­tugum hafði svo mikil áhrif á Lalla að hann fór í með­ferð og hætti allri neyslu; hefur einu sinni fallið síðan þá. Og síðan ekki sög­una meir.

Síafbrotamaður í um 40 ár

Lalli er spurður um draumana á æsku- og ung­lings­ár­unum.

„Maður spáði lítið í það hvað væri fram undan. Hvað tæki við. Ég bjóst kannski við því að það væri það sama og væri búið að vera og svo sem sagt að eitt­hvað annað tæki við. Eitthvað betra.“

Hann losn­aði frá Breiða­vík 14 ára gam­all og stað­festi í kjöl­farið fyrir Guði og mönnum að hann vildi þiggja þá sam­fylgd með Guði sem beðið var fyrir í skírn­inni.

Hann var kom­inn í full­orð­inna manna tölu.

Barnið Lárus fékk sér fyrsta sopann níu ára gam­all.

Fór að reykja. Reykti fyrst njóla.

Sopunum fjölg­aði á ung­lings­ár­unum og varð Lalli tíður gestur á skemmti­stöðum borg­ar­innar. Aust­ur­bar­inn var í upp­á­haldi. Þar fékk Lárus nafnið „Johns“. Það teng­ist senni­lega því að hann hafi verið hlið­holl­ari Lyndon B. Johnson, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seta, heldur en Kennedy.

Síðan var það Silf­ur­tunglið.

Brenni­vín. Hass. Amfetamín.

Innbrot.

„Ég var svona 17-18 ára þegar ég braust inn í fyrsta skipti. Svona þró­að­ist þetta bara og ég reyndi að fylgja þessu ein­hvern veg­inn. Þetta var ein­hver ævin­týra­þrá. Eitthvað til að gera öðru­vísi en aðrir.“

Lalli var að sögn kunn­ugra ekki ofbeld­is­fullur og er þá átt við lík­am­legt ofbeldi. Þetta voru mest auðg­un­ar­brot.

Lalli hefur lítið unnið á almennum vinnu­mark­aði í gegnum tíð­ina. Hann vann hins vegar þegar hann var vistaður á Litla-Hrauni. Hann lenti í slysi þegar hann var 35 ára og hefur síðan verið á örorku­bótum.

Lalli sat reglu­lega inni á Litla-Hrauni fyrir afbrot sín. Rúmlega 40 refsi­dómar nær ein­göngu fyrir þjófnað. Síafbrota­maður í um 40 ár. Fang­els­is­vistin sam­svarar um 20 árum í allt.

„Það var skrýtið að vera á Litla-Hrauni,“ segir hann. „Mér leið illa þar. Já, það var voða­lega mis­jafnt að vera þar. Það var aldrei eins.“

Hann teygir sig eftir Winston-sígar­ettu­pakk­anum. Stendur upp og fer út á svalir til að reykja.

Reyk­ur­inn úr sígar­ett­unni lið­ast upp í loftið eins og minn­ingar.

Hann kemur síðan inn og sest aftur við borðið.

Setur fljót­lega hatt­inn á sig. Gráa hatt­inn.

Birta stendur fyrir framan hann og hann klappar henni. Hann er dýra­vinur. Þekktur fyrir að vera slíkur. Þekktur fyrir að vera ljúfur. Sagan segir að hann hafi tekið mál­stað kvenna í und­ir­heimum áður fyrr.

„Já, það var stundum sem ég gerði það. Þá var eins og ég væri ein­hver bjarg­vættur.“

Las ljóð eftir Stein Steinarr

Talið berst aftur að Litla-Hrauni þegar Birta er lögst undir borð.

„Mér leið nú ekk­ert vel þar,“ segir Lalli en Hraunið var eins og hans annað heim­ili. Eða bara sem hans aðal­heim­ili í ára­tugi en þess á milli var hann oft hús­næð­is­laus og gisti í gisti­skýlum eða hjá vinum. „Það kom oft fyrir að mér leidd­ist á Litla-Hrauni. Dagarnir liðu mis­jafn­lega. Það var mis­jafnt hvað ég hafði fyrir stafni. Tíminn var mis­jafn­lega lengi að líða. Fanga­verð­irnir voru allt í lagi, sko. Þeir voru nokkuð lið­legir og tóku þátt í starf­inu. Ef maður þurfti þá voru þeir mjög lið­legir að hjálpa manni. Þeir voru mis­jafnir eins og þeir voru margir. Þetta eru tvö aðskilin hús sem sagt. Maður gat um frjálst höfuð strokið.“

„Mér leið nú ekk­ert vel þar,“ segir Lalli en Hraunið var eins og hans annað heim­ili. Eða bara sem hans aðal­heim­ili í ára­tugi en þess á milli var hann oft hús­næð­is­laus og gisti í gisti­skýlum eða hjá vinum. „Það kom oft fyrir að mér leidd­ist á Litla-Hrauni.“

Svo vann hann á Hrauninu eins og þegar hefur komið fram..

„Maður reyndi að vinna bara sem sagt allan dag­inn og þá var ég að vinna úti í steypu­skál­anum. Vann sem sagt frá níu á morgn­ana til fimm á dag­inn. Fimm sex á dag­inn.

Hann var oft undir áhrifum þegar hann sat inni.

„Já, maður var nú ekki alltaf alls­gáður þarna,“ segir Lalli. „Það var allur gangur á því. Maður reyndi að vera öðru­vísi en maður átti að vera. Reyndi aldrei að vera eins.“

Tvisvar flúði hann úr fang­els­inu.

Blaða­maður spyr hvernig honum hafi tek­ist að strjúka.

„Það var bara af því að það var ein­hver bilun í kerf­inu.“

Í heim­ild­ar­mynd­inni segir félagi Lalla frá því að einn fang­inn hafi brotið rúðu í klefa Lalla og hann hafi verið til­neyddur til að taka þátt.

Sagan segir að hann hafi tekið mál­stað kvenna í und­ir­heimum áður fyrr. „Já, það var stundum sem ég gerði það. Þá var eins og ég væri ein­hver bjarg­vættur.“

Og svona var mynstrið í ára­tugi. Inn og út af Hrauninu fyrir alls kyns afbrot. Auðg­un­ar­brot.

„Stundum fylgdi maður bara straumnum og stundum þegar atburðir voru að ske þá leidd­ist maður með við­tak­anda og svona; eins og maður segir – maður tók þátt og var ekk­ert að hugsa hvað var að ger­ast í þetta og þetta skiptið og allt í einu var ég búinn að lenda í ein­hverjum ógöngum eða ein­hverju atviki sem ég ætl­aði kannski ekki að taka þátt í.“

Nokkrar sögur af Lalla eru frægar svo sem þegar hann var búinn að brjót­ast inn í hús, búinn að koma ráns­fengnum fyrir á gangi þar inni og beið eftir að félagi sinn myndi sækja sig en þá náði hann sér í ljóð­bók eftir Stein Steinarr og var að lesa uppi í sófa þegar lög­reglan kom. Í annað skipti var hann að fara að brjót­ast inn í hús í Hvera­gerði. Hús­ráð­andi varð var við hann og spurði hvað hann væri að gera. Lalli sagð­ist hafa ætlað að hrigja á leigu­bíl.

Fólk brosir kannski út í annað, hlær kannski, en fólki sem hefur orðið fyrir tjóni vegna þess­ara inn­brota kemur hins vegar ekki hlátur í hug.

Lalli er spurður hvort hann sjái eftir inn­brot­unum.

„Já,“ segir hann.

Sam­visku­bit?

„Já.“

Lalli er spurður hvernig hann myndi vilja lifa líf­inu ef hann væri ungur maður í dag.

„Ég myndi vilja hafa það öðru­vísi en það var. Ég myndi gera hell­ings breyt­ingu. Ég gengi mennta­veg­inn sem ég fór á mis við.“

Segja má að Lalli Johns sé „fag­maður“ í sínu fagi; hann þekkti und­ir­heima inn og út á árum áður en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Hvað með ráð til ungs fólks sem er að feta sömu braut?

„Ég myndi segja við það að það ætti nú bara að fara sér hægt. Líta til hægri og vinstri. Þetta er hættu­legur heimur.“

„Draum­ur­inn er að vera frjáls og hafa svona speis fyrir sig og sína. Það er það sem ég mest hugsa um.“

Hvað með erlendar glæpaklíkur hér á landi?

„Mér finnst það eig­in­lega vera rugl.“

En hvað með menn sem stela jafn­vel millj­örðum eða koma undan millj­örðum og kom­ast undan með það?

„Mér finnst það vera órétt­látt. Það segir sig sjálft.“

Lalli er spurður hvort hann hafi orðið fyrir for­dómum. Aðkasti.

„Já, eitt­hvað. Ég tek það ekki nærri mér.“

Hann er spurður í hverju þeir for­dómar hafi falist.

Nokkrar sögur af Lalla eru frægar svo sem þegar hann var búinn að brjót­ast inn í hús, búinn að koma ráns­fengnum fyrir á gangi þar inni og beið eftir að félagi sinn myndi sækja sig en þá náði hann sér í ljóð­bók eftir Stein Steinarr og var að lesa uppi í sófa þegar lög­reglan kom.

„Það er voða­lega hvers­dags­legt.“

Hann á fjögur börn og er í sam­bandi við þrjú þeirra. Barna­börnin eru þrjú. Þetta fólk er auður Lalla Johns.

Birta geltir. Skjanna­hvít.

Jú, Lalli vill verða betri maður en hann var. Og hann er orð­inn betri maður heldur en hann var.

Lalli fékk hjarta­á­fall fyrir nokkrum árum síðan. Hann var við dauð­ans dyr. Lá á hjarta­deild. Og það var síðan settur í hann gangráður.

Lalli er spurður hvort hann hafi verið hræddur við að deyja.

„Já, svona, mér leið öðru­vísi. Mér var eig­in­lega smá­brugðið. Ég vissi bara ekki hvernig það færi.“

Svo hefur hann verið slæmur af asma und­an­farin ár. Asmapústið er eina lyfið sem hann tekur í dag.

Lárus Björn Svav­ars­son, Lalli Johns, átti sér enga drauma á æsku- og ung­lings­ár­unum. Hann er spurður hvort hann eigi sér ein­hverja drauma í dag.

„Draum­ur­inn er að vera frjáls og hafa svona speis fyrir sig og sína. Það er það sem ég mest hugsa um.“

Hann er spurður hvort hann hafi dreymt eitt­hvað um nótt­ina áður en við­talið var tekið.

„Það var nú lítið. Mig dreymdi nú bara að ég væri staddur ein­hvers staðar í ein­hverju húsi og það var mik­ill gleð­skapur. Það var verið að bjóða mér í glas og ég sagði „nei, takk“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum