Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Mín skoðun umdeild og ég verð barin niður“: Birna stendur upp til varnar íslenskum karlmönnum

„Mín skoðun umdeild og ég verð barin niður“: Birna stendur upp til varnar íslenskum karlmönnum

Birna Val­týs­dóttir segir ekki kaupa allan skít­inn sem flæði um sam­fé­lags­miðl­ana hvað varðar ásak­anir á hendu ónafn­greindum íslenskum karl­mönnum sem sak­aðir eru um hitt og þetta ofbeldið í garð kvenna. Hún seg­ist með­vituð um að skoðun sín sé umdeild og að hún verði án efa barin niður.

Birna birti langa færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún tekur upp hansk­ann fyrir íslenska karl­menn. Þar segir hún sjálfa hafa logið upp á þá og kom­ist upp með það í gegnum tíð­ina.

Hér kemur færsla Birnu í heild sinni:

Birna Val­týs­dóttir.

„Mig langar til að byrja þennan pistil á því að und­ir­strika að and­legt, lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi er í alla staði óaf­sak­an­legt. MeToo hreyf­ingin: frá­bær. Fem­in­ismi: frá­bær. GRL PWR alla f** leið!

Í gegnum síð­ustu vikur hefur mig langað að segja margt, koma skoðun minni á fram­færi og taka þátt. Því mín skoðun er stór og mín skoðun er sterk en hefur ein­fald­lega ekki ratað inn í umræð­una vegna ótta. Mín skoðun verður alveg örugg­lega umdeild og ég verð barin niður, en þrátt fyrir það hef ég ákveðið að láta hana í ljós. Því eftir nokkrar vikur af stans­lausum sam­ræðum um þessi mál hef ég kom­ist að þeirri stað­reynd að margir deila minni sýn á þessa nýj­ustu MeToo bylgju eins og hún birt­ist okkur í dag.

Mig langar til að taka upp hansk­ann fyrir karl­mönnum okkar lands. Karl­mönn­unum okkar: feður, synir, bræður, frændur, vinir, kærastar, eig­in­menn. Ég kaupi ekki allan skít­inn sem um ykkur er sagt á sam­fé­lags­miðlum eða í fjöl­miðlum. Ég gef ykkur „the benefit of the doubt“ og ég er ekki sú eina.

Ég er kona. Ég veit hvernig það er að vera kona. Ég veit hvernig það er að fá óum­beðna athygli fá karl­mönnum. Ég þekki alla þrá­hyggj­una sem fylgir því að vera hafnað af karl­manni, það hefur verið haldið fram­hjá mér og ég hef verið hunsuð eftir að hafa sofið hjá. Ég hef orðið fyrir ofbeldi og ég hef beitt ofbeldi. Ég hef barist við alka­hól­isma og átröskun. Þegar ég var sem veik­ust gerði ég ljóta hluti til að fá mínu fram­gengt. Ég hef logið, ég hef svikið og ég hef skaðað annað fólk. Ég er ekki þessi kona í dag, ég tel mig vera góða mann­eskju en er þó langt frá því að vera full­komin.

Ég er alls ekki eina konan þarna úti sem hefur logið, beitt and­legu og/eða lík­am­legu ofbeldi og kom­ist upp með það. Ég hef við­ur­kennt það og mér var fyr­ir­gefið, mér var hrósað, vegna þess að ég er kona. Ég hef horft upp á fyr­ir­myndar karl­menn, virki­lega góða menn fara í gegnum hræði­leg mál tálm­unar, meinað umgengni að eigin börnum án nokk­urs sann­leika eða ástæðu en mæð­urnar með allan rétt­inn. Konum er nauðgað og ger­endur ganga lausir án refs­ingar, menn fremja morð án afleið­inga og ég gæti haldið enda­laust áfram. Þetta kerfi okkar er aug­ljós­lega gallað.. en þetta sam­fé­lag sem við lifum og hrærumst í dag, er mein­gallað líka. Því miður þá er mann­kynið ekki betra en þetta. Við ljúgum og við sköðum aðra, oft án þess að gera okkur grein fyrir skað­anum sem við völdum öðru fólki. Við slúðrum og við ýkjum sögur hvert af fætur öðru. Með hverri mann­eskju sem tekur við slúðr­inu og ber það áfram bæt­ist við nýr krydd­aður lygamoli sem ýkir sögu­sagnir og sagan endar auð­vitað aldrei eins og hún er í raun.

Það eru nokkrar ástæður fyrir því að kerfið okkar virð­ist oft „halda með“ ger­endum þegar kemur að ofbeld­is­á­kærum. Ein ástæðan er sú að það eru margir þolendur sem ljúga. Þessir „þolendur“ kæra af öðrum ástæðum en sann­leik­anum. Þeir kæra til að hefna sín, til að fá skaða­bætur, til að smána ein­stak­ling­inn sem þau bera kannski gamla og/eða óupp­gerða gremju til, svo eitt­hvað sé nefnt. Þær kæra fyrir ofbeldi sem þær beittu sjálfar. Ég veit til þess að konur hafi kært menn um nauðgun vegna þess að þær héldu fram­hjá – það komst svo upp – og þetta var nið­ur­staðan: „Hann nauðg­aði mér“. Ég hef séð konu biðja mann afsök­unar á einmitt þessu, eftir að sá maður sat í fang­elsi fyrir brotið, sem reynd­ist svo ekki hafa verið brot. Var þeirri konu refsað? Var talað um þetta opin­ber­lega? Nei… Ég þekki og hef rætt við marga karl­menn sem hafa lent í svip­að­ari reynslu. Það má setja undir sama hatt­inn karl­menn sem verða fyrir and­legu og/eða lík­am­legu ofbeldi, sem bregð­ast á end­anum við ofbeld­inu með ofbeldi og eru þar með stimpl­aðir ger­endur en ekki þolendur. Fyrir mér virð­ist þetta vera mjög algeng lífs­reynsla fyrir karl­menn hér á landi.

Sam­fé­lagið okkar er þannig í dag að ég gæti vaknað einn dag­inn og ákveðið að eyði­leggja mann­orð fyrr­ver­andi kærasta míns á svip­stundu… og mér myndi takast það. Ef ein­hver efast þennan „sann­leika“ sem ég setti af stað út í kosmós­inn, þá verður sá og hinn sami jarð­aður af múgæs­ingi kvenna og karla sem hafa lent í svip­að­ari reynslu eða þekkja ein­hvern sem hefur lent í svip­að­ari reynslu. Konur og karlar sem færa sinn eigin sann­leika, sína eigin upp­lifun yfir á eitt­hvað mál sem er alls ekki þeirra eigið, alls ekki þeirra sann­leikur, heldur lygi sem eng­inn trúir að nokkur myndi ljúga.

Þær lygar sem við trúum ekki að ein­hver myndi voga sér að ljúga, það eru einmitt þær lygar sem fólk kemst upp með. Sannir lygarar vita þetta. Sannir lygarar kunna þetta. Ekki taka þá afstöðu að halda því fram að það sem þú lest í fjöl­miðlum eða sam­fé­lags­miðlum sé heil­agur sann­leikur. Staldr­aðu við og taktu öllu með fyr­ir­vara. Frétta­mennska snýst um að fá bestu frétt­ina. Ekki sann­leik­ann.

Við skulum ekki gleyma því að algeng­asta dán­ar­or­sök ungra íslenskra karl­manna er sjálfs­víg. Vertu því viss um að þú sért ekki að taka þátt í nið­ur­broti sem á ekki rétt á sér. Vertu viss um að þú sért ekki að styðja ein­stak­ling sem er að ýkja eða ljúga, ein­stak­ling sem gerir það að verkum að kærum hjá raun­veru­legum fórn­ar­lömbum sé vísað frá.

Ekki taka afstöðu – ef þú hefur bara heyrt eina hlið máls­ins.

Ekki dæma aðra og ekki slúðra.

Aðgát skal höfð í nær­veru sálar.

Batnandi MÖNNUM OG KONUM er best að lifa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina