Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Guðrún elskar að strauja og hefur aldrei komið inn í Alþingishúsið: „Ísinn myndi bráðna í nefnd“

Guðrún elskar að strauja og hefur aldrei komið inn í Alþingishúsið: „Ísinn myndi bráðna í nefnd“

„Ég er hræði­legur hrak­falla­bálkur og dett á haus­inn á hverju ári. Eitt árið sleit ég lið­bönd á báðum fótum sem var skelfi­lega vand­ræða­legt enda þurfti ég aðstoð með flest fyrstu vik­urnar. Þetta er senni­lega út af því að ég er alltaf að flýta mér, sífellt á hlaupum. Ef ég dett á haus­inn í kosn­inga­bar­átt­unni plástra ég það bara og held áfram. Maður lætur ekki hlut­ina stoppa sig ef maður kemst hjá því,” segir Guðrún Haf­steins­dóttir sem hlaut kosn­ingu sem odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi.

Fyrsta atvinnuumsóknin

Guðrún er bor­inn og barn­fæddur Hver­gerð­ingur og þekkja hana margir sem Kjör­ís­kon­una enda hefur hún starfað nær allan sinn sinn starfs­feril hjá fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu Kjörís ehf. í Hvera­gerði.

„Ég er fædd árið 1970 og þetta er í fyrsta skipti sem ég sæki um starf þar sem ég hef alltaf starfað hjá Kjörís. Og þá sæki ég um vinnu hjá þjóð­inni, hvorki meira né minna. Ég veit ekki hvort maður á að við­ur­kenna þetta en ég hef aldrei stigið fæti inn í Alþing­is­húsið. Ég hef komið inn á skrif­stofur ein­stakra þing­manna sem eru hist og her um mið­bæ­inn en aldrei sjálft húsið“.

Guðrún hefur alla tíð verið virk í félags­málum setið í fjölda nefnda, stofn­aði sund­deild Íþrótta­fé­lags­ins Hamars og setið í fjölda stjórna. Hún var meðal ann­ars for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins árið 2014 og var þar for­maður til 2020.

Elskar fallega frágenginn þvott

Guðrún er ein fjög­urra systk­ina, dóttir hjón­anna Lauf­eyjar Valdi­mars­dóttur og Haf­steins Krist­ins­sonar. Hún seg­ist hafa átt ynd­is­lega æsku í Hvera­gerði og búa öll systk­inin þar enn í dag. Hún er í sam­búð með Hans Krist­jáni Ein­ars­syni Hagerup, gull­smið og eiga þau sam­tals sex börn svo það er líf og fjör á heim­il­inu.

„Ég hef virki­lega gaman af að vera hús­móðir, stúss­ast í eld­hús­inu, taka á móti gestum og hafa fjör og gaman í hús­inu. Mér finnst fátt skemmti­legra en að taka slátur, baka brauð og gera sultur. Og strauja“.

Strauja?

Guðrún hlær. „Ég veit! Ég ræð ekki við það en ég elska bara fal­lega frá­geng­inn þvott. Mér finnst til dæmis fátt betra en að strauja yfir sjón­varp­inu“.

Ísinn myndi bráðna í nefnd

Hún elskar líka að hitta fólk.

„Ég er mann­fræð­ingur og brenn­andi áhuga á fólki og öllu sem að því snýr. Þess vegna fannst mér svo gaman í próf­kjörs­bar­átt­unni, þá gat ég verið að hitta fólk alla daga frá morgni til kvölds“.

Hún seg­ist aldrei hafa gengið með þing­mann­inn í mag­anum í gegnum tíð­ina.

„Ég horfði lengi vel á Alþingi með hálf­gerðum hryll­ingi. Sem aðila úr atvinnu­líf­inu hefur mér fund­ist öll ákvarð­ana­taka ganga óskap­lega hægt. Ef ég kýs til dæmis að koma með nýjan ís á markað er hann kom­inn í versl­anir á innan við mán­uði. Á Alþingi myndi hann bráðna í nefnd enda þingið fullt af fólki sem hefur setið sem fast­ast svo ára­tugum skiptir og vill hrein­lega ekki hætta“.

Guðrún seg­ist til­búin núna. „Ég veit að það er mikil vinna og ábyrgð að sitja á þingi en börnin eru orðin stór og mér finnst ég sjaldan eða aldrei hafa verið jafn orku­mikil”.  Aðspurð hvort hún hafi ráð­herr­ann í mag­anum svarar Guðrún að svo sé ekki endi­lega en að eng­inn leggi í það að fara í stjórn­mál nema hafa löngun til breyt­inga. „Og allir vita að mestu áhrifin koma úr ráð­herra­sæti.”

Er aldrei í efsta stigi

Guðrún segir ríf­andi stemn­ingu hafa verið í bar­átt­unni sem hafi farið drengi­lega fram. „Auðvitað var komin smá harka og stuð í þetta í blá­end­ann en það var frekar innan stuðn­ings­manna­hópanna en okkar fram­bjóð­enda. Þetta er flottur og mjög fram­bæri­legur listi”.

Hún segir gott gengi ekki hafa komið sér á óvart, hún hafi í langan tíma verið hvött til að fara í fram­boð. „Ég setti bara markið hátt, lagði allt undir og stefndi á fyrsta sætið. Það reynd­ist borga sig“.

Hún brennur fyrir mörgu, meðal ann­ars sam­göngu­málum og atvinnu­málum. „Ég er alin upp í litlu einka­reknu fyr­ir­tæki sem hefur mótað skoð­anir mínar og áhuga á íslenskum iðn­aði. Öll okkar vel­ferð bygg­ist á að okkur tak­ist að halda uppi útflutn­ings­tekjum“. Hún er einnig ein­örð í afstöðu sinni til heil­brigð­is­mála. „Heilsu­gæslan á Reykja­nesi er til dæmis ekki boð­leg. Hugsaðu þér að þar hefur mann­fjöldi auk­ist um 12 þús­und manns á meðan ekki hefur verið bætt við einu ein­asta stöðu­gildi læknis!“

Aðspurðu um bestu stund­irnar í líf­inu segir hún þau systk­inin aldrei hafa verið í efsta stigi. „Okkar mottó er ein­fald­lega að vona hið besta. Stór­feng­legu stund­irnar eru þessar ein­földu, að vera heima með fólk­inu sem manni þykir vænt um, borða góðan mat eða sitja á þúfi úti í íslensku nátt­úr­unni. Það þarf ekki mikið til að gleðja mig, ég á gamlan bíl og hús fullt af gömlu drasli.

Nægju­semin er gjöf frá pabba á dán­ar­beð­inu, ég var aðeins 23 ára þegar ég missti hann og lærði þá að lífið er hverf­ult. Það má segja að það hafi mótað mig á vissan hátt, það eru ekki ver­ald­legu hlut­irnir sem skipta máli öllu í líf­inu,” segir Guðrún Haf­steins­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una