Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jónína stýrimaður lýsir einelti hjá Eimskip: „Áhöfninni var bannað að hjálpa mér“

Jónína stýrimaður lýsir einelti hjá Eimskip: „Áhöfninni var bannað að hjálpa mér“

„Áhafna­stjór­inn hafði það mikið mikið á móti mér að hann lagði ríka áherslu á að ég yrði fyrir ein­elti skips­fé­laga. Það tókst á síð­asta skip­inu sem ég var á og ég var rekin frá Eimskip árið 2017. Ég fór með þetta í lög­fræð­ing en ég veit ekki hvort lög­fræð­ing­ur­inn vinnur fyrir félagið eða hvað. Maður heyrir margar sögur en mann­leg hegðun og fram­koma er skrýtin og oft ein­kenni­leg,“ segir Jónína Þórunn Hansen, stýri­maður, vél­stjóri og kokkur, til sjós til fjölda ára.

Erfiðisvinna frá barnæsku

Jónína rekur sögu sína í ítar­legu og fróð­lega við­tali í hlað­varpi Sjóarans. Þar segir hún meðal ann­ars frá því ein­elti og dóna­skap sem hún hefur orðið að þola í starfi sínu jafnt hjá Eimskip og Land­helg­is­gæsl­unni svo og kven­hatri og kyn­þátt­a­níði sem hún hefur orðið vitni að í gegnum árin.

Jónína segir öðru­vísi komið fram við konur til sjós og oft illa.

„Þær eiga ekki að kunna neitt, ekki geta neitt. Ég hef séð margar hörku­dug­legar konur til sjós. Það er aftur á móti miklu betra að vinna með ungum mönnum en eldri, þeir eru jafn­rétt­is­sinn­aðri en eftir fer­tugt fer að að gæta á skrýtnum við­horfum“.

Jónína er fjög­urra barna móðir af sjó­manns­fjöl­skyldu, fædd 1964, ein sjö barna. Hún ólst upp við fátækt í bragga­hverf­inu í Höfða­borg­inni til sjö ára ald­urs þar til for­eldrar hennar fluttu í bæj­ar­blokk­irnar í nýlegu byggðu Breið­holti. Jónína hætti snemma í skóla og fór að vinna til að létta undir með fjöl­skyld­unni. Hún vann alltaf erf­iðsvinnu, meðal ann­ars við vega­gerð og bygg­ingu virkj­ana.

Mismunin eykst eftir menntun kvenna

Jónína hefur alltaf elskað sjó­inn og sá aldrei annað en hafið sem krakki. Þegar hún skildi á þrí­tugs­aldri ákvað hún að fara í vél­skól­ann. „Ég vildi aldrei vera upp á neinn komin og vera sjálf­bær. Ég elska sjó­inn, sjó­mennskan er lík­am­lega erfið en and­lægu hug­arró og nær­ing“.

Jónína seg­ist yfir­leitt hafa siglt með góðum mönnum en vissu­lega sé mis­jafn sauður í mörgu fé. „Ég hef yfir­leitt haft góða skip­stjóra en líka menn sem maður skilur ekki að útgerðir hafi yfir­leitt í vinnu.” Aðspurð um hvort hún hafi fundið fyrir mis­munun sem kona um borð segir Jónína ekki hafa verið svo í byrjun en það hafi auk­ist mjög eftir því sem hún mennt­aði sig meira og geta og kunn­átta hennar jókst. „Þá byrj­aði að koma bremsa í menn gagn­vart manni. Hvort þetta er van­mátt­ar­til­finn­ing eða öfund­sýki veit ég ekki”.

Jónína starf­aði sem vél­stjóri, kokkur og stýri­maður hjá Eimskip haft gaman af því öllu. „Ég elskaði öll störf um borð og vann alltaf miklu meira en ég átti að gera því ég gleymdi mér yfir­leitt. Ég hef séð harð­full­orðna karl­menn gráta úr sjó­veiki en sjálf hef ég aldrei fundið fyrir henni”.

Jónína seg­ist aldrei hafa verið þekkt fyrir að þegja og alltaf svarað fyrir sig þegar menn voru með dóna­kjaft við hana. „Ég læt ekki vaða yfir mig og svara í sömu mynt”.

Skipulagt einelti af hálfu yfirmanna hjá Eimskip

Hún segir í við­tal­inu að hún hafi verið á leið heim frá Evrópu með frakt­skipi Eimskips þegar hún veikt­ist skyndi­lega. Hún fékk nýrn­ar­steina og kveðst hafa verið hrylli­lega kvalin.

„Ég hef ofboðs­lega hátt kvala­þol en átti erfitt með labba en ég er ekki mann­eskja sem veina né garga.” Jónína segir áhafna­stjór­ann hafa lagt sig í stöðugt ein­elti og viljað losna við hana með öllum til­tækum ráðum. Hann hafi bannað áhöfn­inni að gera neitt henni til hjálpar í veik­ind­unum. „Það fylgd­ist eng­inn mér mér og eng­inn gerði neitt fyrir mér. Aldrei var hringt eftir hjálp. Ég skrif­aði bréf til fjöl­skyldu minnar því verk­ur­inn lá þannig að ég hélt að ég væri að fá hjarta­á­fall, og sagði þeim að ég fengi enga hjálp um borð. Ég setti bréfið ofan í tösku ef það skyldi fara svo að ég lifði ekki ferð­ina til Íslands,” segir hún í Hlað­varpi Sjóarans.

Þegar heim var komið var hún taf­ar­laust lögð inn á Borg­ar­spít­al­ann og svo rekin að hún telur vegna veik­ind­anna.

„Veik­indin voru eina skiptið í öll þessi ár sem ég mætti of seint á vakt“.

Sökuð um fíkniefnainnflutning

Jónína segir enga af yfir­mönnum skips­ins hafa verið dregna til ábyrgðar og þeir nán­ast heiðraðir.

„Þetta er ein af þeim fram­komum sem ég hef fengið að upp­lifa, skít­legt eðli í mönnum sem höfðu verið ynd­is­legir við mig áður en fengu beina skipun frá áhafna­stjóra. Það liggur við að það þori eng­inn að segja að þeir séu að tala við mig í dag. Þetta er hið góða félag, Eimskip“.

„Þeir mega allir heyra þetta“

Jónína segir að systk­ini sín séu mis­jafn­lega stödd í líf­inu og að yngri systir hennar hafi lát­ist af völdum eit­ur­lyfja­notk­unar.

„Ég hef orðið fyrir ein­elti út af fjöl­skyldu minni og heyrði meira segja hjá starfs­manni Eimskips að ég væri í fíkni­efna­inn­flutn­ingi. Ég bara skil þetta ekki en ég á þetta enn í dag á upp­töku. Ég hef aldrei á ævi minni komið nálægt fíkni­efnum”. Hún seg­ist enga hjálp hafa fengið frá mannauðs­stjóra Eimskips sem sagði hana „stuða fólk”.

Jónína bað um fund um með við­kom­andi sem var hafnað. „Þeir þorðu ekki að mæta mér, voru með slæma sam­visku”.

Einelti gagnvart konum hjá Gæslunni

Jónína var í tæpt ár í afleys­inum hjá Land­helg­is­gæsl­unni sem stýri­maður. Hún segir ein­elti þar einnig ríkj­andi og sér­stak­lega gagn­vart konum.

„Ég hef heyrt hvernig talað er um kven­fólk þar og ég gæti nefnt mörg dæmi og nöfn. Þetta er eitt­hvað sem ríkið þarf virki­lega að taka á. Ég man eftir einni konu sem marg­brotn­aði saman því hún var sífellt hundsuð og snið­gengin af öllum. Yfir­höfuð má taka alla Gæsluna í gegn en eng­inn þorir að segja neitt”.

„Líkar þér ekki þessi“

Aðspurð um kyn­ferð­is­lega áreitni á sjónum segir Jónína suma hafa verið ágeng­ari en aðra en það hafi frekar verið í frakt­inni en í fiski­flot­anum. „Það var margt reynt, sms send­ingar, boð í klefa og ég veit ekki hvað”. Einu sinni lenti Jónína í því að vera kölluð upp á skrif­stofu skip­stjóra þar sem hann sat nak­inn fyrir neðan mitti. „Þarna stóð ég í vinnugall­anum þegar hann spyr hvor mér „líki ekki þessi og hvort ég væri ekki til í hann.” Ég sagð­ist nú hafa séð þá betri í gegnum tíð­ina, fann nokkrar klám­spólur sem ég sendi hann á brott með og sagð­ist sjá hann á morgun þegar búið væri að renna af honum!“

Hún segir hafa verið ynd­is­legan karl að mörgu leiti en til vand­ræða í glasi. „Eitt skiptið vakn­aði ég við að hann stóð yfir koj­unni minni. Ég klikk­að­ist og henti honum út, helm­ingi stærri en ég er. Ég lét hann ekki fá lyklana sem hann gleymdi í skránni fyrr en við komum í höfn“.

„Ég erfi þetta ekki, finnst þetta bara spaugi­legt og hef aldrei verið illa við hann. Hann hafði líka þann mann­dóm að biðja mig afsök­unar. Ég hef yfir­leitt siglt með góðum mönnum og flestir minir skip­stjórar hafa verið perlur.“

Tek ekki mark á þeim sem gefa skít í fólk

Jónína hefur fjölda fleiri sagna sem koma fram í hlað­varpi Sjóarans, bæði góðar og slæmar. Margar hafa sært. „En ég vil engum illt, öfunda engan og er engum reið. Ég vor­kenni mönnum með skrýtnar hugs­anir og halda sig æðri og betri því maður veit betur. Það glymur oft hæst í tómri tunnu og ég tek ekki mark á þeim sem gefa skit í aðra til að fela eigin skit,” segir Jónína í hlað­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina