Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sendur á götuna af Útlendingastofnun „Mér líður eins og líf mitt sé á enda“

Sendur á götuna af Útlendingastofnun „Mér líður eins og líf mitt sé á enda“

„Ég er ungur, en mér líður eins og ég sé gam­all og líf mitt sé á enda“ segir Iyad Alkafarna sem hefur fengið neitun um vernd á Íslandi og býr frá og með deg­inum í dag á göt­unni.

Klukkan 13:00 í dag var Iyad Alkafarna rek­inn á dyr, sviptur hús­næði og vasa­pen­ingum af Útlend­inga­stofnun. Mannlíf var á staðnum og tók upp mynd­band þegar tveir starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar komu og tjáðu Iyad að hann yrði að fara út. Hann var einn af fjórum sem vísað var á göt­una í dag eftir að hafa neitað að gang­ast við því að fara í Covid – próf sem er for­senda þess að hægt sé að senda þá til Grikk­lands. Með því að neita próf­inu hjálpa þeir ekki stofn­un­inni að flytja þá á brott. Menn­irnir fjórir eru allir frá Palest­ínu. Nú hefur alls 18 hæl­is­leit­endum verið refsað með þessum hætti, megnið af þeim koma frá Palest­ínu.

Fjölskyldumaður frá Gaza

Iyad er 30 ára og kemur frá Gaza í Palest­ínu. Þar á hann eig­in­konu og þrjú ung börn sem eru í mjög slæmum aðstæðum en hús­næði þeirra fór í rúst í síð­ustu árás Ísrael á Palest­ínu. Iyad er gjör­sam­lega miður sín og finnst fram­tíðin svört og hann er dauð­hræddur um að fá aldrei eig­in­konu sína og börn í öryggi til sín, sem var til­gangur þriggja ára ferða­lags hans frá Palest­ínu til Íslands. Hann hefur dvalið á Íslandi í eitt ár. Mannlíf mun taka ítar­legt við­tal við Iyad og rekja ferða­lagið hans og aðstæður.

Iyad Alkafarna er 30 ára og kemur frá Palest­ínu

Hér að neðan má sjá mynd­bönd sem Mannlíf tók í dag ásamt þýð­ingu á því hvað mönn­unum fer á milli.

Þýðing myndband 1

Ali er starfs­maður og túlkur hjá Útlend­inga­stofnun og hann byrjar á því að heilsa og spyr svo Iyad hvort hann sé til­bú­inn að fara. Iyad spyr þá, hvert á ég að fara, á göt­una ? Ali segir þá fara niður í Útlend­inga­stofnun. Iyad segir þá, nei á göt­una. Ali segir þá eins og þú vilt en þú ættir að fara niður í Útlend­inga­stofnun. Iyad segir þá, hvers vegna á ég að fara þangað, til þess að skrifa undir papp­íra ?  Ég mun ekki skrifa undir neina Covid – prófs papp­íra.  Ég á börn og fjöl­skyldu,  þú átt líka börn og fjöl­skyldu. Ég ber virð­ingu fyrir öllum reglum og íslensku rík­is­stjórn­inni. En hvert get ég farið ? Heimili mitt á Gaza er ónýtt og á Grikk­landi höfum við ekk­ert. Ali segir þá, ég veit það ekki en þjón­ustu við þig er lokið af því að þú sam­þykktir ekki Covid – próf. Þú ættir að fara niður í Útlend­inga­stofnun og ef þú vilt vera um kyrrt á Íslandi þá getur þú verið á hót­eli númer 18. Iyad segir, nei ég vil það ekki og ég mun fara út úr hús­næð­inu. Ali spyr um annan mann sem dvelur þarna og Iyad svarar honum því að hann sé ekki þarna. Iyad segir, ég veit að það er til slæmt fólk en ég er ekki slæmur og þú veist það, ég þrái bara venju­legt líf. Iyad spyr svo hvert hinn full­trúi Útlend­inga­stofn­unar hafi farið, fór hann niður, vill hann ekki sjást á upp­tök­unni ? Ali spyr þá hvort það sé verið að taka upp og Iyad tjáir honum að það sé verið að því og að þetta muni birt­ast í fjöl­miðlum. Blaða­maður spyr á þessum tíma­punkti hvort Ali sé túlkur og hann svarar því ját­andi. Iyad spyr þá Ali hvort hann vilji að hann taki dótið sitt og fari út ? Ali seg­ist ekki vita það og labbar á brott.

Þýðing myndband 2

Iyad gengur að bílnum og segir þið vilduð að ég færi út, ég er far­inn út. Ali kemur út úr bílnum og spyr Iyad hvað félags­þjón­ustan hafi sagt við hann ? Iyad segir að félags­þjón­ustan hafi sagt honum að hann ætti að fara úr hús­næð­inu og hann sé far­inn út því hann ætli sér ekki að vera með vand­ræði. Ali segir þá að félags­þjón­ustan hafi sagt við þá að hann hefði tvo kosti, fara út eða fara með þeim niður í Útlend­inga­stofnun.

Hræðilegar aðstæður

Eins og fram kom í frétt Mannlífs í morgun eru hjálp­ar­sam­tök og almenn­ingur að reyna að hjálpa þessum mönnum með því að skjóta yfir þá skjóls­húsi. Síðast þegar Mannlíf vissi voru  þrír af fjórum mann­anna enn á göt­unni og ekki búið að finna fyrir þá húsa­skjól. Hægt er að hafa sam­band við Solaris hjálp­ar­sam­tök ef fólk getur veitt þeim skjól eða bent á úrræði.

Íbúðin sem Iyad dvaldi í ásamt þremur öðrum
Tveir af fjórum palest­ínu­mönn­unum sem lentu á göt­unni í dag, fyrir utan Útlend­inga­stofnun.
Íbúðin sem Iyad dvaldi í ásamt þremur öðrum

Mannlíf mun halda áfram að fylgjast með gangi mála

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi