Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Diljá missti systur sína unga úr fíkniefnaneyslu: „Sársaukinn hverfur aldrei“

Diljá missti systur sína unga úr fíkniefnaneyslu: „Sársaukinn hverfur aldrei“
Diljá Mist Ein­ars­dóttir þing­maður

„Þetta dofnar og minnkar með árunum en sárs­auk­inn hverfur aldrei. Ég var rosa­lega reið á tíma­bili en ég er búin að vera mikið í Al-Anon sam­tök­unum og hef unnið af krafti úr mínum málum,“ segir Diljá Mist Ein­ars­dóttir, sem vann stór­sigur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík um helg­ina.

Dilja hefur upp­lifað mikla ham­ingju en einnig stórar sorgir í líf­inu. 

Hún hleypur niður að taka á móti blaða­manni í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, brosmild og hress þrátt fyrir próf­kjör­skeyrsl­una. „Kanntu á kaffi­vél­ina? Ég er ekk­ert í kaff­inu, þú verður að redda þessu.”

Vorum óaðskiljanlegar

Diljá er ein fjög­urra systk­ina, fædd árið 1987, og upp­alin í Graf­ar­vog­inum, önnur stelpan í röð fjög­urra systk­ina á sex árum. Stutt var á milli Diljár og eldri systur hennar Susie Rutar, aðeins var eitt ár á milli þeirra í skóla og fylgd­ust þær náið að í gegnum lífið. „Við deildum lengi vel saman öllu þótt við værum að mörgu leyti gjör­ó­líkar. Margir vildu ekki einu sinni trúa því að við værum systur, við vorum ekki einu sinni líkar í útliti!“ 

„En við deildum her­bergi og vina­hóp, vorum óað­skilj­an­legar. Þegar við urðum aðeins eldri fluttum við síðan saman í íbúð í kjall­ara for­eldra okkar.”

Sá hana aldrei framar

Diljá segir Susie Rut hafa verið gríð­ar­lega greinda en öra á mörgum sviðum. „Svo fór að Susie Rut leidd­ist út í fíknefna­neyslu undir lok grunn­skóla, hún fór að gera aðra hluti og leiðir okkar skildu tíma­bundið. Susie Rut fór alltaf alla leið og náði botn­inum mjög hratt. Hún náði samt að snúa við blað­inu og náði tökum á eigin lífi. Eftir með­ferð og dvöl á áfanga­heim­ili var hún dug­leg við að sækja fundi og var á fullu við að hjálpa öðrum. En svo fór að hún féll mjög harka­lega þremur árum síðar.”

Diljá segir fíkni­sjúk­dóm Susie Rutar hafa verið óvenju­legan að því leyti hversu hratt allt bar að. „Hún var bara í neyslu í tvö ár og fór ein­ungis tvisvar í með­ferð og þegar hún féll gerð­ist það skyndi­lega. Hún var á sjúkra­húsi út af öðru og okkur fór að gruna að hún væri fallin. Ég var henni sár og reið þegar ég heim­sótti hana á sjúkra­húsið, ekki þess vit­andi að ég myndi aldrei sjá hana framar. Þetta var árið 2007.”

Vorum ofboðslega meðvirk

Diljá seg­ist að frá­fall systur sinnar hafi mótað hana mikið sem ein­stak­ling.

„Þegar Susie Rut byrj­aði í neyslu var þetta ekki mikið rætt, jafn­vel þótt að heim­ilið hafi verið und­ir­lagt af fíkni­sjúk­dómi hennar. Við vorum ofboðs­lega með­virk. En sem betur fer hefur orðið mikil við­horfs­breyt­ing og við fórum að tala um þetta opin­skátt. Það velur eng­inn að vera fík­ill og fíknin spyr hvorki um stétt né stöðu. Við fengum oft að heyra það sama: Er Susie Rut í neyslu? En hún kemur af góðu heim­ili, og eng­inn í fjöl­skyld­unni í neinni vit­leysu?“ 

„En þannig er þetta ekki í hinum raun­veru­lega heimi.”

„Svo rosalega gott“

Fjöl­skylda Susie Rutar stofn­aði minn­ing­ar­sjóð um hana eftir lát hennar og fór í aug­lýs­inga­her­ferð til að vekja athygli á vand­anum. „Mér er alltaf minni­stæð aug­lýs­ingin um hand­bolta­strák sem lést úr of stórum skammti. Mamma hans spurði hann í örvænt­ingu sinni fyrir lát hans af hverju hann hann væri eig­in­lega í þessu og svar hans var: „Mamma, það er af því mér finnst þetta svo rosa­lega gott.”

Límd við kosningavökuna átta ára

Diljá segir fjöl­skyld­una hafa verið sitt helsta mót­un­ar­afl í líf­inu. „For­eldrar mínir eru sterkir karakt­erar og við höfum alltaf verið öll mjög náin. Ég var svo passa­söm á litlu bræður mína að þeir kalla mig í gamni hina mömmu sína. Þeir segja mig reyndar hafa fæðst þrí­tuga en ætli þeir breyti því ekki í fimm­tugt eftir því sem maður eld­ist,” segir Diljá og hlær. 

Diljá Mist, ásamt Róberti og gull­mol­unum þeirra.

Hún ólst upp á sjálf­stæð­is­heim­ili og kveðst hafa verið rammpóli­tísk frá unga aldri. „Ég var að finna dag­bók­ina frá því ég var 8 ára og lýsi þar kosn­inga­vöku heima hjá mér. Þar sem ég sat límd við sjón­varpið og fylgd­ist með nið­ur­stöð­unum. Bara kríli. Ég kynnt­ist til dæmis mann­inum mínum í Versló og hann vissi hvað ég var póli­tísk enda fór svo mikið fyrir mér. Eftir 16 ár saman er hann nýbú­inn að játa fyrir mér að hafa farið á bóka­safn fyrir fyrsta deitið til að kynna sér und­ir­stöðu­at­riði í póli­tík til að vera við­ræðu­hæfur!”

Aldrei að sjá eftir að hafa ekki látið vaða

Diljá hlær. „Annars atvik­að­ist þetta bara svona, ég hafði lengi verið í sjálf­boða­liða­starfi innan flokks­ins auk þess að starfa sem lög­maður þegar Gulli bauð mér starf aðstoð­ar­manns og skipti ég þar með um gír. Ég var lengi vel frá­hverf atvinnupóli­tík, elskaði að starfa í gras­rót­inni, og mað­ur­inn minn grín­að­ist með að vera lítið spenntur fyrir að vera giftur stjórn­mála­manni. En ég fann að hug­ur­inn var farin að leita annað og í dag erum við hjónin bæði búin að skipta um skoðun. Ég ákvað bara að láta slag standa, maður á aldrei að sjá eftir því í líf­inu að hafa ekki látið vaða.“

Hún er að sjálf­sögðu sátt við nið­ur­stöð­una og segir ekki verra að konur hafi komið vel út í próf­kjörum. „Flokkar og fram­boð eru með alls kyns kynja­kvóta og fléttu­lista en við kjósum að velja ein­stak­ling­inn. Í þetta skiptið komu konur vel út, kannski verður það öðru­vísi næst en þetta er frá­bær blanda nýs blóðs og bull­andi reynslu.”

Gift Chandler úr Friends

Diljá er gift Róberti Benedikt Róberts­syni, fjár­mála­stjóra, og saman eiga þau tvö börn. „Maðurinn minn er Excelmaður heim­il­ins, ég grín­ast oft með að hann sé eins og Chandler í Friends. Við erum fín blanda, fjöl­skylda full lög­fræð­inga, töl­fræð­inga, hag­fræð­inga og sál­fræð­inga en ekk­ert minna klikkuð fyrir það. Það er aldrei rólegt á okkar bæ, alltaf líf og fjör. Og svo er ég hissa á að eiga ekki börn sem sitja þæg og prúð og lita!”

Dilja og Róbert eiga tvö börn. Sjö ára dreng og fimm ára stúlku sem Diljá segir eins og dag og nótt. „Dóttir mín eins og ég og sonur minn eins og pabbi hans. Strák­ur­inn minn er stríð­inn og félags­lyndur ærsla­púki eins og pabb­inn sem samt nýtur þess að hangsa heima á bumbunni og flýja til ömmu sinna þegar lætin í systur hans eru sem mest. Dóttir mín er aftur á móti í bana­stuði allan sól­ar­hring­inn, það er eng­inn off takki á því barni!“ 

„Sann­kall­aðir gleði­gjafar sem hafa gefið mér mínar mestu gæfu­stundir,” segir Diljá Mist að lokum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi