Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórunn háði harða baráttu við illvígt krabbamein: „Hjúkrunarfræðingurinn baðst innilega afsökunar“

Þórunn háði harða baráttu við illvígt krabbamein: „Hjúkrunarfræðingurinn baðst innilega afsökunar“
Þórun Unn­ars­dóttir.

„Það var að kvöldi til í upp­hafi árs 2018 sem ég leit niður og sá að geir­vartan var inn­dregin og að það stóð gúlpur út úr brjóst­inu. Mín fyrstu við­brögð voru að kenna um púð­unum um sem ég hafði látið setja inn mörgum árum fyrr, en þegar ég var búin að svæfa barnið mitt  gúgglaði ég „inn­dregin geir­varta”. Nið­ur­staðan var ótví­ræð. Illkynja krabba­mein”. 

Þannig hófst þrauta­ganga Þórunnar Unn­ars­dóttur við­skipta­lög­fræð­ings en hún greind­ist með ill­vígt krabba­mein 46 ára að aldri.

Þórunni óraði ekki fyrir hvað beið hennar.

Að vel ígrund­uðu máli hefur Þórunn ákveðið að segja sögu sína og býður í kaffi í gull­fal­legu gömlu húsi í miðbæ Hafn­ar­fjarðar. Þessi hlát­ur­milda, jákvæða og glæsi­lega kona ber ekki utan á sér þá erf­ið­leika sem hún hefur gengið í gegnum.

Vart orðið misdægurt

„Ég hef stundað fjöl­breytta hreyf­ingu frá blautu barns­beini, æfði frjálsar lengi vel ásamt því að stunda ballet  sam­hliða í mörg ár.  Mér hefur varla orðið mis­dæg­urt alla mína tíð og því lækn­is­heim­sóknir fátíðar. Ég fann í raun aldrei fyrir fyrir neinu sem ég gat tengt við veik­indi en ég man að á náms­árum mínum á Bifröst fann ég fyrir mik­illi þreytu og óreglu­legum blæð­ingum en kenndi álagi um, jafn­vel að breyt­inga­skeiðið væri að hefj­ast“. 

Þórunn beið í nokkra daga með að gera nokkuð í mál­unum, rétt eins og nýfengnar upp­lýs­ingar myndu hverfa ef ekki yrði um þær rætt. Að nokkrum dögum liðnum minnt­ist hún í fram­hjá­hlaupi á það við barns­föður sinn að hún væri með smá­vægi­legar áhyggjur af fyr­ir­ferð í brjósti en bætti snar­lega við að lík­leg­ast væri þetta ekk­ert til að hafa áhyggjur af.  Samband þeirra er gott, þau ólust upp í sömu götu og hafa haldið vin­skap frá barn­æsku.

„Ég sagði honum að senni­leg­ast þyrfti ég að skipta um púða en hann tók ekki í mál að ganga ekki lengra og hringdi og pant­aði tíma hjá Krabba­meins­fé­lag­inu. Ég veit ekki hvaða blessun varð til þess að ég fékk tíma dag­inn eftir”.

Fæst orð bera minnsta ábyrgð

Þórunn var nýbyrjuð í nýju starfi og þurfti að fá frí fyrsta dag­inn til að fara í krabba­meins­skoðun.  Hún þurfti aftur að fá frí næsta dag þar sem hún var kölluð inn snemma morg­uns þann dag.

„Mér var tjáð að það hafi fund­ist stórt og fyr­ir­ferða­mikið æxli í brjóst­inu á mér og það hefði að öllum lík­indum  dreift sér í eitla. Ég gekk út með miða sem sem var tími hjá skurð­lækni 6. febr­úar 2018. Ekki þótti ástæða til að bíða eftir sýna­töku þar sem fyr­ir­ferðin var það mikil og svar­aði lækn­ir­inn því svo til að fæst orð bæru minnsta ábyrgð en hér væri án efa ill­kynja krabba­mein á ferð“.

Þremur dögum síðar var Þórunni tjáð að krabba­meinið væri búið að dreifa sér í eitl­ana og við tók átta daga bið eftir tíma hjá skurð­lækni. „Ég man lítið eftir þeim dögum, þeir eru eins og í móðu”.

Gerði mér enga grein fyrir komandi tímum

Þórunni var sagt frá upp­hafi að hún væri með þriðja stigs krabba­mein en þurfti að fara í seg­u­l­ómun til að vita hvort hún væri á leið í lækn­andi eða líkn­andi með­ferð. „Ég trúði samt alltaf innst inni að þetta yrði allt í lagi”.  Þórunn fór ásamt systur og bestu vin­konu til að fá nið­ur­stöð­urnar ,,Ég stóð þarna á gang­inum og það var eins og til­finn­ing­arnar bæru mig ofur­liði, og ég vildi bara hætta við þetta allt saman og fara heim. Mér áskotn­að­ist róandi tafla sem gerði svo sann­ar­lega sitt gagn og mér leið eins og ég gæti tæklað aðstæð­urnar hverjar sem frétt­irnar yrðu”.

Lækn­ir­inn sagði hana vera með HER2 jákvætt krabba­mein, sem er ill­vígt og kallar á þunga og erf­iða lyfja­með­ferð. „Mér var létt þar sem ég var að fara í lækn­andi með­ferð og ég sá fyrir mér að ég yrði rétt slöpp í viku og gæti bara unnið með­fram með­ferð­inni. Á þessum tíma­punkti gerði ég mér alls ekki grein fyrir það sem var framundan og satt best að segja sem betur fer,”  segir Þórunn og hlær og hristir bara höf­uðið við minn­ing­unni.

„Lækn­ir­inn var nær­gæt­inn og dásam­legur í alla staði, spurði mig hvort ég hefði ein­hverjar spurn­ingar og það eina sem mér datt í hug var hvort ég ætti að afpanta tím­ann á Grænu stof­unni í klipp­ingu og strípur. Á þessum tíma­punkti var ég svo óend­an­lega glöð að eiga kost á því að lækn­ast og end­aði dag­inn á að skemmta mér í góðra vina hópi”.

En Þórunn vissi ekki hvað beið hennar. Allt fór úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis.

Gekk út af bráðadeild

„Eftir fyrstu lyfja­með­ferð­ina fór ég heim og var veik eins og við var að búast. Fljót­lega hljóp ég síðan upp í hreistri, skinnið fór undan hönd­unum og fót­unum og ég varð hrædd enda hafði eng­inn minnst á þessar auka­verk­anir við mig. Þetta stóð í viku áður en ég hringdi á krabba­meins­deild­ina og skýrði þeim frá þessu. Mér var sagt að leita upp á bráða­mót­töku, segja þeim að að ég væri krabba­meins­sjúk­lingur og ætti þess vegna að fara í for­gang”. 

Þórunn beið svo klukku­tímunum saman eftir lækni á bráða­deild með ofnæm­is­kerfið nið­ur­bælt innan um aðra sjúk­linga, ósofin svo dögum skipti  og var eðli­lega hrædd og ekki alveg sjálfrátt hvað taug­arnar varða.

Hún gekk út eftir þriggja klukku­tíma bið. Örmagna.

Þórunn fór í aðgerð til að fá lyfja­brunn þann 1. mars, radd­laus vegna flensu.

„Ég gat ekki talað og sagði sömu sög­una fimm sinnum, hverjum heil­brigð­is­starfs­manni sem rataði til mín. Á þessum tíma­punkti var ég úrvinda og ósofin. Þegar verið var að gera mig klára fyrir aðgerð­ina spyr svæf­ing­ar­hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn mig í fimmta skipti hvers vegna ég væri svona radd­laus. Þarna var mér allri lokið æddi upp af bekknum örvingluð og var ekki sjálfrátt og ætl­aði end­an­lega að hætta að taka þátt í þessu. Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn bað mig inni­legrar afsök­unnar á sam­skipta­leys­inu á spít­al­anum og náði að róa mig svo ég fann til öryggis á ný“.

Reis upp eins og múmía

 Eftir ígræðslu lyfja­brunns­ins kom hjúkr­un­ar­fræð­ingur sem sér­hæfir sig í að halda utan um krabba­meins­sjúk­linga og gerði lítið úr upp­lifun minni af bráða­vakt­inni og sagði orð­rétt: „Ég get ekki borið ábyrgð á því sem ger­ist á Borg­ar­spít­al­anum.“ Þegar hér er komið við sögu varð ég gjör­sam­lega vit­stola af reiði jafnt sem hræðslu. Ég reis snögg­lega upp úr rúm­inu eins og múmía, reif allar slöngur úr mér og sagð­ist vera hætt. Hún sagði við mig orð­rétt að ég skyldi setj­ast niður því ég væri ógn­andi. Ég brást við að segja að ef sköll­ótt og fár­veik krabba­meins­veik kona virk­aði ógn­andi á hana, væri komin tími á að skipta um starfs­vett­vang“.

Næst þegar Þórunn mætti í lyfja­gjöf heils­aði umrædd kona henni ekki og lét sem hún sæi hana ekki. 

Þórunn mætti í lyfja­gjöf  10 dögum eftir að lyfja­brunnur var græddur í. Hjúkr­un­ar­fræð­ingur á vakt spurði hvenær lyfja­brunnur hefði verið settur upp.  Hún gerði enga athuga­semd við það og lyfja­gjöfin hafði sinn gang. Næstu daga byrj­aði hún að finna til eymsla og fór því upp á krabba­meins­deild.

Hver benti á annan og enginn tók ábyrgð

„Mér var þá tjáð af deild­ar­lækni sem ég hafði aldrei séð áður að  það hefði átt að vera búið að fjar­lægja saum­inn fyrir löngu síðan. Var send heim með sýkla­lyf án nokk­urra frek­ari skila­boða”.

Hún segir skelfi­legt að ungu deild­ar­lækn­arnir séu dag­lega settir í þá stöðu að eiga að þurfa að vera sér­fræð­ingar í öllu sem þeir eðli­lega eru ekki.

„Um nótt­ina vakn­aði ég með gríð­ar­legi verki og allt upp­hleypt í kringum svæðið þar sem brunn­ur­inn var stað­settur.  Mér fannst ég þurfa að létta af þrýst­ingnum og brá á það ráð að ýta á svæðið með þeim afleið­ingum að gröftur spraut­að­ist yfir stóran hluta af spegl­inum.  Í góðri trú  tók ég bara aðra pensi­lín og fór að sofa en eitt­hvað kom mér til að hringja í vin­konu mína sem er  læknir dag­inn eftir. Umræddur læknir sagði mér að fara beint upp á spít­ala þar sem lyfja­brunn­ur­inn er tengdur við bláæð og sýk­ing því ansi hættu­leg. Í ljós kom að sýk­ing var mikil og var ég strax lögð inn með sýkla­lyf í æð”.

Engin vildi taka ábyrgð á að saumur hefði gleymst í Þórunni. „Skurð­deildin sagði að krabba­meins­deildin sæi venju­lega um sauma­töku og krabba­meins­deildin benti á skurð­deild­ina. Engir verk­ferlar eru til um þetta,” segir Þórunn.

Lenti allt að því í útistöðum við hjúkrunarfræðing

Sama kvöld var ákveðið að fjar­lægja lyfja­brunn­inn.  Þórunn sá reyndar alltaf blóð þarna en þegar hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn skoð­aði þetta og skipti á umbúðum eftir fimm daga, sagði hún allt líta vel út. „Og auð­vitað treysti ég á fag­fólkið“.

„Ég var ákveðin hvar ég vildi fá æða­legg settan upp, vildi alls ekki fá hann í oln­boga­bót­ina og þótti sumum ég vera með yfir­gang með því og lenti allt að því í úti­stöðum við hjúkr­un­ar­fræð­ing sem fann ekki æð ann­ars staðar. Að þurfa að standa í úti­stöðum við við­kom­andi starfs­mann sem valdi sér sem lífs­við­ur­væri að hjúkra öðrum var erfitt og sárt“.

Nokkrum dögum síðar er Þórunni til­kynnt að tími sé komin á útskrift, nú skuli skella sér heim.

„Ég var á leið­inni í augna­brún­atattó  en á gang­inum rekst ég á lækni, sem ég hafði frá­bæra reynslu af, sem var hissa á  að verið væri að senda mig heim og spurði hvort búið væri að kíkja á mig sem ég kvað nei við. Hún bað mig að hinkra við, vildi skoða mig betur og í ljós kom að sýk­ingin var alls­ráð­andi og gröftur vall út um opið. Við­kom­andi læknir varð reiður þeim læknum sem höfðu skorið mig upp, og í ljós kom að röng grisja hafði verið sett á sárið og því þurfti að skera hana úr“. 

Ef ekki hefði verið fyrir þennan frá­bæra lækni þá hefði ég farið beint á snyrti­stof­una sem hefði svo sann­ar­lega getað haft afdrifa­ríkar afleið­ingar.”

„Svo vont að vera reiður“

Fæstir þeir sem höfðu kvatt og útskrifað Þórunni vildu ekk­ert við það kann­ast við að vera ákvörð­un­ar­töku­að­il­inn og það fauk í hana.

„Ég mun aldrei gleyma þegar einn hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn bauðst til að hringja á djákna því það  „væri svo vont að vera svona reiður”. Ég bað hana bara í guð­anna bænum að hringja í djákna ef hann gæti lagað sýk­ing­una”.

Á þessum tíma­punkti var orðið þungt  í Þórunni. „Systir mín er hjúkr­un­ar­fræð­ingur í Noregi og ákvað að senda deild­ar­stjór­anum bréf um umönnun mína og í svar­inu sem hún fékk til baka var ítar­lega farið yfir hvað ég hefði verið ókurt­eis og van­þakk­lát. Deild­ar­stjór­inn gaf sér leyfi um að tala um mig við þriðja aðila sem er með öllu ólög­legt og sið­laust sam­kvæmt lögum. Hún sagði þetta jú bara við systur mína en þetta er jafn ólög­legt þrátt fyrir það. Hún grát­bað mig síðan að gera ekk­ert í þessu og ég var orðin svo þreytt og vissi að halda í reiði myndi ekki vera hjálp­leg minni veg­ferð“. 

„Hún baðst inni­legrar afsök­unar og það ber að virða“.

Hvað gera þeir sem ekki geta staðið með sjálfum sér?

Svona gekk þetta áfram. „Það var bara ekk­ert að frétta. Ég var aldrei með sama hjúkr­un­ar­fræð­ing­inn í  gegn um lyfja­gjöf­ina eins og lagt var upp með. Í hvert skipti sem ég mætti þurfti ég að end­ur­taka sömu hlut­ina og passa upp á að ég væri að fá þá þjón­ustu sem mér bar sem gerði það að verkum að ég upp­lifði ekki öryggi“.

Þórun Unn­ars­dóttir.

Árið 2019 finnur Þórunn fyrir beri í hinu brjóst­inu.

„Það var allt lokað. Þetta reynd­ist ekki vera neitt en ég þurfti að bíða í sex vikur eftir svörum. Mín upp­lifun var eins og ég væri með ein­tómt vesen. Hvað með fólk sem getur ekki staðið með sjálfum sér? Ég get það og gerði það. Ég er ekki að segja að allt sem ég sagði og gerði hafi verið rétt, en tauga­kerfið var eins og það var. Sem dæmi má nefna er að ég mætti alltaf á réttum tíma í geisla. Eitt skiptið var ég ekki kölluð inn á réttum tíma, því ein­hver annar hefði mætt fyrr og ákváðu þær að taka við­kom­andi inn á undan. Þessi örlitla bið fór alveg með mig og ég náði ekki að halda aftur á tár­unum og fannst gjör­sam­lega að mér vegið. Samt er besta starfs­fólk spít­al­ans á geisla­deild­inni. Dásamleg, öll.

Ég er hörð af mér en fannst mér sífellt vera að lenda á veggjum með þeim afleið­ingum að ég beygði af”.

Einstök í sögu læknisfræðinnar

Það mun verða skrifað um Þórunni í lækna­ritum fram­tíð­ar­innar. „Þegar að þeir opnðu mig voru 19 af 20 eitlum með krabba­mein sem ekki sást á myndum og var aðgerðin miklu stærri en nokkur átti von á. Í nokkrum af þessum eitlum var ekk­ert blóð­flæði og tjáði lækn­ir­inn mér að ekk­ert þessu líkt hefði nokkurn tíma sést og þá í heim­inum öllum. Þar sem það er ekk­ert blóð­flæði getur krabba­meinið ekki dreift sér svo það er eins og lík­am­inn hafi gert allt sem í hans valdi stóð til að stöðva frek­ari dreif­ingu. Lækn­ir­inn sagði að þetta yrði örugg­lega rann­sókn­ar­verk­efni í fram­tíð­inni”. 

Þórunn er aftur á móti full­viss um að horfnir ætt­ingjar eigi hlut að máli.

Meðferð Þórunnar lauk í apríl 2019. „Ég hitti lækn­inn minn sem kvaðst endi­lega vilja hitta mig fyrir brjóst­nám sem ég sagði mig löngu vera búna í. Einnig kom í ljós að hjarta­óm­skoðun, sem er nauð­syn­leg fyrir lyfja­með­ferð, hafði gleymst, svo og bein­þéttni­mæl­ing”.  

Hefur þurft að sjá á eftir þremur vinkonum á sjö mánuðum

Þórunn fór í leg­háls­skoðun 15. febr­úar 2021 á heilsu­gæslu Hafn­ar­fjarðar. Henn var tjáð að biðin yrði um 6 vikur. Svar barst 21. maí og kom þar fram að leg­háls­sýni væri ekki eðli­legt þar sem HPV veiran hefði greinst. Bréfið var staðlað og henni gert að mæta eftir 12 mán­uði.

„Ég taldi að ég hlyti að vera í áhættu­hóp eftir allt það sem á undan er gengið, ég hef þurft að að horfa eftir þremur vin­konum vegna krabba­meins á s.l. 7. mán­uðum því rak mig í rogastans að sjá staðlað svar frá heilsu­gæsl­unni um að ég skuli bara bíða róleg. Ég get það ekki en ég er svo óend­an­lega þreytt“.

„Ég mun því láta til mín taka fyrir mig og allar konur svo lengi sem ég hef krafta til’’. 

„En ég verð að tala frá hjart­anu, fara minn veg og reyna mitt til að láta til mín taka þar sem ég hef mögu­leika á því,” segir Þórunn og horfir út. Sólin er að koma fram úr skýj­unum og hana langar út. ,,Eigum við að njóta sól­ar­innar aðeins saman áður en þú ferð?” spyr Þórunn og brosir við. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi