Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Yfirlæknir misskildi ráðherra: Spurningar heilsugæslu um skimanir flóknar

Yfirlæknir misskildi ráðherra: Spurningar heilsugæslu um skimanir flóknar
Jón Gunn­laugur Jónasson, yfir­læknir sagði heil­brið­is­ráðu­neyti mis­skilja orð sín nú í vor. Skýrsla Haraldar gerir aðrar stað­reyndir ljósar.

„Við teljum ekki ástæðu til að óska eftir að sinna þess­ari rann­sókn­ar­starf­semi,“ skrif­aði Jón Gunn­laugur Jónasson, yfir­læknir meina­fræði­deildar Land­spít­ala, um mið­bik ágúst 2020 í svari til svæð­is­stjóra Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og sagði Land­spít­ala aldrei hafa haft til rann­sóknar né grein­inga frumu­sýni úr leg­hálsi í tengslum við skimun á leg­hálskrabba­meini.

Í nýút­kominni skýrslu segir orð­rétt:

Yfir­læknir meina­fræði­deildar LSH svar­aði þann 12. ágúst 2020 bréf­inu sem til hans var beint[1]. Þar kom m.a. eft­ir­far­andi fram: „Meina­fræði­deild LSH hefur aldrei haft til rann­sóknar/grein­inga frumu­sýni úr leg­hálsi í tengslum við skimun fyrir leg­hálskrabba­meini. Því er ekki til staðar raun­hæf gjald­skrá fyrir slík sýni á deild­inni. Slík starf­semi er all­nokkuð frá­brugðin starfi á meina­fræði­deild LSH, þarfn­ast sér­hæfðs starfs­fólks (sér­mennt­aðra líf­einda­fræð­inga (screenera) og frumu­meina­fræð­inga og mjög sér­hæfðs tækja­bún­aðar auk við­eig­andi hús­næðis. Mjög lítið af þessu er til staðar á meina­fræði­deild­inni og verður að segj­ast að við teljum ekki ástæðu til að óska eftir að sinna þess­ari rann­sókn­ar­starf­semi. Því munum við ekki fara út í kostn­að­ar­grein­ingu slíkra sýna til að svara flók­inni fyr­ir­spurn þinni varð­andi slíka rann­sóknir.“

[1]  Bréf yfir­læknis meina­fræði­deilda Land­spít­al­ans, dags. 12.8.2020

Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra greindi frá því á Alþingi þann 3. mars sl. að Land­spít­al­inn hefði vísað verk­efni frá þegar ráðu­neyti og Heilsu­gæsla ósk­uðu kostn­að­ar­grein­ingar af hálfu yfir­manna meina­fræði­deildar og sýkla- og veiru­fræði­deild síð­asta sumar. Yfir­læknir meina­fræði­deildar, þvertók hins vegar fyrir að sú væri raunin og sagði að um mis­skiln­ing væri að ræða í útvarps­þætt­inum Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni þann 4. mars. Þá sagði Jón Gunn­laugur að bréfið hefði hann túlkað sem ósk ráðu­neytis, en ekki til­skipun, um að meina­fræði­deildin tæki verk­efnið að sér.

Það var svæð­is­stjóri Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem innti yfir­menn meina­fræði­deildar og sýkla- og veiru­fræði­deildar Land­spít­ala form­legra svara um kostnað og getu þeirra til að rann­saka sýni vegna skimunar fyrir leg­hálskrabba­meini í júlí 2020. Þetta er meðal efnis sem fram kemur í skýrslu Haraldar en Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hafði þá átt í við­ræðum við Heil­brigð­is­ráðu­neyti um tíma vegna þeirrar ákvörð­unar ráð­herra að breyta skipu­lagi, stað­setn­ingu og fram­kvæmd skimunar fyrir krabba­meinum.

Yfir­læknir meina­fræði­deildar svar­aði fyr­ir­spurn svæð­is­stjóra Heilsu­gæslu um mið­bik ágúst 2020 og hafn­aði boði á fyrr­greindum for­sendum. „Því munum við ekki fara út í kostn­að­ar­grein­ingu slíkra sýna til að svara flók­inni fyr­ir­spurn þinni varð­andi slíkar rann­sóknir.“ Yfir­læknir sýkla- og veiru­fræði­deildar, sem einnig fékk erindið, svar­aði hins vegar ekki skrif­legri fyr­ir­spurn svæð­is­stjóra Heilsu­gæslu.

Í minnis­p­unktum for­stjóra Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­innar frá 2. sept­em­ber 2020 kemur þó fram að yfir­læknar meina­fræði­deildar og sýkla- og veiru­fræði­deild hafi rætt þann mögu­leika við stjórn­endur Heilsu­gæslu á lok­uðum fundi að grein­ing HPV yrði á vegum Land­spít­ala en frumu­sýni yrðu send erlendis til nákvæmrar grein­ingar. Þá hafi Land­spít­ali stað­fest að HPV sé rann­sak­an­legt hér á landi en að spít­al­inn óskaði ekki eftir því að fram­kvæma frumu­rann­sóknir en að spít­al­inn myndi gera svo ef til hans yrði leitað.

Þessar upp­lýs­ingar voru meðal gagna sem ráðu­neyti lagði fram og koma fram í nú opin­berri skýrslu Haraldar Briem, fyrrum sótt­varn­ar­læknis en skýrslan var rituð að beiðni Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur og fleiri alþing­manna sem kröfðu heil­brigð­is­ráð­herra svara af for­sendum og áhrifum breyt­inga á skipu­lagi og fram­kvæmd skimunar fyrir krabba­meini í leg­hálsi. Tveir mán­uðir liðu þar til Haraldur féllst á verkið og nú, fjórum vikum síðar, hefur skýrslan verið gerð opin­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ