Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fjallkonan afhjúpuð í fyrramálið: Skartar Binni Glee skautinu á Austurvelli?

Fjallkonan afhjúpuð í fyrramálið: Skartar Binni Glee skautinu á Austurvelli?

Mikil leynd hvílir yfir ásjónu, ræðu og ljóð­mælgi fjall­konu Íslands, sem stígur á svið við Aust­ur­völl klukkan ell­efu í fyrra­málið og frum­flytur sér­samið ljóð fyrir íslensku þjóð­inni í til­efni af þjóð­há­tíð­ar­degi Íslend­inga. Svo mikil dulúð ríkir yfir val­inu þetta árið að ekki einu sinni starfs­menn Árbæj­ar­safns, sem varð­veita skaut­bún­ing fjall­kon­unnar árið um kring og færa Reykja­vík­ur­borg fatn­að­inn á hverju ári í tæka tíð fyrir hátíð­ar­höldin, vita hver það er sem klæð­ist bún­ingnum og stígur á svið til að ávarpa þjóð­ina. „Nei, það er bara einn sjálf­stætt starf­andi sér­fræð­ingur, utan við­burðateymis Ráð­húss­ins, sem veit svarið við þeirri spurn­ingu,“ svarar Ágústa Rós Árna­dóttir, verk­efna­stjóri við­burða Borg­ar­sögu­safns aðspurð en Ágústa Rós stýrir hátíð­ar­höldum á Árbæj­ar­safni á morgun. „Það er klæð­sker­inn, Oddný Krist­jáns­dóttir, sem jafn­framt er eig­andi Þjóð­bún­inga­stof­unnar 7íhöggi. Það er smár hópur starfs­manna borg­ar­innar sem veit þetta mikla leynd­ar­mál. Og hvorki við­burðateymi né klæð­skeri hafa mælt stakt orð frá vörum.“

Glæsi­lega ber hún skaut­bún­ing­inn, fjall­konan á Árbæj­ar­safni árið 2020 – Ljósmynd: Roman Ger­a­sy­menko

Skaut­bún­ing­ur­inn er ansi fagur á að líta og var saum­aður á síð­ustu öld, en Ágústa Rós segir algilt að ýmist þurfi að þrengja eða víkka bún­ing­inn á hverju ári, þar sem sama fjall­konan stígi aldrei á svið tvisvar sinnum. „Þegar fjall­konan hefur svo verið afhjúpuð á morgun við Aust­ur­völl er bún­ingnum ekið beint aftur á Árbæj­ar­safnið í fylgd Oddnýjar klæð­skera, sem skautar unga stúlku hér á safn­inu og heldur sýni­kennslu um leið fyrir gestum safns­ins,“ segir Ágústa. „Þetta verður skemmti­legt, því á morgun læra gestir að skauta bún­ing fjall­kon­unnar, fræð­ast um hefð­bundna þjóð­bún­inga á borð við peysu­föt og allir þeir sem mæta í þjóð­bún­ing fá ókeypis aðgang inn á safnið. Þeir gestir sem koma í venju­legum fatn­aði þurfa hins vegar að greiða aðgangs­eyri.“

Binni Glee skartar bleikum 50´s kjól á við­burða­síðu borg­ar­innar og spyrja margir hvort hann klæð­ist skaut­bún­ing á 77 ára afmæli íslenska lýð­veld­is­ins

En það er ekki bara íslenski þjóð­bún­ing­ur­inn sem er ígildi aðgangs­eyris á morgun á Árbæj­ar­safn­inu. „Allir þjóð­bún­ingar heims eru vel­komnir á safnið á morgun og við fögnum öllum þeim sem klæð­ast sínum þjóð­fatn­aði, óháð upp­runa,“ klykkir Ágústa Rós út með og bætir því við að dans­hóp­ur­inn VikiVaki muni stíga á stokk með gestum. „Dans­hóp­ur­inn mun leiða gesti gegnum sagna­dansa og gömlu dansana og auð­vitað vonum við að sem flestir mæti í þjóð­bún­ing að eigin vali og taki sporið.“

Fjall­konu­ræð­una flutti Edda Björg­vins­dóttir, leik­kona, á síð­asta ári og bar skautið með glæsi­brag

Oddný Krist­jáns­dóttir klæð­skeri vildi hins vegar lítið segja í við­tali við blaða­mann, enda bundin algerum trún­aði við borg­ar­yf­ir­völd. „Fjall­konan er aldrei afhjúpuð fyrr en á Ast­ur­velli, en valið fer mjög leynt á hverju ári. Nefndin sem fer fyrir val­inu er fámenn og ákvörðun er tekin á stjórn­stigi borg­ar­innar en ég fæ fjall­kon­una til mín á hverju ári og með henni fylgir einn starfs­maður borg­ar­innar, sem gætir þess að eng­inn komi að okkur meðan á mátun stendur. Ég get auð­vitað ekki sagt hver verður fyrir val­inu í ár, leyndin er svo mikil að við liggur að við þurfum að hitt­ast seint að kvöldi og um nætur. Og ég má ekki segja neitt. Þetta kemur allt í ljós á morgun.“

Dagskrá Reykja­vík­ur­borgar á morgun, þann 17. júní 2021, má sjá HÉR

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ