Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Neytandi vikunnar: „Við losuðum okkur við annan bílinn og keyptum rafmagnshjól í staðinn“

Neytandi vikunnar: „Við losuðum okkur við annan bílinn og keyptum rafmagnshjól í staðinn“

Sigmar Guð­munds­son er neyt­andi vik­unnar hann býr með unn­ustu sinni og tveimur börnum, þeim Kötlu og Krumma í Reykja­vík. Sigmar á einnig eldri börn sem búa ekki á heim­il­inu. Hann hefur starfað sem fjöl­miðla­maður á RÚV undan farin ár en hefur nú söðlað um og býður sig nú fram til Alþingis í 2. sæti  á fram­boðs­lista Við­reisnar í suð­vest­ur­kjör­dæmi.

Hve miklu eyðir fjölskyldan í mat og aðrar rekstrarvörur heimilisins á mánuði og

hvar verslar hún helst ?

„Ég er ekki alveg með það á hreinu hvað við eyðum miklu í mat á mán­uði en ég gæti trúað að það væru svona um 140 þús­und. Við verslum lang mest í Krónunni, stærri inn­kaup eru að mestu gerð þar. Við reynum að forð­ast dýr­ari búð­irnar því það getur munað mjög miklu í verði. Við verslum þó stundum í Hagkaup ef það vantar eitt­hvað sér­stakt kjöt eða ferskvöru sem ekki fæst ann­ars staðar“.

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi ?

„Sparn­að­ur­inn felst mest í að halda sig við lág­vöru­verðs­búð­irnar eins og kostur er. Við kaupum líka mikið til sömu hlut­ina og erum frekar íhalds­söm í inn­kaupum, þekkjum ágæt­lega inn á hvað börnin vilja og högum inn­kaupum í sam­ræmi við það sem svo aftur stuðlar að minni mat­ar­sóun. Ég er ekki í neinum vafa um að það er hægt að lækka mat­ar­verð veru­lega á Íslandi, en til þess þarf að laga til í land­bún­að­ar­kerf­inu, tolla­málum og skipta um gjald­miðil. Ég held að það síð­ast­nefnda sé reyndar eitt brýn­asta hags­muna­mál heim­il­anna, bæði þegar kemur að mat og öðrum aðföngum“.

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er ?

„Við leggjum mán­að­ar­lega til hliðar til að eiga fyrir óvæntum útgjöldum og ferða­lögum og þess háttar. Við eyðum tals­vert minna í ferða­lög nú en áður með því að fara í íbúð­ar­skipti á sumrin. Ég get ekki mælt nógu sterk­lega með því, bæði kemur það vel út fjár­hags­lega auk þess sem það er tals­vert skemmti­legra þegar maður er með lítil börn, skemmti­legri og ódýr­ari frí. Þá borgum við auka­lega inn á lán til að draga úr vaxta­kostn­aði og stytta láns­tím­ann. Því fyrr sem   hús­næð­is­lánin eru kláruð, því betra“.

Telur þú álagningu verslana sanngjarna og gerir þú verðsamanburð á vörum og

þjónustu ?

„Það er erfitt að alhæfa með álagn­ingu, hún er stundum sann­gjörn og stundum er okrað. Ég geri verð­sam­an­burð og pæli í hlutum þegar um dýr­ari vörur er að ræða. Konan mín er hins­vegar mik­ill snill­ingur þegar kemur að þessum málum, hún er ótrú­lega séð og klár, ekki síst þegar kaupa á föt á börnin. Hún hugsar fram í tím­ann og finnur gæða­föt á útsölum og með góðum afslætti“.

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán ?

„Auðvitað er best að vera ekki með nein lán en fæst venju­legt fólk hefur tök á því, a.m.k. ef menn vilja eign­ast þak yfir höf­uðið. Í dag myndi ég mæla með óverð­tryggðum lánum og reyna að borga þau sem hrað­ast niður. Verð­tryggðu lánin hjálpa hins vegar þeim sem hafa minnstu greiðslu­get­una en þau lán eru auð­vitað rán­dýr, eðli máls­ins sam­kvæmt. Verð­trygg­ingin er vel skil­greint afkvæmi íslensku krón­unnar og verður við lýði á meðan krónan er. Um hver ein­ustu mán­aða­mót, þegar ég borga af hús­næð­is­lán­inu, hugsa ég dapur til þess hve íslensk heim­ili borga svim­andi háa vexti miðað við þau lönd sem við miðum okkur helst við, grát­legt alveg“.

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli ?

„Já hún skiptir miklu máli. Við reynum að forð­ast mat­ar­sóun og höfum reyndar dregið tals­vert mikið úr neyslu á mínu heim­ili. Fatainn­kaup eru til að mynda allt önnur og skyn­sam­legri í dag en áður og við los­uðum okkur líka við annan bíl­inn og keyptum raf­magns­hjól í stað­inn. Við reynum að gera þessa litlu hluti sem heim­ili geta gert, því þeir skipta máli“.

Hvaða mál og málaflokka telur þú að þurfi að leggja meiri áherslu á ?

„Það skiptir okkur gríð­ar­lega miklu máli sem neyt­endur að skipta um gjald­miðil og í því felst stærsta kjara­bótin að mínu mati. Umhverf­is­málin eru líka risa­stór mála­flokkur sem teygir sig auð­vitað niður í alla anga sam­fé­lags­ins. Þau eru reyndar þannig mála­flokkur að allar ákvarð­anir sem teknar eru þurfa að taka mið af umhverf­inu. Við sjáum það á biðlist­unum í heil­brigð­is­kerf­inu að þar þarf heldur betur að taka til hend­inni. Svo er líka mjög brýnt að styðja við nýsköpun og frum­kvöðla­hugsun og leggja tals­vert meira fé til upp­bygg­ingar tækni­geira og vís­inda­starfs. Verum líka óhrædd við að end­ur­skoða og betrumbæta kerfin okkur, til að mynda vel­ferð­ar­kerfin, land­bún­að­ar­kerfið og sjáv­ar­út­veg­inn þannig að þau þjóni almenn­ingi en ekki ein­hverjum sér­hags­munum. Þar er nú heldur betur hægt að taka til hend­inni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi