Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einkaviðtal Mannlífs: „Ég óttast um líf mitt hverja sekúndu“

Einkaviðtal Mannlífs: „Ég óttast um líf mitt hverja sekúndu“

Á síð­ast­liðin mið­viku­dag voru tveir ungir palen­stínskir hæl­is­leit­endur beittir harð­ræði í húsa­kynnum Útlend­inga­stofn­unar. Mannlíf fjall­aði um málið, umfjöll­un­ina má sjá hér. Annar mað­ur­inn var fluttur til Grikk­lands í morgun en hinn mað­ur­inn er en þá hér á landi að minnsta kosti til klukkan fimm í fyrra­málið en þá fer hann í fylgd stoð­deild­ar­lög­regl­unar út á Kefla­vík­ur­flug­völl. Shoukri Abolebda er mað­ur­inn sem enn er hér á landi og veitti Mannlífi einka­við­tal.

Shoukri Abolebda er orðin mjög þreyttur

Shoukri er 29 ára gam­all og kemur frá Palest­ínu og hefur hann dvalið á land­inu í um 10 mán­uði. Áður var hann á Grikk­landi við þær hræði­legu aðstæður sem í boði eru þar í landi. Hann var komin með ljót útbrot á allan lík­amann úti í Grikk­landi og var almennt mjög illa haldin við kom­una til Íslands þar sem hann hugði á að hefja nýtt líf, fá sér vinnu og vera öruggur. Það gekk ekki alveg eftir því honum var neitað um vernd hér á landi eins og öllum palen­stínskum hæl­is­leit­endum við­ist vera, að minnst kosti upp á síðkastið.

Mynd sem tekin var af sjón­ar­votti fyrir utan UTN

Heilsu­far Shokri hefur ekki verið gott síðan hann lenti í því sem krakki að fá sprengju­brot í höf­uðið í einu af mörgum stríðum sem brot­ist hafa út á milli Ísrael og Palest­ínu. Höggið sem hann hlaut kom honum í dá í 7 mán­uði og laskað­ist hann einnig á skrokknum. Eftir að hann vakn­aði úr dáinu kom í ljós að minn­is­stöðvar og önnur svæði í heil­anum hefðu hlotið óaft­ur­kræfan skaða með þeim afleið­ingum að hann á það til að gleyma, fá flog og annað slíkt. Það er því ljóst að bæði and­leg og lík­am­leg heilsa hans er ekki góð.

Shokri sýndi blaða­manni mikið safn af lækn­is­vott­orðum, lyf­seðlum og öðru slíku sem stað­festi það sem hann sagði. Gögnin voru frá Íslandi, Grikk­landi og Palest­ínu. Útlend­inga­stofnun var full­kunn­ugt um hans við­kvæmu stöðu og hans veik­indi og eðli þeirra þegar ákveðið var að beita brögðum til þess að fá ungu menn­ina tvo í höf­uð­stöðvar sínar á fölskum for­sendum, eins og fram kom í grein Mannlífs.

Viðtalið var tekið með hjálp túlka því Shokri skilur hvorki né talar ensku.

Byrjaðu á því að segja mér frá því hvernig þetta hófst allt saman

„Ég fékk sím­hring­ingu úr leyni­núm­eri klukkan 8:58 á mið­viku­dags­morgn­inum frá manni að nafni Ali, hann vinnur hjá UTN og talar arab­ísku og hann sagði að ég ætti að koma klukkan 11  að sækja bólu­setn­ing­ar­skír­teinið mitt. Ég sagði að ég væri ekki viss um að kom­ast en Ali sagði að það væri betra fyrir mig að koma og sækja það svo ég sam­þykkti það. Vinur minn fékk einnig sím­tal frá Ali og átti að mæta klukkan 10, það var einnig hringt í hann úr leyni­núm­eri.

Skjáskot af síma Shoukri en þarna sést á arab­ísku að hringt var í hann klukkan 8:58 úr leyni­núm­eri

Þegar vinur minn kom klukkan 10 var honum tjáð að Ali yrði ekki við fyrr en klukkan 11. Rétt fyrir klukkan 11 var ég komin í námunda við UTN og var hik­andi að fara inn. Ali lét þá vin minn hringja í mig og athuga hvort ég væri ekki að koma. Þegar ég er komin að hús­inu sá ég lög­reglu­bíla og ómerkta bíla koma á fleygi ferð úr báðum áttum, ég skildi auð­vitað ekk­ert hvað var að ger­ast og fór inn. Þegar inn var komið rétti Ali mér litla bók og sagði að það væri bólu­setn­ing­ar­skír­teinið mitt og nú ætti að flytja okkur úr landi til Grikk­lands.

Það var vinur Shoukri sem liggur á gólf­inu undir lög­regl­unni

Ég sagði við Ali að hann hefði logið að okkur til þess að fá okkur á stað­inn og aldrei minnst á það að þetta væri að fara að ger­ast. Þá er lög­reglan og sér­sveitin sem var vopnuð mætt inn til okkar en við vorum inni í  hlið­ar­her­bergi og sátum við borð þar“.

Hvaða atburðarás fer svo í gang ?

„Mér er skellt með höf­uðið í borðið og ég er járn­aður með hendur fyrir aftan bak. Á þessum tíma­punkti hrópa ég á Ali um að hjálpa mér, segi að hann viti af vanda­mál­unum með höf­uðið á mér. Ég bið hann að þýða það fyrir lög­regl­una en hann stendur bara og segir ekki neitt. Ég sturl­að­ist úr hræðslu þetta voru skelfi­legar aðstæður að vera plat­aður svona og svo beittur ofbeldi. Ég er líka floga­veikur og svona ástand getur fram­kallað flog hjá mér, Ali vissi það líka en sagði ekki neitt. Þegar ég fer að berj­ast um sturl­aður úr hræðslu var höfði mínu skellt í vegg­inn.

Bólgur og mar sem enn eru að brjót­ast út eftir höf­uð­höggin
Það er greini­legt að eitt­hvað mikið hefur gengið á

Ég man nokkur atriði eftir það en ann­ars var ég hálf með­vit­und­ar­laus eftir seinna höggið. Ég man að ég fann raf­magn eða eitt­hvað sem gaf sömu til­finn­ingu og það og taldi að það væri verið að skjóta á mig með raf­byssu, en ég er ekki viss hvað annað þetta getur hafa verið en ég þekki vel til­finn­ing­una þegar maður er skot­inn með svona vopni en gríska lög­reglan gerir það að leik sínum við hvert tæki­færi að nota slíkt vopn á okkur flótta­menn­ina. Svo man ég að ég var klæddur úr og ég spraut­aður í upp­hand­legg­inn af manni í bún­ing og gulu vesti, ég er ekki viss um hvort þetta var lögga eða hvað ég ein­fald­leg þekki ekki bún­ing­ana hér á landi nógu vel. Eftir þessa sprautu man ég ekk­ert fyrr en ég vakna í fanga­klefa hjá lög­regl­unni“.

Hann man ekki eftir því að þetta hafi verið sett á hann

Hvað gerist eftir að þú rankar við þér í fangaklefanum ?

„Ég vakna og veit ekk­ert hvað hefur skeð eða hvar ég er eða af hverju. Ég hrópa og banka á klefa­hurð­ina þar til ein­hver kemur og þá er ég spraut­aður aftur og sofna og vakna ekki fyrr en klukkan sex á fimmtu­dags­morgun. Ég held að ég hafi vaknað fyrst í klef­anum um miðjan dag en ég er hreint ekki viss. Þá var búið að fara með mig bráða­deild­ina held ég eða að minnsta kosti var ég með þetta sjúkra­arm­band á mér og búið var að taka úr mér blóðprufu, ég var líka í  sjúkra­hússlopp. Ég veit ekk­ert hvað kom fyrir eða hvaða áhrif þetta kann að hafa haft á heilsu­far mitt. Svo er mér skutlað af lög­regl­unni inn á Grensás og ég skil­inn eftir þar á sjúkrasloppnum. Ég gat þá náð mér í föt í óskila­munum og klætt mig“.

Shoukri seg­ist hafa verið spraut­aður niður í tvígang
Áverkar og arm­band frá Bráða­deild­inni í Fossvogi

Hvað olli því að þú varst ekki fluttur burtu af landinu með vini þínum ?

„Ég held að það sé vegna þess að ég var og er mjög illa far­inn, á erfitt með gang eins og þú sérð og líður hreint út sagt hræði­lega. Ég heyrði svo í stoð­deild lög­regl­unnar, ég hringdi í þá sjálfur og óskaði eftir því að fá að fara sjálf­vilj­ugur af landi brott sem var sam­þykkt enda hef ég ekki brotið neitt af mér né gert flugu mein. Ég verð sóttur á Grensás klukkan fimm í fyrra­málið af tveimur mönnum frá stoð­deild­inni en ég fæ að fara sem frjáls maður sem þýðir það að ég þarf ekki að fara til Grikk­lands beint eða nokkurn tíman. Annað en vinur minn, hann var fluttur til Grikk­lands þar sem hann á nú að sitja inni í fang­elsi þar í átta mán­uði, fyrir hvað veit ég ekki þeir þurfa enga ástæðu þarna á Grikk­landi en lík­lega er það vegna þess að hann flúði frá Grikk­landi“.

Shoukri í flótta­manna­búð­inum úti í Grikk­landi

Hvernig líður þér á þessari stundu ?

„Mér líður skelfi­lega illa, ég á erfitt and­lega eða þú veist ég á við geð­rænan vanda að stríða eftir slysið og það er ein­ungis mán­uður síðan ég reyndi að taka eigið líf, þegar mér var ljóst að ég fengi ekki vernd hér á landi þá fannst mér lífið bara búið. Ég er orðin rosa­lega þreyttur, alveg rosa­lega þreyttur. Ég óska engum að þurfa að ganga í spor palen­stínskra flótta­manna. Ég fer klukkan fimm út á völl og lendi í Þýska­landi. Eftir það þá veit ég ekki hvað verður um mig. Ég ótt­ast um líf mitt hverja sek­úndu“.

Svona reyndi Shoukri að taka sitt eigið líf fyrir mán­uði síðan
Heimili Shoukri á Grikk­landi
Börn að leik í flótta­manna­búð­unum sem Shoukri bjó í
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi