Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Glæsileg og nauðasköllótt Ragna: „Þetta er mjög sárt og oft saknar maður þess að vera með hár“

Glæsileg og nauðasköllótt Ragna: „Þetta er mjög sárt og oft saknar maður þess að vera með hár“
Ragna Sólveig Þórð­ar­dóttir er með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­inn Alopecia sem veldur bletta­skalla eða jafn­vel algjöru hár­losi.

Ragna Sólveig Þórð­ar­dóttir er með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­inn Alopecia sem veldur bletta­skalla eða jafn­vel algjöru hár­losi. Hún fór að fá bletta­skalla þegar hún gekk með sitt annað barn í hitti­fyrra, hárið var svo rakað af henni og hún seg­ist ekki gera sér vonir um að fá það aftur. „Þetta er krefj­andi og oft saknar maður þess að vera með hár. En það er ekk­ert við því að gera.“

Ragna Sólveig Þórð­ar­dóttir er nýgift, tveggja barna móðir og á von á sínu þriðja barni. Komin 12 vikur á leið. Hún er nemi í félags­ráð­gjöf við Háskóla Íslands. Ragna er glæsi­leg, heil­brigð og nauða­sköll­ótt en var árum saman með þykkt og sítt, rautt hár. „Ég hafði aldrei nokkurn tím­ann svo mikið sem litað það.

Ragna var árum saman með þykkt og sítt, rautt hár. „Ég hafði aldrei nokkurn tím­ann svo mikið sem litað það.“
Ég byrj­aði að fá skalla­bletti þegar ég gekk með mitt annað barn árið 2019.

Ég fór til lækna og fékk að vita að ég væri með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­inn Alopecia sem veldur skalla­blettum og jafn­vel algjöru hár­losi. Mér var sagt að það væri ekk­ert hægt að gera svo sem út af því að ég var ólétt þannig að ég gat ekki prófað neinar með­ferðir.

Mér finnst vera ótrú­lega skrýtið að ég er síðan búin að fara á milli lækna og það getur eng­inn gefið mér svör varð­andi hvað sé í raun að valda þessu hjá mér. Ég hef til dæmis farið til gigt­ar­læknis sem lét mig fá ónæm­is­bælandi lyf og seinna kom í ljós að það virk­aði ekki á mig þrátt fyrir að virka á aðra með sama sjúk­dóm. Alopecia er óút­reikn­an­legur sjúk­dómur og ekki ein­hvað eitt sem virkar á alla.“

Ragna varð eðli­lega hrædd þegar fyrsti skalla­blett­ur­inn kom í ljós.

„Það fylgdi þessu mikil hræðsla og ég vissi ekki hvort það yrði í lagi með mig eða barnið.

Mér fannst þetta vera mjög óþægi­legt og erfitt og líka út af því að ég kom svo mikið að lok­uðum dyrum. Það var skrýtið að leita mér hjálpar lækna af því að ég fékk engin svör. Ég held að þetta sé horm­óna­tengt í mínu til­felli; að þetta teng­ist horm­ónum og skjald­kirtl­inum en ég hef ekki farið í neina almenni­lega rann­sókn af því að ég hef ann­að­hvort verið ólétt eða nýbúin að eign­ast barn eða verið að prófa lyf. Ég fór í rann­sókn, horm­óna­rann­sókn, fyrir nokkrum vikum síðan áður en ég vissi að ég væri ólétt og svo komst ég að því að ég væri ólétt þannig að sú blóðprufa var ekki tekin gild.“

Ragna seg­ist hafa heyrt mis­mun­andi svör við því hvort hárið geti komið aftur.

„Gigt­ar­læknir sagði mér að hann hefði verið með fólk hjá sér sem hefði fengið allt hárið aftur eftir eftir að hafa fengið ónæm­is­bælandi lyf. Svo hef ég lesið að ef fólk er búið að vera hár­laust í ákveð­inn tíma þá séu minni líkur á að hárin komi aftur. Ég hef einnig lesið að ef fólk missir meira en 70% af hár­inu þá séu einnig minni líkur á að þau komi aftur. Ég er ekk­ert rosa­lega von­góð um að það geti gerst miðað við hvað þetta er búinn að vera langur tími hjá mér. En maður veit það svo sem ekki. Maður verður að halda í von­ina.“

Tilfinningaþrungin stund

Fyrsti skalla­blett­ur­inn kom í ljós í jan­úar 2019 þegar Ragna var komin örfáar vikur á leið.

„Maðurinn minn, Ingvar Þór, tók eftir blett­unum og hann var far­inn að spyrja hvort mér myndi ekki líða betur ef ég myndi raka af mér hárið. Ég var farin að fela blett­ina svo mikið og mér fannst það vera erfitt. Ég var alltaf með­vituð um hvort það væri ein­hver fyrir aftan mig eða hvort ein­hver myndi taka eftir þessu. Hárið á mér var orðið svo rosa­lega þunnt. Svo kom ég heim einn dag­inn í maí og hugs­aði mér mér hvort það yrði ekki auð­veld­ara ef hárið væri rakað af mér. Þar sem ég gat ekki prófað neinar með­ferðir þá sá ég ekk­ert annað í stöð­unni en að taka það litla sem var eftir.

Það var svo mjög til­finn­inga­þrungin stund þegar mað­ur­inn minn rak­aði af mér allt hárið og í fram­hald­inu rak­aði hann sig og son okkar líka.

Ég vand­ist því samt fljótt að vera sköll­ótt. Mér fannst svo eig­in­lega vera erf­ið­ara að útskýra þetta fyrir fólki heldur en að láta raka hárið af en bæði mað­ur­inn minn og eldri strák­ur­inn voru aldrei spurðir út í neitt í sam­bandi við að vera sköll­óttir eftir að hafa rakað á sér hárið líka. Bara ég. Mér finnst ég líta vel út og mér líður vel  en mér finnst það vera sorg­legt hvernig fólk leyfir sér að tjá sig við mig um þetta án þess að ég nefni þetta neitt.“

Ragna geymir síðan, rauðan lokk úr hári sínu.

Það vaxa broddar á hluta höf­uðs­ins sem Ragna skefur af sjálf.

Augnhár duttu af og svo auga­brúnir. „Þau hár koma samt og fara dálítið.“

Halda að hún sé veik

Ragna segir að þegar mað­ur­inn hennar hafi verið búinn að raka af henni hárið hafi hún ákveðið sama sama dag að fara út sköll­ótt og venj­ast nýjum stíl.

„Ég hef alltaf reynt að taka þessu eins og það er og vekja líka athygli á þessum sjúk­dómi af því að þetta er miklu algeng­ara en maður gerir sér grein fyrir. Ég þurfti svo mikið að vera að útskýra fyrir vinum og fjöl­skyldu. Enginn vissi hvað var í gangi eða eng­inn skildi þetta og maður var alltaf settur í stöðu eins og það væri eitt­hvað að manni sem er frekar leið­in­legt. Það þekkja fáir þennan sjúk­dóm og ég þekkti hann ekki sjálf. Ég hef oft verið spurð hvort ég sé með krabba­mein og ég sé hvernig fólk horfir á mig því ég geng ekki með hár­kollur en er stundum með klút.

Það er horft á mig vor­kunn­ar­augum. Eins og ég sé við dauð­ans dyr.

Það er fullt af sköll­óttum körlum og þeir gætu verið með Alopecia en það er álitið að sköll­óttar konur eigi svo bágt og séu veikar.“

Rögnu finnst vera óþægi­legt að vera með hár­kollu en notar af og til slæður. Hún kýs þó almennt að vera ekki með neitt á höfð­inu.

Hún segir að fjöl­skylda og vinir hafi fengið frekar mikið sjokk þegar hún fór að missa hárið.

„Maðurinn minn er búinn að vera algjör klettur og útskýrt þetta fyrir mörgum. Það var eins og eng­inn þekkti þetta og fólk var að spyrja hvenær ég fengi hárið aftur, hvernig þetta yrði og hvort ég yrði alltaf svona. Þetta voru spurn­ingar sem ég gat ekki tek­ist á við af því að ég vissi ekk­ert sjálf og þekkti þetta ekk­ert sjálf.“

Ragna byrjar að gráta.

„Viðbrögð fólks hafa samt almennt verið góð. Maður er búinn að opna ein­hverjar dyr með því að kynna fólki fyrir þessum sjúk­dómi sem það þekkti ekki. Konur sem eru með Alopecia út um allan heim hafa sett sig í sam­band við mig þar sem ég reyni ekki að fela neitt á myndum og þær hafa fundið styrk í því. Og mér finnst það vera jákvætt.“

Eldri sonur Rögnu og Ingvars var svo lít­ill þegar hún missti hárið að hann man ekki eftir mömmu sinni nema sköll­óttri. Ingvar á dóttur af fyrra sam­bandi, sem er ung­lingur, og segir Ragna að henni hafi fund­ist þetta vera æðis­legt.

„Hennar kyn­slóð er svo opin fyrir breyt­ingum og að fólk sé alls konar. Það var eins og ekk­ert hefði í raun­inni gerst hvað varðar hana og vin­konur hennar. Nokkrum dögum eftir að hárið var rakað af mér þá sagði hún að sér hefði alltaf fund­ist ég hafa verið sköll­ótt og hún sæi engan mun. Þannig að það var æðis­legt og mér finnst gott að opna augu fyrir börn­unum að fólk sé alls konar. Eldri sonur minn var nýlega að horfa í sjón­varp­inu á bíó­mynd­ina „Black Panther” og sá þar sköll­óttar stríðs­konur. Hann sagði að þær væru alveg eins og mamma sín. Ég er mjög stolt af því og mjög ánægð með það en ég hef kennt börn­unum þau gildi að fólk getur verið eins mis­mun­andi og það er margt.“

Saknar þess að vera með hár

Ragna hefur lært ýmis­legt um sjálfa sig eftir að hún fór að missa hárið.

„Ég held það sé til dæmis hversu mikið ég er búin að koma sjálfri mér á óvart og hvað maður er sterkur og sjálfsör­uggur í raun­inni. Það hafa margir talað um það. Það kom aldrei neitt annað til greina í mínum huga en að taka þessu eins og það er þótt það sé erfitt. En það er samt þannig. Þetta er krefj­andi og oft saknar maður hárs­ins. En það er ekk­ert við því að gera.“

Tár renna niður kinn­arnar.

Það er aug­ljós­lega erfitt að tala um þetta.

„Já, smá.“

Hún strýkur burt tárin.

Þetta er sárt fyrir sál­ina.

„Þetta er mjög sárt. Það var erfitt að horfast í augu við þá stað­reynd að vera orðin sköll­ótt þegar maður var búinn að vera með hár.

Ég var alltaf þekkt fyrir að vera „Ragna rauð­hærða“ og svo er Ragna bara orðin sköll­ótt.

Allar vin­kon­urnar eru með hár. Ég þarf stundum að taka mig á til að vera ekki leið yfir því að fá ekki að greiða mitt eigið hár en mér þótti það alltaf vera svo gaman að flétta og dúlla í hári. Ég leyfi mér ekki að pæla í hvernig ég var og hvernig ég er núna. Ég held að það sé ekki gott að dvelja þar. Sjálfs­mynd mín er mjög sterk og hefur ekk­ert minnkað.“

Ragna er spurð hvað sé sár­ast.

„Ég held það sé þegar fólk skilur þetta ekki og ónær­gætni í spurn­ing­unum sem maður fær frá fólki. Það finnst mér vera erf­ið­ast,“ segir hún brost­inni röddu. „Mér finnst vera erfitt að vera enda­laust að útskýra og rétt­læta mig í stað þess að fá bara að vera ég. Fyrst ég er sátt, af hverju eru þá ein­hverjir aðrir að spyrja mig spurn­inga eins og þeir séu það ekki? Það skil ég ekki.“

Þögn.

„Og líka þegar ég sé gamlar myndir af mér með hár og ég get ekki lengur greitt mér og ég veit ekki hvert fram­haldið verður. Ég veit ekki hvort ég fæ hárið eða ekki. Það er erf­ið­ast að horfast í augu við það. Þetta er svo mikil breyt­ing. Hárið gerir svo mikið fyrir konur. Um leið og fólk sér sköll­ótta konu þá hugsar það kannski með sér að hún sé veik eða við dauð­ans dyr eins og ég sagði en það er alls ekki þannig.

Mér finnst vanta svo mikla vit­und­ar­vakn­ingu.

Þetta er van­þekk­ing hjá fólki vegna þess að það hefur ekk­ert verið fjallað um þetta. Og fólk leyfir sér að horfa, glápa. Ég er ótrú­lega opin ef fólk spyr út í þetta; ég vil gera það en ég vil ekki að fólk sé að horfa á mig og vor­kenna mér. Mér finnst það vera svo erfitt og ómögu­legt. Alopecia er miklu algeng­ara en fólk heldur. Margar konur með Alopecia eru með hár­kollur eða klúta.“

Ragna er nemi í félags­ráð­gjöf eins og þegar hefur komið fram og hún seg­ist halda að þessi reynsla muni nýt­ast sér í starfi við að hjálpa öðrum.

„Það styrkir mann að ganga í gegnum eitt­hvað svona. Og maður kemur sjálfum sér mikið á óvart. Maður sér hvað maður er sterkur en ég hefði ekki endi­lega hug­mynd um það. Þannig að ég held að ég muni klár­lega getað notað þessa reynslu í starfi og hjálpað öðrum.“

Sátt í eigin skinni

Ragna og Ingvar giftu sig í Háteigs­kirkju laug­ar­dag­inn 3. júlí.

„Við svífum enn um á bleiku skýi,“ segir nýgifta og ham­ingju­sama konan. Tárin eru þornuð og brosið er breitt

Á brúð­kaups­dag­inn.

„Bríet söng þrjú lög í kirkj­unni, við fórum í mynda­töku á Gljúfra­steini og svo var svaka veisla í Sjálandi. Þannig að þetta var æðis­legur dagur. Og allir voru svo veisluglaðir.“

Ragna var í gull­fal­legum „prinsessu­kjól“. „Það kom ekk­ert annað til greina.“

Brúð­ar­vönd­ur­inn sam­an­stóð af eldrauðum rósum – rauðum eins og hárið hennar var.

„Þetta var alger draumur.“

Hún var hvorki með hár­kollu né slæðu.

„Það kom ekk­ert annað til greina en að vera sköll­ótt í brúð­kaup­inu.

Ég var búin að sjá margar myndir á Instagram af konum úti í heimi sem giftu sig sköll­óttar þannig að það var dálítið inn­blástur fyrir mig að vera bara eins og ég er. Þetta er bara lífið eins og það er núna. Það skiptir máli að vera ham­ingju­söm og heil­brigð og vera ánægð í eigin skinni. Ég held að það sé lyk­ill­inn að ham­ingj­unni í líf­inu.“

Nýgift.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina