Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sindri verður ævinlega stoltur af baráttunni við Veðurguðinn: „Ingó fær ekki krónu frá mér“

Sindri verður ævinlega stoltur af baráttunni við Veðurguðinn: „Ingó fær ekki krónu frá mér“
Það Veður eng­inn yfir Sindra.

Sindri Þór Hilm­ars­son er einn af þeim fimm ein­stak­lingum sem sem Ingó Veðurguð hefur kært fyrir meið­yrði, og kippir sér lítið upp við það og sendir Ingó kaldar kveðjur. Sindri er ekki einn af þeim mönnum sem láta hræða sig auð­veld­lega og í færslu fer hann yfir málið af yfir­vegun og með hrein­skilni að vopni.

„Eins og margir hafa lesið nú þegar hefur Ingólfur Þór­ar­ins­son tekið þá við­búnu ákvörðun að krefj­ast bóta, ellegar hóta kæru, frá þeim sem höfðu hátt upp á síðkastið og tjáðu sig um ásak­anir á hendur honum. Ég er þar á meðal, enda fór ég mik­inn í þeirri umræðu á sam­fé­lags­miðlum,“ segir Sindri sem „ofbauð algjör­lega sú eitr­aða ger­enda­með­virkni sem þar log­aði og sú stað­reynd að gít­ar­glamur popp­ara virt­ist mörgum meira virði en skelfi­legar sögur tuga þolenda. Kannski ekki nema von þar sem þolend­urnir eru, eftir því sem við best vitum, konur og sam­fé­lagið hefur lengi sett til­finn­ingar og ásýnd karla skör hærra en líf og heilsu kvenna.“

Sindri seg­ist hafa í umræð­unni notað „óheflað mál af ásettu ráði, fannst engin ástæða til að syk­ur­húða mál­efnið eða tala undir rós með neinum hætti. Það stuð­aði marga, sem er gott því það sem um ræðir er hið ljótasta mál. Þessi hnífur á að vera þungur. Þó grunar mig að Ingólfi hafi ekki síður sviðið sú Twitter umræða er ég hóf og sýndi svo ekki verður um villst að þessi orð­ræða er ekki ný af nál­inni. Þar tjáðu sig tugir ofan á tugir fólks, aðal­lega konur sem lýstu því hvernig þær höfðu á sínum yngri árum verið gagn­gert var­aðar við Ingólfi og hans hegðun.“

Sindri nefnir að „konur lýstu því hvernig þær fengu óum­beðin við­reynslu­skila­boð, boð á rúnt­inn, boð um „skuttl“ heim af böllum og margt fleira þegar þær voru börn að aldri. Starfs­fólk félags­mið­stöðva lýsti því hvernig tekin hefði verið ákvörðun um að ráða Ingólf ekki á skemmt­anir vegna óvið­eig­andi hegð­unar hans. Allt tjáir þetta fólk sig undir nafni og fyrir allra augum. Ég gæti haldið lengi áfram. Þessar sögur eru alltof alltof margar og ná aftur ein tólf – þrettán ár.“

Og ljóst má vera af orðum Sindra að hann er ekk­ert lamb að leika sér við:

„Ég veit að ég get verið bölv­aður ruddi. Gamall kraft­lyft­ingagaur, box­ari og þung­arokk­ari sem lærði að rífa kjaft áður en ég lærði almenni­lega að tala. Það gleður mig því ómæl­an­lega að nú þegar ég verð loks­ins lát­inn standa í dóms­sal vegna ein­hvers sem ég sagði þá er það eitt­hvað sem ég stend heils­hugar við, í bar­áttu sem ég verð ævin­lega stoltur af að hafa ljáð krafta mína og er hvergi nærri hættur. Já, ég segi dóms­sal, því ég er hræddur um að Ingólfur verði að bæta sér upp aura­leysið ann­ars­staðar en í mínum vösum. Hjá mér fær hann ekki krónu með gati. Komi það sem koma kann, ég mæti spenntur!“

Hann nefnir það „að kæra fugla eins og mig fyrir það sem ég læt út úr mér á inter­net­inu er gott og blessað. Ég tel mig hafa sagt í einu og öllu satt og rétt frá og er til­bú­inn að standa við það allt saman. Biðst ekki afsök­unar á neinu af því. Ingólfi finnst að sér vegið og kýs að fara þessa leið í því máli.“

Sindra finnst kæra Ingós vera „ómerki­leg og lykta af örþrifa­ráðum,“ en seg­ist gera sér „fulla grein fyrir því, líkt og ég gerði þegar ég lét ummælin frá mér, að hann hafi þennan rétt.“

Honum finnst lélegt að „kæra til lög­reglu í þeirri von að afhjúpa konur sem hræddar tjáðu sig um gróft ofbeldi undir nafn­leynd. Rifu upp sár sín, mis­gróin, í von um að það kæmi öðrum til varnar. Konum sem gengur gott eitt til. Það þykir mér óþokka­bragð og nýjar lægðir í þessum ann­ars ósmekk­lega mála­flokki. Ég vona inni­lega að Ingólfur beri ein­hvern tím­ann gæfu til að skamm­ast sín ræki­lega fyrir það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina