Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sólveig Anna svarar óhróðursmönnum: „Vangaveltur hafa verið uppi um geðheilsu mína“

Sólveig Anna svarar óhróðursmönnum: „Vangaveltur hafa verið uppi um geðheilsu mína“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

„Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins hefur til að mynda ítrekað borið á mig sakir; ég er sam­kvæmt honum þjófur og nokk­urs­konar hryðju­verka­kona, eitt af því versta sem fyrir íslenska þjóð hefur komið,“ skrifar Sólveig Anna Jóns­dóttir, forn­aður Eflingar, um þær árásir sem hún hún hafi orðið fyrir síðan hún tók við sem for­maður verka­lýðs­fé­lags­ins. Þar er af nógu að taka og ekki aðeins Davíð Oddsson sem ber hana sökum.

„Fyrrum dóms­mála­ráð­herra hefur líka nokkrum sinnum birt pistla um mig þar hann segir að ég sé „gerð út“ af karl­mönnum. Og auð­vitað líka þjófur og blóð­þyrst ill-kvendi,“ skrifar hún.

Kveikjan að skrifum Sól­veigar eru skrif Einars Kára­sonar, ævi­sögu­höf­undar Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, sem lýsti henni sem orð­háki.

„Ég er búin að velta því fyrir mér hvaða per­són­u­árásir ég hafi gerst sek um á ríf­lega þriggja ára ferli mínum sem for­maður Eflingar. Ég hef kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Einar Kárason hljóti að vera að tala um þau skipti sem ég hef stungið niður penna eftir að um mig og/eða bar­áttu félags­fólks Eflingar hafa birst skrif og eða/ „fréttir“ á blað­síðum dag­blaða, blogg­síðu fyrrum dóms­mála­ráð­herra og víðar“.

„Þessi kerl­ing þarna, komm­ún­ist­inn“

 „Vanga­veltur hafa verið uppi um geð­heilsu mína og þekktur lög­fræð­ingur hefur komið sér­stak­lega á Facebook til mín til að spyrja hvernig sé að vera svona „van­stillt“. Ég hef í leið­ara Frétta­blaðs­ins verið ásökuð um að nota börn til að fá útrás fyrir ill­girni mína. Og ég hef verið ásökuð af fínum mönnum djúpt innan úr hreyf­ingu vinn­andi fólks um að taka börn sem gísla. Ég hef verið kölluð „þessi kerl­ing þarna, komm­ún­ist­inn“. Ég hef verið kölluð „skað­valdur“.

Svívirðileg laun

 Sólveig svarar svo öllum hrak­yrð­unum og rök­styður inni­halds­leysið hjá gagn­rýnendum á borð við Einar Kárason.

„Varðandi það að ég not­ist ekki við rök og stað­reyndir: Það er ein­fald­lega eins ósatt og hægt er að hugsa sér. Frá því að ég tók við sem for­maður Eflingar hef ég und­ir­byggt allan minn mál­flutn­ing með rökum og stað­reyndum. Ég hef aldrei haldið neinu fram um hagi félags­fólks Eflingar sem er ósatt. Ég hef þvert á móti vandað mig í því að ganga ávallt úr skugga um að inni­stæða sé fyrir því sem ég segi. Og hvað hef ég verið að segja: Jú, ég hef lýst þeim efna­hags­lega RAUNVERULEIKA sem verka og lág­launa­fólki er boðið upp á í sam­fé­lagi okkar. Ég hef sagt frá aðstæðum kvenna í umönn­un­ar­störfum og þeim sví­virði­legu launum sem þeim eru greidd fyrir sitt algjör­lega ómissandi vinnu­afl“.

Pistill Sól­veigar Önnu í heild sinni:

Ég veit að þetta er tíma­sóun og hefur ekk­ert að segja, og mun á ein­hvern per­verse hátt virka sem sönnun á því hvað ég er mikil tæfa fyrir þá menn sem ákveðið hafa að það sé hinn aug­ljósi sann­leikur um eðli mitt. En ég læt samt vaða:

Einar Kárason rit­höf­undur segir mig til­heyra hópi fólks sem svari „öllum öðrum með stór­yrðum og per­són­u­árásum, en rökum og stað­reyndum“. Ég er dálítið búin að hugsa um þetta í dag. Ég er enn í sum­ar­fríi og má því ef ég vil eyða tíma mínum í gagns­lausar hugs­anir um mein­lokur manna útí bæ. Ég er búin að velta því fyrir mér hvaða per­són­u­árásir ég hafi gerst sek um á ríf­lega þriggja ára ferli mínum sem for­maður Eflingar. Ég hef kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Einar Kárason hljóti að vera að tala um þau skipti sem ég hef stungið niður penna eftir að um mig og/eða bar­áttu félags­fólks Eflingar hafa birst skrif og eða/ „fréttir“ á blað­síðum dag­blaða, blogg­síðu fyrrum dóms­mála­ráð­herra og víðar.

Og það hefur gerst þó nokkuð oft frá því vet­ur­inn 2018. Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins hefur til að mynda ítrekað borið á mig sakir; ég er sam­kvæmt honum þjófur og nokk­urs­konar hryðju­verka­kona, eitt af því versta sem fyrir íslenska þjóð hefur komið. Fyrrum dóms­mála­ráð­herra hefur líka nokkrum sinnum birt pistla um mig þar hann segir að ég sé „gerð út“ af karl­mönnum. Og auð­vitað líka þjófur og blóð­þyrst ill-kvendi. Vanga­veltur hafa verið uppi um geð­heilsu mína og þekktur lög­fræð­ingur hefur komið sér­stak­lega á Facebook til mín til að spyrja hvernig sé að vera svona „van­stillt“. Ég hef í leið­ara Frétta­blaðs­ins verið ásökuð um að nota börn til að fá útrás fyrir ill­girni mína. Og ég hef verið ásökuð af fínum mönnum djúpt innan úr hreyf­ingu vinn­andi fólks um að taka börn sem gísla. Ég hef verið kölluð „þessi kerl­ing þarna, komm­ún­ist­inn“. Ég hef verið kölluð „skað­valdur“. Og vit­iði hvað; ég hef verið kölluð svo mikið og margt á síð­ustu nokkrum árum að ég ætla ekki að þreyta ykkur sem þetta lesið með því að telja meira upp.

En hvað er það sem ég hef gert af mér til að mega njóta þess aftur og aftur að opna blöð og inter­net og lesa um það hvers­konar snar­klikkuð meri ég sé: Jú, ég var kjörin for­maður Eflingar, fyrst kvenna, á rót­tæku, stétta­bar­áttu „plat­formi“ og ég hef reynt að gera það sem ég var kjörin til að gera; að berj­ast fyrir hags­munum verka og lág­launa­fólks. Það er glæp­ur­inn og fyrir hann hafa verið gerðar margar til­raunir til að refsa.

En hvers­vegna upp­lifir Einar Kárason átök mín við þau sem hafa notað völdin sín til að grafa undan trú­verð­ug­leika mínum og bar­áttu lág­launa­fólks fyrir efna­hags­legu rétt­læti sem „per­són­u­árásir“? Hvers­vegna þykir honum ekki full­kom­lega eðli­legt að kona svari fyrir sig þegar á hana eru bornar sakir, hún sögð vera strengja­brúða, geð­veik og svo illa inn­rætt að hika ekki við að fram­kvæma gísla­tökur á börnum? Hvers­vegna er ég bara ótta­legt „bitch“, hvers­vegna fæ ég ekki að njóta geisl­anna frá sigur-sól kvenna­bar­átt­unnar; hvar eru lýs­ing­arnar sem þær konur sem gera eitt­hvað stjóra-legt fyrstar kvenna fá að heyra um sig í sam­tíma okkar; flott, dug­leg, sterk og svo fram­vegis og svo fram­vegis?

Af hverju á ég að taka því þegj­andi og hljóða­laust að vera rægð og sví­virt? Er það vegna þess að ég er ekk­ert nema umönn­unar-kell­ing með grunn­skóla­próf? Er það vegna þess að ég er og hef ávallt verið sós­í­alisti? Hvers­vegna eru það „per­són­u­árásir“ af minni hálfu þegar ég sýni að sjálfs­virð­ing mín er nægi­leg til að ég finni hjá mér löngun til að svara fyrir mig? Af hverju á ég (ein kvenna í „stjórn­un­ar­stöðu“?) að vera svo aum og lít­ils virði að ég taki við hvaða skít sem mönnum dettur í hug að kasta í mig?

 Varðandi það að ég not­ist ekki við rök og stað­reyndir: Það er ein­fald­lega eins ósatt og hægt er að hugsa sér. Frá því að ég tók við sem for­maður Eflingar hef ég und­ir­byggt allan minn mál­flutn­ing með rökum og stað­reyndum. Ég hef aldrei haldið neinu fram um hagi félags­fólks Eflingar sem er ósatt. Ég hef þvert á móti vandað mig í því að ganga ávallt úr skugga um að inni­stæða sé fyrir því sem ég segi. Og hvað hef ég verið að segja: Jú, ég hef lýst þeim efna­hags­lega RAUNVERULEIKA sem verka og lág­launa­fólki er boðið upp á í sam­fé­lagi okkar. Ég hef sagt frá aðstæðum kvenna í umönn­un­ar­störfum og þeim sví­virði­legu launum sem þeim eru greidd fyrir sitt algjör­lega ómissandi vinnu­afl. Ég hef reynt að varpa ljósi á þær oft á tíðum óboð­legu aðstæður sem aðfluttu verka­fólki er boðið uppá. Ég hef reynt að varpa ljósi á kjör og aðbúnað far­and­verka­fólks. Og svo mætti áfram telja. Og í hvert ein­asta skipti er ég hef tjáð mig um þessi mál hef ég stuðst við gögn frá Eflingu, frá ASÍ, skýrslur fræða­fólks, og svo auð­vitað við frá­sagnir þess mikla fjölda sem ég hitt og talað við, félags­fólks Eflingar sem hefur deilt með mér sögum sínum og upp­lif­unum.

Já, ég er bar­áttu­fús. Já, ég trúi af öllu hjarta á rót­tæka og her­skáa bar­áttu verka og lág­launa­fólks fyrir rétt­læti og jöfn­uði. Og já, ég trúi á rétt minn til að svara fyrir mig þegar að mér eða félögum mínum er ráð­ist. Ég trúi því meira að segja að sá réttur sé einn sá mik­il­væg­asti sem við eigum; ekk­ert skil ég jafn illa og hug­mynd­ina um að bjóða hinn vang­ann. Nema kannski trú fólks á rétt­inn til að arð­ræna annað fólk. Ekkert af þessu eru til marks um að ég sé gallað kven-ein­tak.

Með því að halda því fram að ég sé óheið­ar­leg og van­stillt hefur Einar Kárason gerst sekur um það sem hann ásakar mig um að stunda; órök­studda per­són­u­árás. En svona er þetta og hefur verið; það er hópur manna í þess­ari borg sem er svo upp­sigað við mig að þeir bók­staf­lega heyra ekk­ert sem ég segi, sjá bara vonda komma-grýlu sem hlýtur eðli máls­ins sam­kvæmt að bulla og ljúga öllu sem hún segir.

En það segir auð­vitað miklu meira um þá en mig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ