Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðrún syrgir Svavar: „Ég má ekki láta sorgina yfirtaka líf mitt“

Guðrún syrgir Svavar: „Ég má ekki láta sorgina yfirtaka líf mitt“

Guðrún Ágústs­dóttir er einn af stofn­endum Rauð­sokka­hreyf­ing­ar­innar, hún á að baki langan feril sem borg­ar­full­trúi og síðar for­seti borg­ar­stjórnar Reykja­víkur, hún var sendi­herra­frú um ára­bil í Svíþjóð og síðar Kaup­manna­höfn og á síð­ustu árum hefur hún meðal ann­ars unnið sem ráð­gjafi hjá Lands­sam­bandi eldri borg­ara þar sem hún flutti meðal ann­ars fyr­ir­lestra um ein­mana­leika. Guðrún missti eig­in­mann sinn, Svavar Gestsson, fyrr á þessu ári og skrif­aði eftir frá­fall hans bæk­ling: „Við and­lát maka. Ætlaðan eldra fólki aðal­lega.“

„Ég held að ég sé fæddur jafn­að­ar­maður,“ segir Guðrún Ágústs­dóttir. „Ég hef alla tíð sjálf verið vel sett og bjó alla mína æsku við fjár­hags­legt öryggi en það gerðu ekki allir í Reykja­vík. Sumt fólk bjó við svo mikla fátækt. Ég sá þennan gíf­ur­lega mis­mun og ég þoldi það ekki og ég þoli það ekki ennþá. Ég þoli ekki fátæk­ina og ég held að hún sé öllum skað­leg. Ég fór einu sinni sem barn inn á heim­ili þar sem voru mörg börn og fékk að kíkja inn í stof­una sem var lítið her­bergi. Svo komu krakk­arnir þaðan heim til mín og var her­bergið mitt stærra heldur en litla stofan heima hjá þeim. Ég fann eftir þetta að krakk­arnir höfðu ekki sama áhuga á að vera jafn­mikið með mér eins og áður. Þetta var eftir stríðið og þótt Ísland hafi grætt á stríð­inu meira en margir aðrir þá flykkt­ust margir á möl­ina og fluttu sumir í bragga sem Bretar og Banda­ríkja­menn höfðu yfir­gefið. Og það var bara ekk­ert annað hægt en að verða bara sós­í­alisti. Eða það fannst mér.“

Hvað með drauma á æsku- og ung­lings­ár­unum?

„Ég ætl­aði að verða hús­móðir og svo var ég farin að hugsa um að það gæti nú verið gaman að vera kenn­ari. Það hvarfl­aði hins vegar aldrei að mér að ég myndi fara í póli­tík; ekki fyrr en ég var komin á kaf í þessa póli­tísku bar­áttu sem fór fram á vegum Rauð­sokka­hreyf­ing­ar­innar.“

Guðrún lauk gagn­fræða­prófi frá Kvenna­skól­anum í Reykja­vík árið 1964 og stund­aði vet­ur­inn eftir það ensku­nám í London. Hún vann á þessum tíma hjá Lands­banka Íslands, var flug­freyja hjá Flug­fé­lagi Íslands árin 1966 og 1967, skrif­stofu­maður hjá Sjóvá næstu þrjú árin og hún vann á árunum 1971-1987 á skrif­stofu Hjúkr­un­ar­skóla Íslands með þriggja ára hléi en þá bjó hún ásamt fjöl­skyldu sinni í Edinborg þar sem fyrri eign­maður hennar, Kristján Árnason, var í dokt­ors­námi.

„Hjúkr­una­skól­inn var ynd­is­legur vinnu­staður. Kvenna­vinnu­staður. Þar var mik­ill styrkur og stuðn­ingur kvenna á milli og fannst mér líka vera óskap­lega gaman að sinna nem­end­unum. Ég hef aldrei séð fólk taka út eins mik­inn þroska og fram­förum eins og þar. Nem­end­urnir upp­lifðu svo mikla ábyrgð og urðu full­orðnir á svip­stundu.“

Guðrún var fræðslu- og kynn­ing­ar­full­trúi hjá Kvenna­at­hvarf­inu á árunum 1991-1994.

„Það hafði mikil áhrif á mig að vinna þar og ég er þakk­lát fyrir að hafa fengið tæki­færi til að kynn­ast þeim hryll­ingi sem sum börn og konur búa við varð­andi lík­am­legt og and­legt heim­il­is­of­beldi. Við þurfum öll að taka höndum saman og vinna gegn þessu. Og við megum aldrei líta undan. Við verðum að sjá og við verðum að hlusta. Það er ekki prí­vat og per­sónu­legt þegar gengið er í skrokk á mann­eskju og fólki ber alltaf að sinna svona mál­efnum. Ég tók eftir að sumar mæður héldu að börn þeirra hefðu ekki orðið vör við neitt en blessuð börnin vita alltaf af ofbeld­inu. Það fer aldrei fram hjá þeim og þau bera þess mörg merki.“

Það er ekki prí­vat og per­sónu­legt þegar gengið er í skrokk á mann­eskju og fólki ber alltaf að sinna svona mál­efnum.

Rauðsokkahreyfingin

Guðrún er einn af stofn­endum Rauð­sokka­hreyf­ing­ar­innar sem var stofnuð árið 1970 þegar hún var rúm­lega tví­tug og búin að eign­ast tvö börn af þremur.

„Barátta okkar sner­ist um að breyta sam­fé­lag­inu. Það var svo mikið órétt­læti og svo er nátt­úr­lega ennþá. Helstu bar­áttu­mál okkar voru meðal ann­ars að íslenskar konur gætu ráðið yfir lík­ama sínum sjálfar, sem sé frjálsar fóst­ur­eyð­ingar. Þetta var mikil bar­átta en þær konur  sem vildu binda enda á með­göng­una og sem höfðu efni á því fóru til útlanda í fóst­ur­eyð­ingu. Hinar þurftu að leita til lækna hér á landi en þá var fóst­ur­eyð­ing ólög­leg og fengu þær þá ekki þann aðbúnað og aðstoð sem þær þurftu. Svo eign­uð­ust sumar börnin og gáfu þau kannski. Við börð­umst líka fyrir því að vel yrði hugsað um öll börn sam­fé­lags­ins, að börn ættu að fá að fara á dag­heim­ili, sem kall­ast leik­skóli í dag, en þá var í besta falli bara boðið upp á leik­skóla­pláss í hálfan dag. Við börð­umst einnig fyrir því að konur gætu menntað sig sem var ekki sjálf­sagt. Það voru í raun og veru ekki allir skólar á land­inu opnir konum þótt þeir ættu að vera það sam­kvæmt lögum. Svo var nátt­úr­lega gíf­ur­legur launa­mis­munur milli karla og kvenna og í raun­inni fáar konur í fullri vinnu og fáar konur sem höfðu til dæmis lokið háskóla­prófi. Svo vorum við konur ekk­ert í sögu­bók­unum. Saga okkar var óskráð. Það var í raun­inni eins og við værum ekki til. Það breytti lífi mínu að fara út í þessa bar­áttu með þessum öfl­ugu konum og reyndar nokkrum körlum. Þetta var besti skóli ævi minnar.“

Vigdís Finn­boga­dóttir var kosin for­seti Íslands, fyrst kvenna í heim­inum í almennum kosn­ingum, og Jóhanna Sig­urða­dóttir varð for­sæt­is­ráð­herra Íslands, fyrst íslenskra kvenna.

„Ég ákvað að styðja Vigdísi um leið og hún steig fram og ég var óskap­lega glöð þegar hún var kosin. Þegar úrslitin lágu fyrir um nótt­ina þá lágu dætur mínar tvær, þá þriggja og 13 ára, sitt hvorum megin við mig sof­andi og ég horfði á þær og hugs­aði með mér að nú yrði lífið auð­veld­ara fyrir þær sem og son minn sem var í sveit. Sam­fé­lagið yrði betra af því að þetta var svo stórt skref sem við vorum að stíga þarna. Það var dásam­legt að þetta skyldi nást. Ég er svo hrifin af Vigdísi. Mér finnst hún vera svo stór­kost­leg. Eins fannst mér stór­kost­legt þegar Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir varð for­sæt­is­ráð­herra næstum þrjá­tíu árum síðar. Við höfðum unnið mikið saman til dæmis í Fram­kvæmda­nefnd um launa­mál kvenna sem var öfl­ugt sam­starf kvenna úr laun­þega­hreyf­ing­unni og stjórn­mála­flokk­unum og hún var ótrú­lega dug­leg og öflug. Þegar Katrín Jak­obs­dóttur varð síðar for­sæt­is­ráð­herra þá hugs­aði ég með mér að hún væri önnur konan til að gegna þessu emb­ætti með svona stuttu milli­bili og að þetta yrði bara fram­tíðin. Þetta yrði bara sjalfsagður hlutur. Það þarf svo aðra Vigdísi; þegar Guðni hættir þá þurfum við að vera alveg við­búin og til­búin.“

Guðrún er spurð hvernig henni finn­ist staða íslenskra kvenna vera í dag.

„Það hefur nátt­úr­lega orðið bylt­ing. Gjör­bylt­ing. Ég verð nú að hæla núver­andi rík­is­stjórn en það hafa gíf­ur­lega mik­il­vægir áfangar náðst. Konur ráða til dæmis núna yfir eigin lík­ama og þegar það mál var loks­ins afgreitt á Alþingi fyrir tveimur árum þá sat ég á pöll­unum og hugs­aði: „Það eru liðin rúm 50 ár frá því að við í Rauð­sokka­hreyf­ing­unni hófum þessa bar­áttu og vorum að dreifa bæk­lingum og krefj­ast frjálsra fóst­ur­eyð­inga eins og það hét þá. Og nú sat ég þar og fulln­að­ar­sigur unn­inn.“ Og þá fór ég að gráta uppi á pöll­unum. Og það gerðu fleiri.“ Þetta var í maí 2019.

Guðrún nefnir líka fæð­ing­ar­or­lof sem eru 12 mán­uðir í dag.

„Ég á þrjú börn og ég hef fengið sam­tals þrjá mán­uði í fæð­ing­ar­or­lof. Það eru breyttir tímar en við erum alls ekki komin nógu langt.“

Guðrún nefnir líka MeToo- og Free the nipple-bylt­ing­arnar. „Það er ýmis­legt svona sem er að hrista upp í sam­fé­lag­inu og er til góðs. Svo verð ég að nefna lög um kyn­rænt sjálf­ræði; þar sem fólki er veitt frelsi til að ákveða kyn sitt sjálft. Það er ýmis­legt svona sem er dásam­legt. Og ég fagna ákaft. En við erum alls ekki komin á leið­ar­enda,“ segir Guðrún og nefnir launa­mun kynj­anna í dag sem og líf­eyr­is­rétt­indi kvenna sem eru almennt lak­ari heldur en karla þar sem konur hafa margar hverjar verið á mun lægri launum en karlar og kannski í hluta­starfi.

Ég ákvað að styðja Vigdísi um leið og hún steig fram og ég var óskap­lega glöð þegar hún var kosin.

Stjórnmálin

Guðrún var árið 1974 beðin um fara í fram­boð fyrir Alþýðu­banda­lagið sem hún gerði og tók sæti á lista í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum það ár. Hún var í Albýðu­banda­lag­inu þangað til það var lagt niður árið 1999. Guðrún var aðal- eða vara­borg­ar­full­trúi flokks­ins á árunum 1974-1994 og borg­ar­full­trúi Reykja­vík­ur­list­ans frá 1994 -1999 og for­seti borg­ar­stjórnar. Stærstu verk­efni Guðrúnar jafn­framt setu í borg­ar­stjórn voru und­ir­bún­ingur og skipu­lagn­ing á þátt­töku íslenskra kvenna á Nordisk Forum í Oslo. Á þessum tíma var hún fram­kvæmda­stjóri við und­ir­bún­ing Norræns kvenna­þings í Osló frá 1986-1988 á vegum Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar. Einnig  var hún fram­kvæmda­stjóri Vest­nor­ræns kvenna­þings 1992 sem haldið var á Egils­stöðum. Þá var hún aðstoð­ar­maður Svavars Gests­sonar á árunum 1988-1991 en hann gegndi þá stöðu mennta­mála­ráð­herra.

Borg­ar­full­trúi og for­seti borg­ar­stjórnar Reykja­víkur. Guðrún er spurð hverju henni finn­ist hún hafa náð fram og komið til leiðar.

„Ég tel mig hafa lagt mitt lóð á vog­ar­skálar kvenna­bar­átt­unnar und­an­farna ára­tugi hvar sem ég hef starfað. Íslenskar konur hafa náð gríð­ar­legum árangri. Og nið­ur­staðan er betra og rétt­lát­ara sam­fé­lag fyrir konur, karla og börn. Ég vil nefna setu mína í félags­mála­ráði í 12 ár þar sem verk­efnin voru að vinna gegn fátækt og órétt­læti og hjálpa fólki til sjálfs­hjálpar. Mín verk­efni sner­ust þar mjög um mál­efni aldr­aðra. Ég var for­maður Skipu­lags­nefndar í fimm ár og hafði áður verið lengi í þeirri nefnd. Ég var fyrsta konan sem varð for­maður stjórnar Strætó og mér fannst það vera svaka­lega merki­legt. Mér fannst vera svo mik­il­vægt að almenn­ings­sam­göngur væru góðar og að allir gætu ferð­ast og kom­ist leiðar sinnar, líka á kvöldin og á nótt­unni. Við lögðum áherslu á að bið­skýli væru góð og afslátt­ar­miðar væru fyrir þá sem ættu minna og að net almenn­ings­sam­gangna væri mjög þéttriðið. Ég tal­aði svo mikið um þetta og var svo mikið að skrifa í blöðin að ýmsir félagar mínir voru kannski svo­lítið pirraðir á þessu öllu saman og fannst þetta ganga of langt; þeir sögðu að ég héldi að sós­í­al­ism­inn væri á hjólum.“ Hún hlær. „En ég held að hann sé það. Ég hugs­aði líka um umhverf­is­málin; allt þetta svæði sem bíll­inn tekur undir sig þegar nær helm­ing­ur­inn af Reykja­vík­ur­borg er lagður undir vegi, götur og bíla­stæði. Það er verið að breyta því núna með þétt­ingu byggðar. Ég barð­ist fyrir 30 kíló­metra hámarks­hraða í sumum götum. Það gerðu líka borg­ar­full­trúar í öðrum flokkum en flokk­arnir þeirra studdu þá ekki. Þetta var hins vegar á stefnu­skrá Alþýðu­banda­lags­ins – 30 kíló­metra hámarks­hraði svo sem í kringum skóla. Ég var einmitt að rifja upp áðan að ég rétt náði að tjá mig um Kára­hnjúka­virkjun sem stjórn­mála­maður áður en ég hætti en ég var algjör­lega mót­fallin því að það væri ráð­ist með þessum hætti að land­inu okkar. Og ég var harmi lostin eins og margir aðrir. Ég er mjög upp­tekin af feg­urð­inni. Mér finnst til dæmis ýmis fjöll vera óskap­lega fal­leg og nátt­úran á Íslandi og víða um allan heim dásam­leg. Og mér finnst að við eigum svo­lítið að dýrka feg­urð­ina þannig að það sem byggt er, það mann­gerða, eigi líka að vera fal­legt og í takt við nátt­úr­una. Ég er til dæmis á móti háhýsum,“ segir Guðrún og bendir á strengi sem þar eru oft og segir að í eitt skiptið hafi hún rétt hjá háhýsi þurft að halda sér í skilti til að detta ekki í rok­inu.“ Hún hlær. Segist hafa haldið í skiltið þangað til ein­hver kom og hjálp­aði henni. „Háhýs­arok er þekkt. Við eigum að reyna að minnka rokið í borg­inni og það hefur svo sann­ar­lega minnkað af því að við erum með svo mik­inn gróður. Svo þegar er verið að skipu­leggja þá vil ég endi­lega að trappað sé niður að sjó þannig að flestir geti notið útsýn­is­ins og það finnst mér vera lýð­ræð­is­legt.“

Ég tel mig hafa lagt mitt lóð á vog­ar­skálar kvenna­bar­átt­unnar und­an­farna ára­tugi hvar sem ég hef starfað.

Yfirborðslegt samfélag

Guðrún gift­ist Svavari Gests­syni árið 1993 eftir þriggja ára sam­búð. Hjónin fluttu vestur um haf árið 1999 þegar Svavar varð sendi­herra og aðal­ræð­is­maður í Winnipeg þar sem hann sá meðal ann­ars um hátíða­höld árið 2000 í Kanada í til­efni af þús­und ára afmæli landa­fund­anna en þá var jafn­framt minnst 125 ára afmælis vest­ur­ferð­anna og þús­und ára afmælis kristni­töku á Íslandi.

„Þessi hátíð­ar­dag­skrá sam­an­stóð af  200 við­burðum sem voru mjög vel sóttir og segja má að þetta hafi kveikt nýtt líf í Íslend­inga­sam­fé­lög­unum og í Banda­ríkj­unum. Hátíða­höldin náðu allt frá Vancouver í vestri til Nýfundna­lands í austri. Einn við­burð­ur­inn af þessum 200 voru tón­leikar Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands víða um Kanada. Ég var í miklu stuði og tók þátt í þessu öllu alveg á fullu. Þetta var óskap­lega skemmti­legt.“

Svavar var svo skip­aður sendi­herra Íslands í Svíþjóð 2001–2005 og svo sendi­herra Íslands í Danmörku 2005–2010.

„Starf okkar í Stokk­hólmi og í Kaup­manna­höfn var gjör­ó­líkt því sem var í Winnipeg. Við vorum ekki í diplómata­sam­fé­lagi þegar við bjuggum í Winnipeg. Þar urðu til vin­áttu­tengsl sem enn standa. Í Stokk­hólmi og Kaup­manna­höfn hins vegar eru aðstæður allt aðrar og diplóma­sam­fé­lagið form­fast­ara. Þetta var svo­lítið yfir­borðs­legt sam­fé­lag en mér fannst mjög gaman. Það var hægt að gera svo margt,“ segir Guðrún sem í Stokk­hólmi var orðin vara­for­maður Diplomatic Women’s Club auk þess að vera meðal ann­ars í bóka­klúbbi og hélt kvenna­fundi með sænskum vin­konum.

„Eitt af því sem mér fannst vera skemmti­legt eftir að við fluttum til Kaup­manna­hafnar var að vera í hópi kvenna sem hitt­ust reglu­lega og ákváðum við að halda upp á 8. mars, alþjóð­legan bar­áttu­dag kvenna, og bjóða ein­hverjum frá Íslandi og halda sam­komu í Jónshúsi. Þessu var haldið áfram eftir að ég flutti heim til Íslands. Maður getur ekki bara setið og beðið eftir boðskorti í kok­teilpartí. Ég hugs­aði með mér í Kaup­manna­höfn að ég þyrfti að gera eitt­hvað meira og þá lét ég draum­inn ræt­ast og fór í háskóla­nám en ég lauk prófi í félags­vís­indum frá Hró­arskeldu­há­skóla árið 2009.“

Í Stokk­hólmi og Kaup­manna­höfn hins vegar eru aðstæður allt aðrar og diplóma­sam­fé­lagið form­fast­ara. Þetta var svo­lítið yfir­borðs­legt sam­fé­lag en mér fannst mjög gaman.

Það er fallegt að syrgja

Guðrún hefur sinnt ýmsum störfum og verk­efnum eftir að þau Svavar fluttu aftur til Íslands. Reykja­vík­ur­borg leit­aði til hennar árið 2015 en þá var nýbúið var að stofna öld­unga­ráð og var hún beðin um að verða for­maður þess. Hún sinnti þeirri for­mennsku í fjögur ár. „Ég hafði gaman af því og það þarf alltaf að passa sér­stak­lega upp á þann hóp aldr­aðra sem er fátækur. Við eigum að útrýma fátækt­inni þar. Þetta var eitt af áhersl­unum í mál­efnum ráðs­ins sem og mál­efni eldri inn­flytj­enda.“

Hún vann meðal ann­ars sem ráð­gjafi hjá Félagi eldri borg­ara og einnig Lands­sam­bandi eldri borg­ara þangað til nýlega en þar flutti hún meðal ann­ars fyr­ir­lestra á vegum lands­sam­bands­ins um ein­man­leika.

„Ég gerði það án þess að hafa hug­mynd um að ég myndi lenda í þeirri stöðu að verða ekkja sem er eitt því sem er lík­leg­ast til að valda ein­mana­leika,“ segir Guðrún en Svavar lést fyrr á þessu ári. „Ég fór út um borg og bý og tal­aði um ein­mana­leika og það var eins og ég hefði verið í háskóla­námi í hvernig á að koma í veg fyrir ein­mana­leika þannig að ég vissi alveg hvað ég átti að gera þegar Svavar lést. Auðvitað breyt­ist lífið óskap­lega mikið þegar maður er kom­inn á þennan aldur, 74 ára, og þegar við erum ekki lengur tvö og sér­stak­lega þar sem við vorum mjög náin og mikið saman. En nú veit ég hvað ég á að gera. Ég má ekki ein­angra mig og ég má ekki gleyma því að reyna að ein­blína á það sem veitir mér ham­ingju. Og ég má ekki láta sorg­ina yfir­taka líf mitt. Það liggur algjör­lega í augum uppi. Ég er elsta mann­eskjan í stórum hópi og það væri ómögu­legt ef ég væri alltaf sorg­mædd; grenj­andi úti í horni. Það má alveg gráta og við gerum það öll.“ Guðrún á þrjú börn, börn Svavars eru þrjú, barna­börnin eru 17 í allt og von er á sjötta langafa/langömmu­barn­inu. „Það skiptir miklu máli að eiga tengsla­net; eiga góða fjöl­skyldu og rækta vin­átt­una. Það er eitt besta rækt­un­ar­starfið. Maður verður að passa sig á því að dvelja ekki í sorg­inni; lífið hefur upp á svo margt að bjóða. Og mjög margir hafa verið í mínum sporum þannig að ég er alls ekki ein.“

Guðrún segir að það skpti máli að sorgin sé ekki bara nei­kvæð. „Hún er fal­leg. Það er fal­legt að syrgja. Það gefur auga leið að ef maður hefur elskað þá er mjög lík­legt að maður muni syrgja. Sorgin er ákveðin vídd og það að upp­lifa sorg­ina breytir manni sem mann­eskju. Maður sér hlut­ina í öðru ljósi og það skiptir mig svo miklu máli að átta mig á því hvað ég hafði verið óskap­lega lánsöm, hvað ég hafði átt gott líf og á enn og hvað ég á mikið af minn­ingum sem ylja mér. Þannig að mér líður vel þegar ég rifja upp ýmis­legt fal­legt sem ég hef upp­lifað með mínum maka. Ég á ennþá mak­ann minn þótt hann sé ekki hérna með mér. En ég á hann. Og hann er með mér. Þetta er ein­hvern veg­inn þannig að sorgin getur verið svo fal­leg þegar maður skoðar hlut­ina í þessu ljósi.“

Guðrún segir að þeir sem upp­lifa sorg­ina geri það hver með sínum hætti.

„Ég reyni eins og ég sagði að ein­blína á það sem veitir mér ham­ingju og það er búið að rann­saka það að það hjálpi að vera úti í nátt­úr­unni og hreyfa sig, það þarf góða nær­ingu og félags­skap. Ég veit af því og ég sinni þessu vel. Það sem hefur hjálpað mér mikið er að ganga. Ég geng og geng og geng og geng. Ég hef stundum pælt í hvort skrefatelj­ar­inn minn springi ekki af því að mér finnst vera svo gaman að ganga. Þegar Svavar var á gjör­gæslu á Land­spít­al­anum þá byrj­aði ég að ganga niður á Land­spít­ala og þegar hann var fluttur á gjör­gæslu á Borg­ar­spít­al­anum gamla þá hugs­aði ég með mér að ég gæti gengið þangað líka. Svo byrj­aði ég að ganga meira og meira og stundum fór ég í göngut­úra tvisvar á dag. Ég fann hvernig ég styrkt­ist og efldist við göng­una og maður hugsar öðru­vísi þegar maður er að ganga. Þess vegna hlusta ég aldrei á neitt þegar ég er að ganga heldur nota tím­ann til að velta ýmsu fyrir mér sem ég þarf að gera. Svo fór ég að draga vin­konur mínar með mér í göngur.“

Guðrún talar líka um nátt­úr­una. „Svo finnst mér vera ótrú­lega gott að vera úti í nátt­úr­unni.“

Hún býr í Hlíða­hverfi og blasa hús við næstu götur út um alla glugg­ana. „Ég er í borg­ar­um­hverfi sem ég elska en ég á sum­ar­bú­stað fyrir vestan þar sem er fal­leg­asta útsýni í heimi og við Svavar vorum þar hálft árið frá 2006. Og þangað sæki ég nær­ingu. Þar hlað­ast ein­hver batt­erí. Það er gíf­ur­lega mik­il­vægt að vera úti í nátt­úr­unni.“

Guðrún segir að eftir frá­fall Svavars hafi hún gert sér grein fyrir að hún sé aðeins sterk­ari heldur en hún hélt að hún væri. „Ég held að fólki í kringum mig finn­ist það kannski líka. Ég sæki styrk­inn í minn­ing­arnar, það jákvæða og það góða. Og ég á alveg ótrú­lega mik­inn forða. Ég er auðug hvað það varðar. Og ég á alveg ynd­is­legt fólk – börnin mín og börn Svavars og fjöl­skyldur þeirra. Þetta eru góðar mann­eskjur og frá­bært fólk. Svo á ég góða vini þannig að ég er óskap­lega lánsöm mann­eskja og mjög þakk­lát fyrir það.“

Ég má ekki ein­angra mig og ég má ekki gleyma því að reyna að ein­blína á það sem veitir mér ham­ingju. Og ég má ekki láta sorg­ina yfir­taka líf mitt.

Bæklingurinn Við andlát maka

Guðrún segir að þegar sorgin dynur yfir og mak­inn dáinn þá taki við gíf­ur­lega flókið ferli. „Það voru margir í kringum mig að hjálpa mér en það var samt margt sem eng­inn gat gert nema ég sjálf. Ég var að bug­ast yfir því hvað ég þurfti að tala við marga í bönk­unum og til dæmis Orku­veit­unni og breyta reikn­ingum og loka. Þegar maður hefur afhent dán­ar­vott­orð hjá sýslu­manni þá lok­ast banka­reikn­ingar makans; líka reikn­ingar sem fólk heldur að sé sam­eig­in­legur heim­il­is­reikn­ingur. Þannig að ef reikn­ing­ur­inn er á nafni hins látna þá lok­ast allt og ekkjan eða ekk­ill­inn getur ekki notað kortið sitt sem er búið að loka. Mjólk­ur­pott­ur­inn úti í búð er óað­gengi­legur. Þetta er eitt­hvað sem margir vita ekki en þurfa að vita.

Það er til fullt af bæk­lingum. Maður fær til dæmis bæk­ling frá Land­spít­al­anum og útfar­ar­stof­unni,“ segir Guðrún. Þessi reynsla og ann­arra varð til þess að hún tók sig til í sam­vinnu við for­mann LEB, Þórunni Svein­björns­dóttir, og útbjó bæk­ling sem er kom­inn út: „Við and­lát maka. Ætlað eldra fólki aðal­lega.“ Elsa S. Þor­kels­dóttir lög­fræð­ingur aðstoð­aði við laga­legu hlið­ina.

„Ég er mjög ánægð með að vera búin að þessu og hafa ýmsir, þar á meðal prestar, fengið bæk­ling­inn í hendur. Hann verður kannski settur á netið og það verður alltaf hægt að upp­færa ef það verða breyt­ingar. “

Í bæk­lingnum er fjallað um það helsta sem eft­ir­lif­andi makar standa frammi fyrir við and­lát svo sem dán­ar­vott­orð, und­ir­bún­ing útfarar, dán­ar­til­kynn­ingu, sam­skipti við banka, Trygg­inga­stofnun en einnig búskipti og líf­eyr­is­málin. Þá er fjallað í bæk­lingnum um erfða­mál, opin­ber skipti og einka­skipti, líf­eyr­is­sjóði – sér­eigna­sparnað, heilsu­gæslu og stuðn­ing í sorg.

„Ég vona inni­lega að þessi bæk­lingur gagn­ist sem flestum.“

Nú tekur eitthvað annað við

Guðrún seg­ist vilja búa í sam­fé­lagi þar sem mann­eskjur beri virð­ingu hver fyrir annarri, sýni sann­girni og reyni að vanda sig þegar þær tjá sig. Hún vill að fólk sýni umhverf­inu og land­inu virð­ingu og jafn­vel lotn­ingu.

„Jafn­að­ar­stefnan er sú stefna sem við verðum að vinna eftir.“

Nýr kafli er haf­inn í lífi Guðrúnar. Hún hefur ein­beitt sér að kjörum aldr­aðra en nú tekur eitt­hvað annað við. Önnur verk­efni.

„Ég hef áhuga á mörgum mál­efnum, ekki bara mál­efnum aldr­aðra..Ég finn ekki svo mik­inn mun á hvað fólk er gam­alt. Mér finnst ekki vera síður mik­il­vægt að passa upp á fátæk börn. Nú er ég alveg til í að fara að sinna ein­hverju öðru svo sem börnum og ekki síst börnum inn­flytj­enda. Fólk er að vinna í alls konar sjálf­boða­vinnu svo sem að lesa fyrir börn og læra með þeim.“

Guðrún hefur margt lagt á vog­ar­skálar sam­fé­lags­ins í ára­tugi og hún segir að sér finn­ist það vera skylda hvers og eins að leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins. „Það veitir mér mikla ánægju og ein leið til að koma í veg fyrir ein­mana­leika. Þannig að þegar ég er að takast á við verk­efni sem ég held að geti hugs­an­lega orðið til góðs þá líður mér vel. Þá er ég ham­ingju­söm.“

„Jafn­að­ar­stefnan er sú stefna sem við verðum að vinna eftir.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi