Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hönnu Björgu misboðið og segir hingað og ekki lengra: „Það þarf að stinga á þetta kýli“

Hönnu Björgu misboðið og segir hingað og ekki lengra: „Það þarf að stinga á þetta kýli“

„Ég get sagt að ég sé aktívur femínisti í þeim skiln­ingi að ég læt til mín taka ef svo ber undir. Ég hef skoð­anir á jafn­rétt­is­málum og mér er mis­boðið eins og svo mörgum öðrum um það hvernig kyn­ferð­is­brota­mál eru með­höndluð í sam­fé­lag­inu af almenn­ingi, dóms­kerf­inu og hvar­vetna. Til að útskýra það aðeins betur þá er ég að meina í fyrsta lagi hversu algeng kyn­ferð­is­brot eru, hversu kynjuð þau eru – konur eru meiri­hluti þolenda og karlar eru meiri­hluti ger­enda – og svo er þetta partur af ójafn­rétt­inu sem ríkir í sam­fé­lag­inu þar sem karlar ráða á kostnað kvenna í stóra sam­heng­inu,“ segir Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir, fram­halds­skóla­kenn­ari og for­kona jafn­réttis­nefndar Kenn­ara­sam­bands Íslands.

Hún vakti nýlega athygli þar sem hún skrif­aði grein með fyr­ir­sögn­inni „Um KSÍ og kven­fyr­ir­litn­ingu“. Þar nefnir hún meðal ann­ars spill­ingu og ákveðið sið­leysi sem hún segir hafa fylgt íþrótt­inni að minnsta kosti und­an­farna ára­tugi og nefnir FIFA (Alþjóða knatt­spyrnu­sam­bandið) sem kallað var „skipu­lögð glæpa­sam­tök“ vegna spill­ingar. Hún bendir á að vændi (þar með talið man­sal) hafi verið hluti af skipu­lagi stór­móta. Aðalefni greinar Hönnu Bjargar er ung kona sem steig nýlega fram og sagði frá hópnauðgun sem átti sér stað árið 2010 og fram kemur í frá­sögn­inni að um lands­þekkta ger­endur hafi verið að ræða. Í grein­inni kemur fram að þol­and­anum hafi verið ráð­lagt að kæra ekki. Hanna Björg nefnir í grein sinni að aðrar frá­sagnir séu á kreiki um til dæmis lands­liðs­menn sem sagðir eru hafa beitt konur ofbeldi og bendir hún á að þögg­unin sé alger og að KSÍ beri ábyrgð á henni.

Ég hef skoð­anir á jafn­rétt­is­málum og mér er mis­boðið eins og svo mörgum öðrum um það hvernig kyn­ferð­is­brota­mál eru með­höndluð í sam­fé­lag­inu af almenn­ingi, dóms­kerf­inu og hvar­vetna.

Hanna Björg segir að fjöldi fólks hafi haft sam­band við sig í kjöl­far grein­ar­innar sem hún skrif­aði. „Það rignir yfir mig skila­boðum og það er engin fjald­sam­leg rödd búin að hafa sam­band við mig. Mér finnst það vera áhuga­vert og það er stað­fest­ing á því að ég sé á réttri veg­ferð.“ KSÍ hefur ekki haft sam­band við Hönnu Björgu vegna grein­ar­innar. Hún vill ekki tjá sig um það að svo stöddu.

Hanna Björg seg­ist í gegnum árin hafa lesið og heyrt svo marga þolendur kyn­ferðs­brota segja frá brotum og við­brögðum við þeim og að frá­sögn ungu kon­unnar sem lýsti hópnauðg­un­inni árið 2010 hafi verið sterk og að hún hafi ákveðið að taka þetta skref­inu lengra og gera eitt­hvað. Hún byrj­aði að tjá sig um þetta á Facebook-síðu sinni og síðan var það greinin því hún vildi að skila­boð sín næðu til fleiri. „Af hverju ekki ég eins og ein­hver annar? Ég hugs­aði „hingað og ekki lengra“. Það þarf ein­hver að gera eitt­hvað. Það þarf að stinga á þetta kýli.“

Hanna Björg segir að það skipti öllu máli að stungið hafi verið á kýlið. „Erum við ekki allar orðnar þreyttar á því að vera hræddar og vera stöðugt mis­boðið í öllum mögu­legum aðstæðum? Það er ekki hlustað á okkur, við fáum lægri laun, við höfum færri tæki­færi og við þurfum alltaf að gera allt helm­ingi betur en karlar til að fá sömu við­ur­kenn­ingu. Þetta mis­rétti er svo víð­tækt. Og kyn­ferð­is­of­beldi er kjarni sví­virð­unnar í kven­fyr­ir­litn­ing­unni. Það er ljótasta birt­ing­ar­myndin af mis­rétt­inu og við­brögð sam­fé­lags­ins taka þetta skref­inu lengra og gera enn verra fyrir þolendur. Það er brotið á mann­eskju og hún situr uppi með skömm­ina. Það stenst enga skoðun. Þolendur eru hvattir til að kæra ekki til að varpa ekki skugga á mann­orð ger­and­ans. Þetta er svo brjál­æð­is­lega klikkað að það tekur engu tali.“

Hanna Björg er mikil bar­áttu­kona.

Hanna Björg seg­ist von­ast til þess að skrif sín verði til þess að vit­und­ar­vakn­ing verði um kyn­ferð­is­of­beldi og við­brögð við þeim bæði í  íþrótta­líf­inu og almennt í sam­fé­lag­inu. „Ég vona líka þekktir íþrótta­menn sem eru ger­endur í svona málum verði teknir úr sviðs­ljós­inu vegna þess að eins og við vitum þá er það mjög trig­ger­andi fyrir þolendur að þurfa enda­laust að geta ekki opnað fyrir fjöl­miðla án þess að sjá ger­end­urs sína ítrekað og  jafn­vel varp­aða dýrð­ar­ljóma. Það hefur mjög vond áhrif á þolendur.“

Það er brotið á mann­eskju og hún situr uppi með skömm­ina. Það stenst enga skoðun.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi