Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, neitar alfarið í færslu sem hún birti á samfélagsmiðlum að hún hafi viljandi valið slæma mynd af Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra með frétt sem hún skrifaði.
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi Morgunblaðið fyrir slíkt í gær.
„Dagur B. Eggertsson heldur því fram að ég hafi af meinfýsni valið það sem hann kallar „svipljóta“ mynd af Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í blað dagsins,“ skrifaði Andrea í færslu sinni.
„Fyrir það fyrsta er hin bráðhuggulega Kristrún að mínu mati mjög falleg á myndinni, þótt hún sé vissulega hvöss á svip. Það duldist engum að sú var stemningin þegar hún svaraði fyrirspurnum í þinginu í gær og því var myndavalið viðeigandi eftir því,“ og segir Andrea að hún myndi aldrei nota myndaval til þess að niðurlægja fólk útlitslega og allra síst konur. Hún þekki slíkt á eigin skinni þegar birtar hafi verið myndir af henni í fjölmiðlum.
„Ég hef raunar lagt mig fram við að velja sæmandi myndir af fólki, og sneiða fram hjá undirhökum og óheppilegum sjónarhornum,“ heldur Andrea áfram.
„Meira að segja tók ég gagngert með mér ljósmyndara nýlega á fund ríkisstjórnarinnar til að mynda einn ráðherrann sem við áttum ekki nógu góðar myndir af, og var hún að vonum himinlifandi með það. En auðvitað passar ekki að hafa uppstilltar myndir af fólki, teinréttu og skælbrosandi með öllum fréttum. Stundum getur fagurfræðilegt mat þess sem velur mynd verið annað en fyrirsætunnar. Flestir sem stíga inn í sviðsljósið þurfa því að þola það endrum og eins að af þeim birtist myndir sem þeim hugnast síður. Það fullyrði ég að sé yfirleitt ekki gert af meinfýsni þótt sjálfsagt séu á því undantekningar eins og öðru. Dagur hefði þó ekki þurft að hlaupa til handa og fóta og móðgast fyrir hönd Kristrúnar í þessu tilfelli. Ég spurði hana sjálfa hvort hún væri ósátt við myndavalið og hún skellti upp úr og neitaði því. Bætti svo við að henni væri almennt sama þótt það birtust ljótar myndir af henni, enda vita allir betur.Það er hárrétt mat hjá Kristrúnu, sem er full sjálfstrausts og hreint ekki lítil í sér,“ skrifaði blaðamaðurinn.
„Enda er hún aðalleikari,“ skrifar hún að lokum.


Komment