1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

6
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

Til baka

Brynjar kastar fram loforði fyrir kosningabaráttuna

„Ég gef sjaldan loforð“

Brynjar Níelsson 2
Brynjar NíelssonVar þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Mynd: Alþingi

Brynjar Níelsson, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum dómari, skipar þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokknum í komandi borgarstjórnarkosningum en fáir eru opnari um skoðanir sínar en þingmaðurinn fyrrverandi.

Í færslu sem Brynjar birti fyrr í dag greinir hann Silfrið sem sýnt var á RÚV í gær.

„Oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Samfylkingarinnar voru í Silfrinu í gær. Ég er ekki hlutlaus í afstöðu minni til þessara framboða en sjón er sögu ríkari fyrir kjósendur og ég mæli með tímaflakkinu fyrir þá sem ekki sáu þáttinn í línulegri dagskrá,“ skrifar þingmaðurinn fyrrverandi en honum gekk illa að skilja Pétur Marteinsson, nýjan oddvita Samfylkingarinnar, í þættinum.

„Nýr maður er í brúnni hjá Samfylkingunni, sem var lengi vel í Sjálfstæðisflokknum eins og svo margir aðrir oddvitar framboða í borginni. Ég geri engar athugasemdir við það og var sjálfur lengi vel heitur fyrir Flokki fólksins. Það er aldrei of mikið af sjálfstæðismönnum í framboði. Oddvitarnir voru allir mjög geðþekkir en mér gekk illa að skilja oddvita Samfylkingarinnar og málflutningurinn nokkuð mótsagnarkenndur. Helst var á honum að skilja að borgin væri sú besta í heiminum ef ekki í veröldinnni þrátt fyrir öll skipulagsslysin, enginn kæmist ferða sinna með góðu móti, fáir vilji vinna á leikskólum, nemendur í grunnskóla væri meira og minna ólæsir, skólahúsnæði myglað og lögbundin þjónusta heldur lakari en í nágrannasveitarfélögum þrátt fyrir hærri álögur á íbúa. Þá væri rekstur borgarinnar í það góðum málum að mati odddvitans að hagræðing væri eiginlega ástæðulaus,“ heldur Brynjar áfram.

„Ljóst er að íbúar borgarinnar geta ekki vænst breytinga verði Samfylkingin áfram við stjórn borgarinnar. Ég gef sjaldan loforð, en tel mig þó geta lofað borgarbúum því að það verða engar breytingar í borginni fái Sjálfstæðisflokkurinn ekki afgerandi góða kosningu í vor. Það er margreynt að kjósa aðra flokka. Nú er bara spurningin sú hvort borgarbúar vilji breytingar eða óbreytta stefnu,“ skrifar Brynjar að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

„Staða hans er nú orðin afar alvarleg.“
Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Vísar á bug sölu á Landsvirkjun
Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Loka auglýsingu