1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

3
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

4
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

5
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

6
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

7
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

8
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

9
Innlent

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

10
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

Til baka

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

„Er þessi grátkór ekki með réttu ráði?“

Össur
Össur SkarphéðinssonÖssur hjólar í Hildi og stjórnarandstöðuna
Mynd: Facebook

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar, gagnrýnir Hildi Sverrisdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, harðlega í Facebook-færslu þar sem hann líkir henni við „prinsessuna á bauninni“. Hann segir stjórnarandstöðuna líklega þá slöppustu frá aldamótum og sakar hana um að einblína á smávægileg ágreiningsmál í stað þess að veita ríkisstjórninni raunverulegt aðhald.

Tilefni skrifanna eru viðbrögð Hildar við ummælum Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra um fjármálastjórn fyrri ríkisstjórna Sjálfstæðisflokksins.

„Hildur Sverrisdóttir rauk upp á nef sér þegar Daði fjármálaráðherra talaði loksins tæpitungulaust um ábyrgðarlausa fjármálastjórn Sjálfstæðisflokksins síðustu sjö árin áður en ríkisstjórn Kristrúnar tók við,“ skrifar Össur.

Hann segir Sjálfstæðisflokkinn hafa skilið eftir sig meiri skuldir en nokkur annar flokkur.

„Enginn flokkur hefur þó skilið eftir sig annan eins skuldaslóða og Sjálfstæðisflokkurinn. Á sjö árum hlóð hann upp samtals 800 milljarða tapi á ríkið. Þennan flór er Daði nú að moka,“ skrifar hann.

Össur vísar einnig til ummæla fjármálaráðherrans á fundi Samtaka ferðaþjónustunnar þar sem hann hafi sagt að „þetta lið“ virtist halda að ókeypis væri að hlaða fjallháum skuldum á ríkið.

Viðbrögð Hildar við orðalaginu urðu Össuri tilefni til háðs. Hann vísar til ævintýrisins um prinsessuna á bauninni og skrifar:

„Hildur hefur síðan gengið eiskrandi um miðlana einsog prinsessan á bauninni sem var svo viðkvæm að hún fékk marblett á sinn konunglega afturenda þegar lætt var lítilli baun undir dúnsængurnar sjö sem hún svaf á.“

Hann segir Hildi hafa tekið sérstaklega nærri sér að vera kölluð „þetta lið“ og spyr hvers vegna stjórnmálamenn bregðist með þessum hætti við beinskeyttum ummælum.

„Til hvers er „þetta lið“ eiginlega í pólitík? Til að kveina í fjölmiðlum þegar talað er umbúðalaust á hreinni og tærri íslensku?“ spyr Össur og bætir við: „Svona fólk er einfaldlega utan erindis; hefur ekkert að segja við þjóðina.“

Össur lætur ekki þar við sitja heldur gagnrýnir einnig Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, fyrir að blanda sér í innanflokksmál Flokks fólksins.

„Á sama tíma eyðir formaður Hildar, Guðrún Hafsteinsdóttir, púðri sínu í ræðustól Alþingis til að skipta sér af innanflokksmálum Flokks fólksins og rambar beint í „skítapott“ Ingu Sæland. Er þessi grátkór ekki með réttu ráði?“ skrifar hann.

Að mati Össurar hefur stjórnarandstaðan ekki náð að nýta sér efnahagslegan mótbyr ríkisstjórnarinnar. Hann bendir á að Samfylkingin hafi styrkt stöðu sína í skoðanakönnunum á sama tíma og Sjálfstæðisflokkurinn hafi dalað.

„Þetta er vitaskuld ástæðan fyrir því að þó ríkisstjórnin sé í miðjum efnahagsskafli þá rýkur Samfylkingin upp í Gallup en Sjálfstæðisflokkurinn dalar. Ríkisstjórnin heldur m.a.s. jöfnu í könnunum þrátt fyrir að vera í efnahagslegum mótbyr,“ skrifar hann.

Hann lýkur færslunni með enn harðari gagnrýni á stjórnarandstöðuna og segir hana líklega þá slöppustu frá aldamótum.

„Kristrún og kó munu sigla örugg áfram meðan hún er upptekin af því að vera í fýlu yfir sárasaklausum orðum ráðherra eða átökum innan annarra flokka sem þeim koma ekkert við,“ skrifar Össur.

Að lokum beinir hann aftur spjótum sínum að Hildi og segir hana ætti að einbeita sér að stöðu eigin flokks.

„Prinsessan á bauninni ætti fremur að huga að stöðu eigin flokks en snapa fæting um mál sem engu skipta,“ segir Össur að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Öskraði á gangandi vegfarendur
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ“
Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda
Pólitík

Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“
Pólitík

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

Loka auglýsingu