1
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

2
Innlent

Konan er fundin

3
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

4
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

5
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

6
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

7
Innlent

Bylting við flugstöðina

8
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

9
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

10
Innlent

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti

Til baka

Sálfræðingur skorar á ráðherra

„Lesendur geta sjálfir dæmt um hvort hægt sé að lifa á þeirri upphæð hér á landi“

Ragnar Þór Ingólfsson
Ragnar Þór IngólfssonEr félags- og húsnæðismálaráðherra.
Mynd: Víkingur

Karitas Ólafsdóttir sálfræðingur gagnrýnir íslenska fæðingarorlofskerfið harðlega og segir það í raun vinna gegn barneignum. Í aðsendri grein á Vísi segir hún foreldra sæta verulegum skerðingum á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði ef stutt líður á milli barna.

Karitas segir kerfið í reynd hvetja foreldra til að hafa að minnsta kosti tvö og hálft ár á milli barna. Það skjóti skökku við á tímum þegar lækkandi fæðingartíðni sé orðið stórt viðfangsefni stjórnvalda víða um heim.

„Stjórnvöld virðast þannig vilja stýra því hve langt líður milli barna. Slík inngrip eru algeng í löndunum í kringum okkur, en þar eru þau yfirleitt í hina áttina, að hvetja til barneigna,“ skrifar Karitas.

Hún tekur eigin stöðu sem dæmi. Karitas eignaðist barn í júní 2025 og á von á öðru í febrúar á næsta ári. Um tuttugu mánuðir verða á milli barnanna. Þar sem hún dreifði fyrra fæðingarorlofi sínu yfir tólf mánuði nær hún aðeins um átta mánuðum á vinnumarkaði áður en seinna barnið fæðist.

Að sögn Karitas leiðir útreikningsaðferð Fæðingarorlofssjóðs til þess að greiðslur hennar verði aðeins 280 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt, eða sem nemur lágmarksgreiðslum sjóðsins.

„Lesendur geta sjálfir dæmt um hvort hægt sé að lifa á þeirri upphæð hér á landi, en hún er lægri en bæði afborganir flestra af húsnæðislánum og almennur framfærslukostnaður heimilis,“ segir hún.

Karitas telur kerfið ósveigjanlegt og segir auðvelt fyrir foreldra að falla milli skips og bryggju. Þá kalli staðan á gagngerar umbætur, enda geti fjárhagsáhyggjur fylgt því að foreldrar vilji verja meiri tíma með ungum börnum sínum.

„Ég skora á Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, að ráðast í heildarendurskoðun þessara mála. Þar eru ekki aðeins undir hagsmunir okkar foreldra og barna, heldur þjóðarinnar allrar.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Kjarnorkukapphlaupið heldur áfram
Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar
Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Lögreglan stöðvaði sama fíkniefnasalann þrisvar á tveimur vikum
Innlent

Lögreglan stöðvaði sama fíkniefnasalann þrisvar á tveimur vikum

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Íslendingur búsettur í Danmörku ákærður eftir alvarlegt umferðarslys
Innlent

Íslendingur búsettur í Danmörku ákærður eftir alvarlegt umferðarslys

Fuglavernd vill stöðva skotveiðar á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Innlent

Fuglavernd vill stöðva skotveiðar á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar
Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar

Fuglavernd vill stöðva skotveiðar á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Innlent

Fuglavernd vill stöðva skotveiðar á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Sálfræðingur skorar á ráðherra
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Lögreglan stöðvaði sama fíkniefnasalann þrisvar á tveimur vikum
Innlent

Lögreglan stöðvaði sama fíkniefnasalann þrisvar á tveimur vikum

Íslendingur búsettur í Danmörku ákærður eftir alvarlegt umferðarslys
Innlent

Íslendingur búsettur í Danmörku ákærður eftir alvarlegt umferðarslys

Loka auglýsingu