1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

3
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

4
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

5
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

6
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

7
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

8
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

9
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

10
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

Til baka

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Ben Dancer bíður eftir staðfestingu frá Heimsmetabók Guinnes.

Ben Dancer
Ben DancerEf Ben dansaði til að gleyma, væri hann orðinn alveg minnislaus
Mynd: Instagram

Nígeríski dansarinn Benjamin Daniel, betur þekktur sem Ben Dancer, lauk á þriðjudag sjö daga tilraun sinni til að setja heimsmet í lengsta dansmaraþoni einstaklings. Hann dansaði samfellt í 176 klukkustundir, 52 mínútur og 59 sekúndur í Lagos.

Daniel hóf tilraunina 22. september með það að markmiði að slá núverandi met, sem indverski dansarinn Srushti Sudhir Jagtap setti árið 2023. Hún var þá 16 ára og dansaði samfellt í 127 klukkustundir.

Stuðningsmenn dansarans söfnuðust saman í Freedom Park í Lagos á meðan á tilrauninni stóð. Ungir Nígeríumenn hvöttu Daniel áfram, tóku upp frammistöðu hans og dönsuðu með honum fyrir aftan öryggishlið.

Á einum tímapunkti samhæfði lítill hópur áhorfenda dansspor sín við hreyfingar hans á meðan vinsæl afróbítlög, með þekktum danssporum, ómuðu um svæðið.

„Dansinn er honum andlegur,“ sagði aðstoðarkona hans, Mercy Idisi, við AFP-fréttastofuna á meðan hann hélt áfram að dansa.

Að sögn aðstandenda hans sótti Daniel innblástur í fjölbreyttar tónlistar- og menningarhefðir Nígeríu stóran hluta dansmaraþonsins.

Afróbít var áberandi í tónlistinni, en einnig mátti heyra tónlistarstefnur á borð við fuji, djass og zouk. Stundum skipti Daniel um dansklæðnað og klæddist hefðbundnum nígerískum fatnaði.

Undirbúningur Daniels fyrir mettilraunina hófst árið 2022. Hann stundaði þá líkamsrækt til að byggja upp vöðva, æfði sig í að þola sársauka og auka úthald sitt og tók einnig þátt í æfingum þar sem hann svaf lítið til að búa sig undir álagið.

Þremur vikum áður en hann hóf tilraunina meiddist Daniel á hnjánum. Það vakti áhyggjur skipuleggjenda um að meiðslin gætu haft áhrif á mettilraunina.

Hann glímdi þó ekki við nein alvarleg heilsufarsvandamál á þeim sjö dögum sem dansáskorunin stóð yfir, að sögn Chika Anagoba, læknis sem fylgdist með honum.

„Að breyta heiminum með dansi“

Við jaðar svæðisins þar sem lítill hópur fólks dansaði sátu íbúar úr heimabyggð Daniels í Bauchi-héraði í norðurhluta Nígeríu á plaststólum og gæddu sér á jollof-hrísgrjónum og hrásalati, sem eru meðal algengra rétta í landinu.

„Við höfum verið hér frá fyrsta degi,“ sagði Ibrahim við AFP. „Við erum svo stolt af honum.“

„Þetta sýnir mér að ég get áorkað stórum hlutum þótt ég komi frá litlum stað og að ég geti breytt heiminum með dansi,“ sagði Daniel við AFP eftir að hafa lokið mettilraun sinni.

Daniel hafði þrisvar sinnum sótt um hjá Heimsmetabók Guinness áður en hann fékk leyfi til að reyna við metið í febrúar. En fyrir honum snerist frammistaðan um miklu meira en að setja heimsmet.

„Markmiðið með Heimsmetabók Guinness var aldrei metið sjálft,“ sagði hann. „Ég vildi vekja athygli um allan heim svo fólk beindi sjónum sínum í auknum mæli að hefðbundnum dönsum Afríku.“

Heimsmetabók Guinness hefur ekki enn staðfest hvort frammistaða Benjamins teljist gilt heimsmet. Staðfestingarferli samtakanna getur tekið tíma eftir mettilraun og endanleg niðurstaða ræðst af því hvort öllum reglum þeirra hafi verið fylgt.

Hvað sem því líður vonast Daniel til að gegna stærra hlutverki í framtíðinni við að kynna afríska menningu og danshefðir fyrir umheiminum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ“
Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Málið á rætur að rekja til ársins 2002
101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“
Heimur

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå

Loka auglýsingu