Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

„Atburðir gærkvöldsins ásækja mig“

Christa Pike
Christa Pike Christa lifði aftök­una af Mynd: Fangelsismálastofnun Tennessee

Lögmenn dauða­dæmds fanga, Christu Pike, greina frá nýjum upplýsingum um aftökuna sem fór hræðilega úrskeiðis.

„Atburðir gærkvöldsins ásækja mig,“ sagði Randy Spivey, lögmaður Pike, í gær, samkvæmt NBC News.

Pike átti að taka af lífi með banvænni lyfja­sprautu á miðvikudag en áður hafði aftöku hennar verið frestað á síðustu stundu. Á miðvikudaginn var henni gefnir tveir banvænir skammtar af pentobarbital, en hún lifði aftökuna af.

Samkvæmt Spivey var samtals sjö mismun­andi nálum stungið í vinstri handlegg Pike. Ein nálanna virtist bogin þegar hún var dregin út, að sögn lögmannsins.

Hægri hönd Pike varð fjólublá eftir lyfja­gjöfina. Einnig mynduðust blöðrur og brunasár í kringum stungu­staðina. Sjónar­vottur sem fylgdist með aftökunni segir að Pike hafi kvartað undan því að henni fyndist höndin vera að „rifna í sundur“.

Sérfræðingar sem NBC News ræddi við segja að áverkarnir sem Pike lýsti geti bent til þess að lyfin hafi farið út í vefina í kring í stað þess að berast inn í blóð­rásina, hugsanlega vegna mistaka við lyfja­gjöfina.

Lögmenn Pike segja að hún hafi óttast að vera tekinn af lífi með banvænni lyfja­sprautu og óskað eftir annarri aftöku­aðferð.

„Ég veit að þetta var hennar stærsti ótti. Hún var ekki hrædd við dauðann, heldur óttaðist hún lang­dreginn og sársauka­fullan dauðdaga. Og það var nákvæmlega það sem gerðist, að því undan­skildu að hún dó ekki,“ sagði Stephen Ferrell, lögmaður Pike.

Lögmennirnir gagnrýndu einnig að ekki hafi verið gripið tafar­laust til endur­lífgunar­tilrauna eftir að aftakan mistókst. Tafirnar höfðu áður verið taldar geta valdið heila­skaða.

„Atburðir gærdagsins voru ekki aðeins árangurs­lausir heldur einnig grimmilegir og kvala­fullir. Þeir voru jafnframt fyrir­sjáanlegir,“ sagði Spivey, samkvæmt frétt The Guardian.

Læknirinn sem kom að aftöku Pike hefur áður tekið þátt í aftöku sem fór úrskeiðis. Í maí 2026 mistókst aftaka annars dauða­dæmds fanga þegar lækni sem kallaður var á vettvang tókst ekki að koma æðalegg fyrir. Fanginn var ítrekað stunginn með nálum í handleggi, fætur og öxl í eina klukku­stund og fimmtán mínútur áður en hætt var við aftökuna.

Lögmenn Pike segja að þeir hafi ekki nákvæmar upplýsingar um heilsufar hennar. Þeir segja hana vera í lífshættu á sjúkra­húsi.

Pike var dæmd til dauða fyrir hrottalegt morð árið 1995.

Yfirvöld í Tennessee hafa frestað aftökum þar til óháð rannsókn á máli Pike er lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs