Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Dómurinn taldi brotið alvarlegt, meðal annars vegna hins umtals­verða magns

Fólk á Laugavegi
Fólk á Lauga­vegi Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Tveir karlmenn hafa verið dæmdir í fimm mánaða fangelsi hvor fyrir stórfellt fíkniefna­lagabrot eftir að hafa flutt samtals 11.160 milli­lítra af kannabis­vökva til Íslands. Efnin voru falin í farangurs­töskum mannanna og ætluð til sölu­dreifingar hér á landi.

Dómur féll í Héraðs­dómi Reykjaness 30. september. Mennirnir, Christopher Warner Vezzetti og Hakeem Khaled Mashal, komu til Kefla­víkur­flugvallar með flugi frá Seattle í Banda­ríkjunum 19. ágúst síðastliðinn.

Samkvæmt ákæru var kannabis­vökvinn 81 prósents að styrk­leika. Í tösku hvors manns fundust 5.580 milli­lítrar. Lögregla og tollgæsla fundu og lögðu hald á efnin þegar töskurnar komu til Kefla­víkur­flugvallar.

Í kjölfarið voru fíkni­efnin tekin úr töskunum en þær síðan afhentar undir eftirliti lögreglu að Laugavegi í Reykjavík. Þar voru mennirnir hand­teknir þegar þeir tóku við töskunum.

Báðir játuðu brot sín skýlaust fyrir dómi og samþykktu upptöku fíkni­efnanna. Fram kemur í dómnum að hvorugur þeirra hafi áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi svo kunnugt sé.

Dómurinn taldi jafnframt að ekki væri sýnt fram á að mennirnir hefðu átt fíkni­efnin eða tekið þátt í skipulagningu kaupanna og innflutningsins. Þeir hefðu samþykkt að flytja efnin til landsins gegn greiðslu og gegnt hlutverki burðar­dýra.

Dómurinn taldi þó brotið alvarlegt, meðal annars vegna hins umtals­verða magns og þess að efnin voru ætluð til sölu. Hvor þeirra var dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum