
Karlmaður frá Selfossi hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir brot gegn áfengislögum eftir að lögregla fann 148 lítra af heimaframleiddu áfengi á dvalarstað hans. Maðurinn var dæmdur til að greiða 838.648 króna sekt auk 331.980 króna í sakarkostnað.
Málið á rætur að rekja til 19. ágúst 2024 þegar lögregla framkvæmdi leit í íbúðarhúsnæði og skúr á lóð þar sem maðurinn dvaldi á þeim tíma. Við leitina fundust samtals 148 lítrar af áfengi í tólf plast- og glerílátum.
Samkvæmt ákæru hafði maðurinn um nokkurt skeið staðið að framleiðslu áfengisins án þess að hafa til þess tilskilið leyfi. Styrkleiki áfengisins var mismunandi, eða frá 14 prósentum upp í 39 prósent.
Maðurinn mætti ekki við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll þrátt fyrir að honum hefði verið birt ákæra og fyrirkall. Málið var því dæmt án þess að hann sækti þing.
Manninum var gert að greiða 838.648 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins. Greiði hann sektina ekki innan þess tíma skal hann sæta 36 daga fangelsi.
Jafnframt voru allir 148 lítrarnir af áfenginu gerðir upptækir ásamt þeim ílátum sem notuð voru við framleiðslu og varðveislu þess. Þá þarf maðurinn að greiða 331.980 krónur í sakarkostnað.