1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

3
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

4
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

5
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

6
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

7
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

8
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

9
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

10
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Til baka

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

„Staða hans er nú orðin afar alvarleg.“

Rui Pinto
Rui PintoPinto varð fyrir árás í apríl síðastliðnum
Mynd: THOMAS SAMSON / AFP

Maðurinn sem uppljóstraði um hin fjölmörgu brot Manchester City, Rui Pinto hefur nú verið sviptur vernd ríkisins.

Pinto stofnaði Football Leaks og hefur með uppljóstrunum sínum hjálpað til við að afhjúpa myrku hliðarnar á fótboltanum utan vallar.

Í janúar 2017 komst hann yfir einhver dýpstu og myrkustu leyndarmál Manchester City með því að nýta sér tölvupóst sem notaður var í vefveiðaárás (e. phising). Síðustu daga hefur hann fagnað niðurstöðu málsins gegn félaginu á samfélagsmiðlum, eftir að úrskurður um sekt City var gerður opinber.

„Áralangt svindl, lygar og misnotkun munu loksins hafa afleiðingar,“ skrifaði hann í einni af fjölmörgum færslum sínum á samfélagsmiðlinum X.

Pinto telur sig eflaust hafa fengið uppreisn æru með niðurstöðu óháðrar nefndar ensku úrvalsdeildarinnar. Manchester City hefur þó ítrekað haldið fram sakleysi sínu og staðfest að félagið hyggist áfrýja niðurstöðunni.

Portúgalski uppljóstrarinn hefur hins vegar fengið slæmar fréttir. Á miðvikudag staðfestu portúgölsk yfirvöld að hann nyti ekki lengur verndar sem vitni. Pinto, sem er 37 ára, hefur verið undir vernd ríkisins frá árinu 2020 og meðal annars búið í öruggu húsnæði á vegum yfirvalda. Verndin verður afturkölluð 10. október.

Þrátt fyrir að nýlegir atburðir hafi beint kastljósinu að honum á ný hafa yfirvöld nú metið áhættuna sem steðjar að honum litla. Honum hefur verið ráðlagt að halda sig frá samfélagsmiðlum, hafa ekki samband við fjölskyldu sína og forðast fjölmenna staði.

Í yfirlýsingu á föstudag kröfðust lögmenn hans þess að ákvörðunin yrði afturkölluð. Þeir kölluðu hana „skammarlegar aðgerðir“ og líktu henni jafnvel við „hryðjuverk ríkisins“.

„Staða hans er nú orðin afar alvarleg. Hótanirnar gegn honum eru ekki aðeins fræðilegar; ráðist var á hann í Lissabon í apríl síðastliðnum,“ segir í yfirlýsingunni.

„Uppljóstranir hans vörðuðu áhrifamikið fólk með gríðarleg fjárráð og mörg þeirra mála sem þær leiddu af sér eru enn til meðferðar. Það sést meðal annars á niðurstöðu sem óháð nefnd ensku úrvalsdeildarinnar kvað upp fyrir örfáum dögum vegna Manchester City.

Með því að vera skyndilega sviptur vernduðu húsnæði sínu og skilinn eftir í afar ótryggri stöðu er Rui Pinto nú berskjaldaðri en nokkru sinni frá árinu 2020.“

Lögmenn Pinto segja að honum hafi borist líflátshótanir eftir að hann lagði mikið í sölurnar til að afhjúpa misferli á bak við tjöldin í fótboltaelítunni. Hann kallar sig uppljóstrara en hefur jafnframt verið dæmdur fyrir tölvuárásir.

Í september 2023 var Pinto, sem áður stundaði sagnfræðinám í Porto, dæmdur í fjögurra ára skilorðsbundið fangelsi. Hann var fundinn sekur um tilraun til fjárkúgunar, ólöglegan aðgang að gögnum og brot á friðhelgi bréfaskipta. Málið tengdist leka gagna frá Doyen Sports, fjárfestingarsjóði og umboðsskrifstofu.

Pinto hafði áður verið þekktur undir dulnefninu „John“, áður en raunverulegt nafn hans kom í ljós. Hann hafði brotist inn í tölvukerfi Doyen Sports og lekið fjölda skjala sem vöktu heimsathygli.

Hann var framseldur frá Ungverjalandi til Portúgals í mars 2019 til að svara til saka. Pinto hafði þá búið í höfuðborginni Búdapest. Framsalið átti sér stað aðeins nokkrum mánuðum eftir að fyrstu ásakanirnar á hendur Manchester City komu fram.

Í nóvember 2018 birti þýska tímaritið Der Spiegel fréttir byggðar á gögnum sem Pinto hafði stolið. Þar var því haldið fram að Manchester City hefði brotið fjárhagsreglur til að ná forskoti á keppinauta sína. Þessar afhjúpanir leiddu fyrst til ákæru UEFA á hendur félaginu og síðar til málsins hjá ensku úrvalsdeildinni, en niðurstaða þess hefur nú loks verið kynnt.

UEFA bannaði Manchester City upphaflega þátttöku í evrópskum keppnum í tvö ár. Banninu var síðar hnekkt eftir áfrýjun til Alþjóðaíþróttadómstólsins (CAS).

Í máli ensku úrvalsdeildarinnar voru meðal annars notaðir tölvupóstar starfsmanna Manchester City sem Pinto hafði komist yfir með tölvuárásum og félagið hafði ekki afhent deildinni.

Uppljóstranir Pinto áttu þátt í því að enska úrvalsdeildin gat gengið mun lengra í ásökunum sínum en UEFA hafði gert. Alls hafa 114 ásakanir verið staðfestar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ“
Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Málið á rætur að rekja til ársins 2002
101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“
Heimur

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå

Loka auglýsingu