Maó Alheimsdóttir, skáld og rithöfundur, tekur við keflinu í ritsmiðjunni Samljóða á Borgarbókasafninu Grófinni í október. Fyrsta smiðjan undir hennar stjórn fer fram miðvikudaginn 7. október.
Samljóða er ritsmiðjuröð sem hófst í byrjun september en Karólína Rós Ólafsdóttir leiddi fyrstu lotuna við góðar undirtektir. Nú er komið að Maó sem ætlar að beina sjónum að dagbókarskrifum og stuttum textum á íslensku þar sem hversdagsleikinn verður helsti innblásturinn.
Þátttakendur verða hvattir til að líta í kringum sig og nýta það sem fyrir augu ber. Bókasafnið sjálft, mismunandi rými þess og fólkið sem á þar leið um getur þannig orðið kveikjan að næstu sögu eða texta.
Smiðjan er opin öllum sem vilja skrifa á íslensku. Það skiptir því ekki máli hvort íslenska er móðurmál þátttakenda eða hvort þeir eru rétt að stíga sín fyrstu skref í skrifum á íslensku sem öðru máli.
Í lok lotunnar koma þátttakendur saman, lesa upp úr verkum sínum og fá tækifæri til að ræða textana og veita hvert öðru endurgjöf.
Ritsmiðjan fer fram á miðvikudögum frá klukkan 16.30 til 18.00 á Borgarbókasafninu Grófinni. Þátttaka er ókeypis og engin skráning nauðsynleg. Það þarf því einfaldlega að mæta á staðinn með skrifgleðina í farteskinu.
Samljóða er hluti af stærra verkefni Borgarbókasafnsins sem nefnist Samvera og er styrkt af Þróunarsjóði innflytjenda.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir