
Bandarísk yfirvöld hafa handtekið 38 ára gamlan mann frá Kaliforníu sem er sakaður um að hafa smyglað tölvuþjónum að verðmæti meira en 300 milljóna Bandaríkjadala til Kína. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá málinu á fimmtudag.
Maðurinn, Greg Lui, sem einnig gengur undir nafninu Yiu Kong Lui, er sakaður um að hafa notað fölsuð skjöl og sent búnaðinn í gegnum önnur ríki til að komast hjá bandarískum útflutningshömlum.
Þjónarnir innihéldu bandaríska grafíkörgjörva, eða GPU örgjörva, sem meðal annars eru notaðir við þróun og rekstur háþróaðra gervigreindarkerfa. Bandarísk stjórnvöld hafa á undanförnum árum hert verulega reglur um útflutning slíkrar tækni til Kína.
Samkvæmt ákæru rak Lui tæknifyrirtækið Earthmade Computer Inc. og er sakaður um að hafa notað það til að kaupa búnað og koma honum til Kína án tilskilinna leyfa frá bandaríska viðskiptaráðuneytinu á árunum 2023 og 2024.
Búnaðurinn var meðal annars sendur til Malasíu og Singapúr, þar sem sömu leyfisskilyrði giltu ekki. Þaðan hafi hann síðan verið fluttur áfram til Kína með ólögmætum hætti.
Bandarísk stjórnvöld líta á takmarkanir á útflutningi tölvubúnaðar sem mikilvægan þátt í að koma í veg fyrir að bandarísk tækni nýtist við uppbyggingu hernaðar- og gervigreindargetu Kína.
Verði Lui sakfelldur fyrir þau brot sem honum eru gefin að sök gæti hann átt yfir höfði sér allt að 50 ára fangelsi.