
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur gert umfangsmiklar breytingar á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu sem miða að því að efla eftirlit með starfseminni og tryggja neytendum öruggari og skilvirkari þjónustu.
Flestar breytingarnar hafa þegar tekið gildi en ákvæði um sérstök skráningarmerki leigubifreiða tekur gildi 1. apríl 2027.
Með breytingunum eru auknar skyldur lagðar á Samgöngustofu, leyfishafa og leigubifreiðastöðvar. Samgöngustofu verður meðal annars gert að framkvæma árlegt eftirlit með leyfishöfum og koma á sérstöku áhættumatskerfi. Frekara eftirlit verður síðan byggt á niðurstöðum þess mats.
Samgöngustofa skal jafnframt gera árlega skýrslu um framkvæmd eftirlits og hafa reglubundið eftirlit með viðurkenndum námskeiðshöldurum. Þá er kveðið á um að próftaka vegna leigubifreiðaaksturs skuli fara fram án utanaðkomandi aðstoðar.
Nýjar kröfur eru einnig gerðar til leigubifreiðastöðva. Þeim ber að setja sér hátternisreglur og birta þær auk þess að halda rafræna atvikaskrá þar sem skráð verða frávik í starfsemi, brot á lögum og kvartanir neytenda.
Stöðvunum verður einnig skylt að halda rafræna skrá yfir allar seldar ferðir. Upplýsingar úr skránni skulu vera eftirlitsaðilum aðgengilegar í rauntíma í gegnum örugga vefgátt.
Kröfur um upplýsingagjöf til farþega verða jafnframt hertar. Ítarlegri ákvæði gilda nú um framsetningu verðskrár og sýnileika leyfisskírteina í leigubifreiðum.
Leyfishöfum verður auk þess skylt að tilkynna Samgöngustofu um úrskurði eftirlitsaðila, svo sem Neytendastofu, vegna lögbrota. Slík brot geta jafnframt verið metin sem brot gegn góðum viðskiptaháttum og leitt til sviptingar leyfis.
Ein sýnilegasta breytingin tekur þó ekki gildi fyrr en 1. apríl 2027. Frá þeim tíma verða leigubifreiðar auðkenndar með sérstökum lituðum skráningarmerkjum. Sérstök reglugerð verður sett um útfærslu þeirra.
Miklar deilur og ósætti
Breytingar innviðaráðherra á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu eru nýjasti kaflinn í breytingum á umgjörð leigubílaaksturs hér á landi. Málefni greinarinnar hafa áður valdið miklum deilum, meðal annars árið 2022 þegar leigubílstjórar mótmæltu fyrirhugaðri breytingu á lögum.
Þá lögðu leigubílstjórar undir sig Tjarnargötu og flautuðu fyrir utan ráðherrabústaðinn á meðan ríkisstjórnarfundur stóð yfir. Tilefnið var frumvarp sem átti meðal annars að heimila einstaklingum og rekstraraðilum að reka leigubíla án þess að vera bundnir við leigubílastöð eða hafa aksturinn að aðalatvinnu.
Bílstjórar töldu breytingarnar ógna bæði starfsöryggi þeirra og öryggi almennings og kröfðust þess að stjórnvöld hlustuðu betur á sjónarmið greinarinnar.
Nú, fjórum árum síðar, hefur Eyjólfur hert regluverkið á ýmsum sviðum.
