Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Heimur

Segja Rússa hafa skipu­lagt árás undir fölsku flaggi í Póllandi

Fuglavernd vill stöðva skotveiðar á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Samtökin sendu umhverf­is­ráðu­neyt­inu bréf vegna máls­ins

Vestmannaeyjar
Vest­manna­eyjar Fugla­vernd vill vernda bjarg­dúf­urnar Mynd: Í eigu Vestmannaeyjabæjar.

Fugla­vernd hefur óskað eftir svörum frá umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu vegna leyf­is­veit­ingar sem heim­ilar skot­veiðar á bjarg­dúfum í Vest­manna­eyjum. Samtökin hafa miklar áhyggjur af mál­inu og telja að ekki hafi verið sýnt fram á að aðrar leiðir til að koma í veg fyrir tjón hafi verið full­reyndar.

Stjórn Fugla­verndar hefur sent ráðu­neyt­inu bréf þar sem hún gagn­rýnir for­sendur leyf­is­veit­ing­ar­innar og kallar eftir skýr­ari upp­lýs­ingum um mark­mið aðgerð­anna og hvernig meta eigi árangur þeirra.

Í bréf­inu segir að meint tjón af völdum bjarg­dúfna sé óljóst og að það hafi ekki verið metið með full­nægj­andi hætti áður en heim­ilað var að drepa fugl­ana.

Fugla­vernd bendir jafn­framt á að ekki virð­ist hafa verið sýnt fram á að aðrar leiðir til að draga úr tjón­inu hafi verið full­reyndar. Þar á meðal nefnir félagið að hætta alfarið fóð­ur­gjöfum til dúfn­anna.

„Við krefj­umst þess að allar aðgerðir sem snúa að drápum á bjarg­dúfum verði stöðv­aðar þar til meint tjón hefur verið metið með full­nægj­andi hætti og sýnt fram á að full­reynt sé að aðrar aðgerðir til að draga úr tjóni skili ekki til­ætl­uðum árangri,“ segir meðal ann­ars í bréf­inu.

Í því sam­hengi vísar Fugla­vernd til umsagnar Nátt­úru­fræði­stofn­unar frá 3. sept­em­ber 2025, þar sem fjallað var um umsókn um und­an­þágu til að leyfa veiðar á dúfum í Vest­manna­eyjum.

Samtökin telja mik­il­vægt að skýrt liggi fyrir hvert mark­mið skot­veið­anna sé og hvernig eigi að mæla árangur þeirra. Þannig verði hægt að ákvarða hvenær mark­miðum aðgerð­anna hafi verið náð.

Þá lýsir Fugla­vernd áhyggjum af því að leyf­is­veit­ingin geti skapað for­dæmi fyrir sam­bæri­legar aðgerðir í fram­tíð­inni.

„Við teljum mik­il­vægt að skýrar for­sendur liggi að baki ákvörðun um að heim­ila skot­veiðar á bjarg­dúfum og að mark­mið, mæli­kvarðar og mat á árangri séu skil­greind með skýrum hætti,“ segir í bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Maðurinn mætti ekki við þingfestingu
Fólk

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Heimur

Alvar­legar ásak­anir á hendur 15 ára syni raun­veru­leika­stjörnu

Innlent

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Samkvæmt ákærunni veitti eldri maðurinn þeim yngri munnmök í barnalaug Laugardalslaugar.
Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni