Óvenjulegur gestur vakti athygli íbúa í strandbænum Surf City í New Jersey þegar hákarl sást synda um flæddar götur í kjölfar öflugs storms sem gekk yfir austurströnd Bandaríkjanna um helgina.
Íbúinn Drew Procaccino náði hákarlinum á myndband um hádegisbil 26. september þegar hann synti fram hjá heimili hans. Dýrið synti meðal annars upp heimreið áður en það hélt í átt að Barnegat-flóa.
Sérfræðingar hafa greint hákarlinn sem svokallaðan smooth dogfish. Tegundin er smávaxin og talin mönnum hættulaus. Hún er algeng í vestanverðu Atlantshafi og getur orðið allt að um einn og hálfur metri að lengd, þótt einstaklingarnir séu yfirleitt minni.
Hákarlinn hefur flatar og fremur bitlausar tennur sem hann notar meðal annars til að mylja krabbadýr. Hann nærist einnig á smokkfiski og ýmsum fisktegundum.
Mikið óveður gekk yfir norðausturhluta Bandaríkjanna um helgina og fylgdi því úrhellisrigning, hvassviðri og umfangsmikil strandflóð. Samgöngur röskuðust og fjöldi heimila varð rafmagnslaus.
Að minnsta kosti einn lést af völdum óveðursins. Í New York féllu jafnframt nærri eitt þúsund tré vegna veðursins.

