
Seðlabanki Íslands vill ekki upplýsa hvort leki á ársreikningi Reykjavíkurborgar í lok apríl sé til skoðunar eða rannsóknar hjá fjármálaeftirliti bankans. Málið snýr að mögulegum markaðssvikum vegna leka á innherjaupplýsingum til Morgunblaðsins frá borgarfulltrúum eða starfsmönnum borgarinnar eftir regluverður borgarinnar tilkynnti málið til Seðlabankans.
Mannlíf leitaði upplýsinga hjá Seðlabankanum um stöðu málsins. Í svari bankans kemur fram að ábendingar sem berast fjármálaeftirlitinu séu metnar og kannað hvort tilefni sé til frekari athugunar. Vegna ríkrar þagnarskyldu geti bankinn hins vegar ekki upplýst hvort einstök mál séu til skoðunar eða rannsóknar né tjáð sig efnislega um þau.
Seðlabankinn bendir á að ef mál er tekið til athugunar og niðurstaðan verður sú að brot hafi átt sér stað séu niðurstöður að jafnaði birtar opinberlega í formi gagnsæistilkynningar.
Reykjavíkurborg og innri endurskoðun borgarinnar hafa ekki svarað fyrirspurnum Mannlífs um stöðu málsins.
Á fundi borgarráðs í maí kom fram að borgarfulltrúar hefðu heimilað regluverði Reykjavíkurborgar fullan aðgang að tölvusamskiptum sínum vegna rannsóknar á lekanum. Þar kom jafnframt fram að ársreikningurinn hefði verið bundinn lögmæltri trúnaðar- og þagnarskyldu áður en hann var birtur og upplýsingarnar teldust til innherjaupplýsinga.
Heimildin fjallaði um málið í maí. Þar kom fram að það mætti rekja til fréttar sem birtist á mbl.is 27. apríl og innihélt helstu upplýsingar og lykiltölur ársreikningsins.
Samkvæmt bréfi regluvarðar hafði verið ákveðið að birta ársreikninginn í Kauphöll klukkan 13.30. Vitneskja um nákvæma tímasetningu birtingarinnar hefði aðeins verið hjá þeim sem sátu fund borgarráðs auk regluvarðar.
Regluvörður sagði liggja fyrir að um ólögmæta miðlun upplýsinga til Morgunblaðsins hefði verið að ræða, enda hefði frétt mbl.is, þar sem þegar hafði verið unnið úr ársreikningnum, birst á sömu mínútu og reikningurinn var birtur í Kauphöll.
Svar Seðlabankans í heild sinni
Ábendingar sem berast fjármálaeftirliti Seðlabankans eru metnar og skoðað hvort tilefni sé til frekari athugunar. Telji eftirlitið ástæðu til að taka mál til athugunar myndi sú athugun byggja á þeim eftirlitsúrræðum og heimildum sem lög kveða á um.
Rík þagnarskylda hvílir á starfsmönnum Seðlabankans um allt það sem varðar hagi viðskiptamanna bankans, viðskipti og rekstur eftirlitsskyldra aðila, tengdra aðila eða annarra og málefni bankans sjálfs, svo og um önnur atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls, nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða til lögreglu eða skylt sé að veita upplýsingar lögum samkvæmt, sbr. 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019 um Seðlabanka Íslands, sbr. einnig 13. gr. laga nr. 87/1998. Þó fjármálaeftirlit Seðlabankans geti á hverjum tíma haft til skoðunar og rannsóknar tiltekin mál varðandi meint eða möguleg brot á lögum getur bankinn ekki tjáð sig efnislega um slík mál. Beiðni þinni um upplýsingar um efnisatriði einstakra mála, sem kunna að vera til skoðunar hjá Seðlabankanum, er þar með hafnað með vísan til ofangreindrar þagnarskyldu. Synjun þessa getur þú borið undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál, sbr. nánar 1. mgr. 20. gr. og einnig 1. mgr. 22. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012.
Seðlabankinn bendir hins vegar á að ef mál er tekið til athugunar og lýkur með niðurstöðu um brot eru niðurstöður að jafnaði birtar í formi gagnsæistilkynninga á heimasíðu bankans (sjá hér) í samræmi við stefnu bankans um opinbera birtingu á niðurstöðum stjórnsýslumála
Þau sem höfðu aðgang að gögnunum
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Róbert Marshall aðstoðarmaður hennar
Þorsteinn Gunnarsson borgarritari
Alexandra Briem borgarfulltrúi
Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi
Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi
Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi
Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi
Skúli Helgason borgarfulltrúi
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi
Helga Þórðardóttir borgarfulltrúi
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir varaborgarfulltrúi
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi
Líf Magneudóttir borgarfulltrúi
Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjórnar
Heimir Snær Guðmundsson, sem hafði umsjón með fundi borgarráðs
Þetta eru þeir einstaklingar sem regluvörður Reykjavíkurborgar tilgreinir að hafi haft aðgang að gögnunum. Auk þeirra höfðu starfsmenn á skrifstofu borgarstjórnar, skrifstofu borgarstjóra og hjá borgarritara aðgang að upplýsingunum. Þá sátu starfsmenn fjármála- og áhættustýringarsviðs, auk endurskoðenda, fund borgarráðs 27. apríl.
