1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

3
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

4
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

5
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

6
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

7
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

8
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

9
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

10
Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp

Til baka

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

„Ávísun á aukin félagsleg vandamál“

Verkamannabústaðir
Íbúar og sérfræðingar gagnrýna áform um farandverkamannahverfi
Mynd: Unsplash/Te Lun Ou Yang

Áform Hafnarfjarðarbæjar og fyrirtækisins Stólpa um að reisa nýtt tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk hafa mætt harðri andstöðu meðal íbúa. Sérfræðingar á sviði húsnæðismála og félagsfræði segja verkefnið vekja upp fjölmargar spurningar um félagslega einangrun, réttindi starfsfólks og fjárhagsleg áhrif á sveitarfélagið.

Verkefnið snýst um uppbyggingu á um tíu hektara svæði við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg, þar sem stefnt er að því að reisa allt að 130 hús með 260 íbúðum. Húsin verða um 35 fermetrar að stærð og eru ætluð erlendu starfsfólki sem dvelur hér á landi í skemmri tíma. Fyrirtækið Stólpi mun sjá um uppsetningu eininganna og leigja þær áfram til fyrirtækja, en ekki einstaklinga. Lóðarleigusamningurinn er gerður til tíu ára.

Vilja útrýma óleyfisbúsetu

Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, hefur lýst verkefninu sem góðri lausn fyrir atvinnulífið í samtali við RÚV. Bærinn bindur vonir við að framkvæmdin muni fækka íbúum í óleyfisíbúðum í atvinnuhverfum og tryggja farandverkafólki öruggara og betra húsnæði. Orri tók fram að um metnaðarfulla uppbyggingu væri að ræða en ekki hefðbundið „gámaþorp“.

Rúmlega 2.000 manns mótmæla staðsetningunni

Áformin hafa hins vegar valdið mikilli óánægju í bænum og hafa rúmlega tvö þúsund manns þegar skrifað undir undirskriftarlista þar sem staðsetningunni er mótmælt. Elín Sigríður Óladóttir, íbúi á Völlunum, gagnrýnir skort á samráði og útboðsferlum. Hún bendir á að landið hafi upphaflega verið ætlað undir hefðbundna íbúðabyggð og lýsir því sem „rökvillu“ að einangra stóran hóp farandverkafólks í útjaðri byggðar þar sem litla þjónustu eða afþreyingu er að finna. Hún óttast að hverfið verði ávísun á aukin félagsleg vandamál.

Sérfræðingar vara við áhættuþáttum

Már Wolfgang Mixa, dósent í viðskiptafræði og sérfræðingur í húsnæðismálum, telur samkomulagið vekja fleiri spurningar en það svari. Þótt verkefnið geti aukið húsnæðisöryggi til skamms tíma, bendir hann á áhættuna sem fylgir því að tengja búsetu fólks beint við atvinnurekanda þess. Starfsfólkið geti orðið of háð fyrirtækjunum og einsleitni hópsins geti leist til félagslegrar einangrunar. Þá spyr hann hvort útsvarstekjur af íbúunum muni standa undir þeim útgjöldum sem sveitarfélagið þarf að bera vegna hverfisins.

Kolbeinn Hólmar Stefánsson, dósent í efnahagsfélagsfræði, tekur í sama streng og segir framkvæmdina geta farið mjög illa ef ekki er haldið rétt á spöðunum. Hann bendir á að hætta sé á að þarna myndist ákveðinn óreglukúltúr þar sem hópurinn verður sennilega að stórum hluta einsleitur; ungir karlmenn í harðri líkamlegri vinnu. Þá lýsir hann yfir áhyggjum af því að fyrirtæki geti nýtt íbúðirnar til þess að stilla af launakostnað starfsmanna og spyr jafnframt hvernig samgöngum og aðgengi að almennri vöru og þjónustu verði háttað á svæðinu.

Vinna við skipulagslýsing hverfisins stendur nú yfir og stefnt er að því að deiliskipulag verði auglýst í febrúar á næsta ári.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Íslensk fyrirtæki sækja fram
Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár
Innlent

Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína
Heimur

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti
Innlent

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Svara versnandi líðan barna
Innlent

Svara versnandi líðan barna

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála
Myndir
Menning

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan
Innlent

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Íslensk fyrirtæki sækja fram
Svara versnandi líðan barna
Innlent

Svara versnandi líðan barna

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár
Innlent

Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti
Innlent

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Loka auglýsingu