1
Innlent

Konan er fundin

2
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

3
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

4
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

5
Innlent

Bylting við flugstöðina

6
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

7
Innlent

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti

8
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

9
Heimur

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína

10
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

Til baka

„Við höfum bara lært mikið af hruninu eins og aðrir“

Björn Brynjúlfur, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, telur hugveitan hafa tekið á sig of mikla sök

Björn Brynjúlfur Björnsson
Björn Brynjúlfur BjörnssonEr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
Mynd: Viðskiptaráð

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, telur að ráðið hafi tekið á sig of mikla sök í kjölfar bankahrunsins árið 2008. Þetta kemur fram í viðtali við Heimildina þar sem hann ræðir meðal annars gagnrýni á starfsemi ráðsins og lærdóminn af hruninu.

Viðskiptaráð sætti mikilli gagnrýni eftir hrunið og var þáttur þess meðal annars tekinn til umfjöllunar í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Gagnrýnin sneri meðal annars að áhrifum ráðsins á stjórnvöld, áherslu á minni reglusetningu og skýrslum sem unnar voru um íslenska fjármálakerfið fyrir hrun.

Viðskiptaráð viðurkenndi árið 2011 að hafa átt þátt í því ástandi sem skapaðist í aðdraganda hrunsins. Björn telur þó að ráðið hafi síðar tekið á sig meiri ábyrgð en efni stóðu til.

„Já, ég myndi segja að við höfum bara lært mikið af hruninu eins og aðrir,“ svarar Björn.

Hann bendir á að fall Lehman Brothers og lausafjárþurrð á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hafi haft víðtæk áhrif. Íslenska bankakerfið og þjóðarbúið hafi jafnframt verið mjög skuldsett þegar áfallið reið yfir.

Björn nefnir sérstaklega svonefndar Mishkin- og Porter-skýrslur sem Viðskiptaráð kom að fyrir hrun. Hann telur þær að mörgu leyti hafa verið vandaðar þótt niðurstöðurnar hafi reynst of bjartsýnar.

„Menn í rauninni töldu þol bankanna til að standast áföll hafa verið meira en það var og að fjármálakerfið væri traustara en svo reyndist,“ segir Björn.

Hann telur yfirlýsingu Viðskiptaráðs frá árinu 2011 bera þess merki að sjálfsgagnrýnin eftir hrun hafi gengið of langt. Skýrslurnar hafi ekki valdið efnahagshruninu heldur hafi meðal annars mikil skuldsetning og veikleikar í fjármálaeftirliti vegið þar mun þyngra.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

Lögreglan framkvæmdi leit í íbúðarhúsnæði þar sem maðurinn dvaldi á þeim tíma
Sigurður Hafstein er fallinn frá
Minning

Sigurður Hafstein er fallinn frá

Lögreglan kallaði eftir virðingu í miðju partýinu
Innlent

Lögreglan kallaði eftir virðingu í miðju partýinu

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé
Heimur

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Heimur

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð
Heimur

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Innlent

„Við höfum bara lært mikið af hruninu eins og aðrir“
Innlent

„Við höfum bara lært mikið af hruninu eins og aðrir“

Björn Brynjúlfur, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, telur hugveitan hafa tekið á sig of mikla sök
Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

Lögreglan kallaði eftir virðingu í miðju partýinu
Innlent

Lögreglan kallaði eftir virðingu í miðju partýinu

Loka auglýsingu