1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

3
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

4
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

5
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

6
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

7
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

8
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

9
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

10
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Til baka

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála

„Litla Lára hefði alveg mátt vita að hún mætti segja frá“

Lára Garðarsdóttir
Lára GarðarsdóttirLára hlaut á dögunum styrk úr Höfundasjóði Myndstefs.
Mynd: Aðsend

Kát Ína kanína — og leyndarmálið er ný barnabók eftir Láru Garðarsdóttur fyrir börn á aldrinum þriggja til sjö ára. Lára skrifar, myndskreytir og gefur bókina út sjálf og fjallar þar um mikilvægt en viðkvæmt efni: muninn á góðum og vondum leyndarmálum.

Katinakaninakapa_01
Mynd: Aðsend

Sagan segir frá kanínunni Ínu sem gengur með leyndarmál sem verður sífellt þyngra að bera. Í gegnum söguna er börnum á einfaldan hátt bent á að það sé mikilvægt að segja frá ef leyndarmál veldur vanlíðan, ótta eða skömm.

Hvað varð til þess að þú skrifaðir bókina?

„Við þekkjum öll góð leyndarmál,“ segir Lára í samtali við Mannlíf. „Að mamma sé ólétt, hvað einhver fær í jólagjöf eða hver er skotinn í hverjum. Slík leyndarmál geta verið skemmtileg og skapað spennu, gleði og samkennd.“

En svo eru leyndarmál sem eru allt annars eðlis.

„Það eru leyndarmál sem valda vanlíðan, skömm eða ótta. Börn eru háð fullorðnum og geta átt sérstaklega erfitt með að segja frá þegar tryggðin við fólkið í kringum þau verður til þess að þau þegja.“

Lára segir að ein helsta ástæða þess að hún hafi viljað skrifa bókina hafi verið að kenna börnum að „svíkja ekki sig sjálf“.

„Ég vildi gefa þeim glugga til að greina á milli leyndarmála og vandamála. Ég var sjálf barn með leyndarmál og kannski skrifa ég þessa sögu að einhverju leyti fyrir litlu Láru – sem hefði alveg mátt vita að hún má og á að segja frá þegar henni líður illa.“

Vandað til verka

Lára segir mikilvægt hafa verið að fara varlega með efnið, enda bókin ætluð mjög ungum börnum.

„Ég leitaði meðal annars til starfsfólks Barnahúss, kennara og heilbrigðisstarfsfólks við vinnslu bókarinnar. Mér fannst mikilvægt að nálgast þetta á réttan hátt.“

Markmiðið hafi þó aldrei verið að skrifa þunga eða íþyngjandi bók.

„Ég vildi skrifa sögu sem börn geta notið og samsamað sig með, en sem getur líka gefið foreldrum og öðrum fullorðnum tækifæri til að opna á samtal.“

Sagan er í bundnu máli og bókin rík af myndmáli, en Lára myndskreytir bókina sjálf og segir það hafa verið mikilvægan hluta af sköpunarferlinu.

Hefur opnað samtöl

Viðbrögðin eftir að bókin kom út hafa verið Láru sérstaklega dýrmæt.

„Börn hafa sjálf talað um að Ína hafi verið leið vegna leyndarmálsins og fullorðnir hafa sagt mér frá samtölum sem hafa skapast eftir lesturinn.“

Þannig hafi bókin ekki aðeins snert börnin.

„Hún hefur ekki síður haft áhrif á og hreyft við fullorðna fólkinu. Það er í raun nákvæmlega það sem ég vonaði að bókin gæti gert.“

Kat_Ina_kanina_og_leyndarmalid4
Mynd: Aðsend

Lára segist ekki gera ráð fyrir að ein barnabók geti leyst erfið mál.

„En ef hún getur hjálpað einu barni að finna orð yfir eitthvað sem því líður illa með, eða orðið tilefni til samtals sem annars hefði ekki átt sér stað, þá hefur hún gert það sem ég vonaði að hún gæti gert.“

Kat_Ina_kanina_og_leyndarmalid22
Mynd: Aðsend

Gefur bókina út sjálf

Lára hefur skrifað og myndskreytt barnabækur um árabil og áður gefið út bókina Flökkusögu, sem seldist upp.

Kát Ína kanína — og leyndarmálið hlaut styrk úr Höfundasjóði Myndstefs en Lára sér sjálf um útgáfu bókarinnar og hún er nú komin í almenna dreifingu hjá Pennanum, Bókabúð Forlagsins og A4, auk þess sem hægt er að kaupa hana á heimasíðu hennar.

Útgáfuhóf verður haldið í Pennanum Eymundsson í Kringlunni 11. október klukkan 14. Allir eru velkomnir.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ“
Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Sameina raddir sínar í Hallgrímskirkju til minningar um fórnarlömb stríðs
Menning

Sameina raddir sínar í Hallgrímskirkju til minningar um fórnarlömb stríðs

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar
Menning

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október
Myndband
Menning

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október

Ragnheiður, Guðmundur og Leifur dusta rykið af perlunum
Menning

Ragnheiður, Guðmundur og Leifur dusta rykið af perlunum

Íslensk eldstöð verður að fangelsi í tölvuleiknum Overwatch
Menning

Íslensk eldstöð verður að fangelsi í tölvuleiknum Overwatch

Loka auglýsingu