1
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

2
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

3
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

4
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

5
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

6
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

7
Innlent

Manía í miðborginni

8
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

9
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

10
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Til baka

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

„Verkfallsrétturinn er ekki réttur sem má skerða, takmarka, fresta eða banna að vild“

Jón Ferdínand Estherarson
Jón Ferdínand Estherarson, formaður SósíalistaflokksinsSósíalistaflokkurinn leggst alfarið á móti skerðingum á verkfallsrétti launafólks
Mynd: Sósíalistaflokkur Íslands

Félagsfundur Sósíalistaflokks Íslands samþykkti um helgina ályktun þar sem flokkurinn lýsir yfir algerri andstöðu við hvers kyns skerðingu á verkfallsrétti launafólks.

Í ályktuninni er bæði vísað til lögbanns ríkisstjórnarinnar á verkföll og hugmynda sem nú eru til umræðu innan Sjálfstæðisflokksins um að veita ríkissáttasemjara heimild til að fresta verkföllum stéttarfélaga.

Sósíalistar segja verkfallsréttinn vera sögulegan ávinning verkafólks og mikilvægt tæki til að berjast fyrir bættum kjörum.

„Verkfallsrétturinn er ekki réttur sem má skerða, takmarka, fresta eða banna að vild,“ segir í ályktuninni.

Þar segir jafnframt að hugmyndir um að skerða verkfallsréttinn geti fælt fólk frá því að berjast fyrir bættum kjörum á tímum efnahagslegrar óvissu.

Flokkurinn gagnrýnir einnig efnahagsstefnu stjórnvalda og Seðlabanka Íslands og segir stýrivaxtastefnu Seðlabankans, hækkanir á opinberum gjaldskrám og verðhækkanir fyrirtækja hafa stuðlað að aukinni verðbólgu.

Langvarandi aðgerðaleysi í húsnæðismálum sé jafnframt ein af meginástæðum þeirrar verðbólgu og lífskjarakrísu sem bitni hvað harðast á launafólki, að mati flokksins.

Í ályktuninni segir að veikingu verkalýðshreyfingarinnar verði ekki beitt sem lausn á efnahagsvandanum.

„Að grafa undan verkfallsréttinum og að veikja verkalýðshreyfinguna er ekki lausn á þeim djúpstæðu efnahagslegu vandamálum og kemur ekki til greina,“ segir þar.

Sósíalistaflokkurinn hafnar jafnframt því að ábyrgð á þróun efnahagsmála verði lögð á herðar launafólks og kallar þess í stað eftir aðgerðum gegn því sem flokkurinn telur vera rót vandans.

„Þess í stað þarf að grípa til aðgerða gegn rót vandans: Verðbólguskapandi hegðun stórfjármagnseigenda, Seðlabankans og yfirvalda,“ segir í ályktuninni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

Samtök leigjenda hafa áhyggjur af þróuninni
„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Ofurfæðan tempeh - plöntupróteinið sem skákar egginu
Fólk

Ofurfæðan tempeh - plöntupróteinið sem skákar egginu

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi
Innlent

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Breskur glímukappi látinn degi eftir síðasta bardaga sinn
Heimur

Breskur glímukappi látinn degi eftir síðasta bardaga sinn

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu
Myndir
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

„Verkfallsrétturinn er ekki réttur sem má skerða, takmarka, fresta eða banna að vild“
Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri
Pólitík

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn
Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist
Pólitík

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist

Loka auglýsingu