
Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn harðlega fyrir að leggja til að Ísland stefni að fríverslunarsamningi við Bandaríkin. Hann segir flokkinn annaðhvort lifa í „hliðarveruleika“ eða vera að blekkja kjósendur sem þekki ekki stöðuna.
Sveinn Andri skrifar færsluna í kjölfar þess að Sjálfstæðisflokkurinn greindi frá ferð formanns og varaformanns flokksins, Guðrúnar Hafsteinsdóttur og Jens Garðars Helgasonar, til Washington.
Í færslu sinni segir Sjálfstæðisflokkurinn að Ísland eigi að stefna að fríverslunarsamningi við Bandaríkin. Á fundum þeirra í Washington hafi orðið vart við mikinn áhuga á nánara samstarfi ríkjanna og telji flokkurinn tímabært að sýna sambærilegan metnað í viðskiptum og í varnar- og öryggissamstarfi.
Flokkurinn segir betri aðgang að bandarískum markaði geta skapað ný tækifæri fyrir íslenskan sjávarútveg, nýsköpun og þjónustufyrirtæki, aukið útflutning og stutt við fjárfestingu og störf hér á landi.
Sveinn Andri segir hins vegar að hugmyndir um fríverslunarsamning Íslands og Bandaríkjanna hafi áður komið upp en jafnan fallið fljótt niður.
Segir ýmsar hindranir í vegi samnings
Hann bendir meðal annars á að Bandaríkin hafi að hans sögn gert kröfu um niðurfellingu tolla á landbúnaðarafurðum auk þess að vilja aflétta höftum á innflutningi erfðabreyttra bandarískra landbúnaðarafurða.
Þá sé Ísland aðili að bæði EFTA og Evrópska efnahagssvæðinu. Sveinn Andri segir það setja sjálfstæðum fríverslunarsamningum Íslands við Bandaríkin verulegar skorður.
EES-samningurinn tengir Ísland við innri markað Evrópusambandsins og Ísland er jafnframt aðili að EFTA ásamt Noregi, Liechtenstein og Sviss.
Sveinn Andri segir jafnframt að áhugi Bandaríkjanna á sérstökum viðskiptasamningi við Ísland hafi hingað til verið takmarkaður, meðal annars vegna þess hve viðskipti ríkjanna séu umfangslítil og íslenski markaðurinn lítill.
„Kannski hefur núverandi formaður flokksins ekki skilið afstöðu Bandaríkjanna,“ skrifar Sveinn Andri að lokum.
